Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Beate Meinl-Reisinger, utanríkisráðherra Austurríkis, hefur hvatt Evrópuríki til að draga sig ekki úr Eurovision vegna þátttöku Ísraela. Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar hafa gefið það út að þau muni ekki taka þátt verði Ísraelar með. RÚV hefur einnig sett fyrirvara á þátttöku Íslands, og sagt hana ólíklega ef Ísrael verður með. Erlent 20.9.2025 22:00
Danir með en keppnin sögð í fordæmalausri krísu Danmörk ætlar að vera með í Eurovision í Austurríki næsta vor. Hins vegar gera Danir þrjá fyrirvara um þátttöku sem enginn varðar beinlínis þátttöku Ísraels í keppninni. Danskir Eurovision sérfræðingar segja að keppnin standi frammi fyrir einni stærstu áskorun í sögu keppninnar. Lífið 19.9.2025 11:13
Fyrst „stóru fimm“ til að hóta sniðgöngu Spænska ríkisútvarpið hefur staðfest að Spánn muni ekki taka þátt í Eurovision í Vín á næsta ári, verði Ísraelar á meðal þátttökuþjóða. Áður hafa Hollendingar, Slóvenar, Írar og Íslendingar boðað það sama. Lífið 16.9.2025 11:24
Vín mun hýsa Eurovision á næsta ári Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, mun fara fram í austurrísku höfuðborginni Vín í maí á næsta ári. Lífið 20. ágúst 2025 07:17
Breyta merki Eurovision Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hafa ráðist í talsverðar breytingar á merki og ásýnd Eurovision í tengslum við sjötíu ára afmæli söngvakeppninnar á næsta ári. Á miðvikudag verður tilkynnt í hvaða austurrísku borg næsta keppni fer fram. Tíska og hönnun 18. ágúst 2025 11:28
Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Eiríkur Hauksson, tónlistarmaður og fyrsti Eurovision-fari Íslands, segist hafa fundið botninn rétt eftir síðustu aldamót þegar hann var tekinn ölvaður undir stýri, greindist með krabbamein og yfirgaf fjölskyldu sína allt á sama árinu. Lífið 11. ágúst 2025 08:30
Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Ísraelsmenn taka að óbreyttu þátt í Eurovision á næsta ári þar sem atkvæðagreiðslu um að meina þeim frá þátttöku var frestað fram á vetur. Fulltrúar Rúv vildu keppnisbann yfir Ísraelsmönnum og líklegt þykir að tillaga þess efnis hefði verið samþykkt ef gengið hefði verið til atkvæðagreiðslu. Innlent 4. júlí 2025 14:59
Tvöfalt siðgæði EBU mikið áhyggjuefni Samband evrópskra sjónvarpsstöðva EBU kemur saman í London á fimmtudag og föstudag á aðalfundi þar sem þátttaka Ísrael í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður meðal annars til umræðu. Stjórnarformaður Ríkisútvarpsins segir ólíðandi að söngvakeppnin sé notuð í pólitísku áróðursstríði og að ekkert réttlæti þátttöku Ísraels. Innlent 1. júlí 2025 13:01
Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins, vill að Ísrael verði meinuð þátttaka í Eurovision á meðan verið er að rannsaka stríðsrekstur Ísraela á Gasa. Hann vísar í fordæmi þar sem ákveðið var að vísa Rússum og Hvít-Rússum úr keppni vegna innrásarstríðsins í Úkraínu. Innlent 1. júlí 2025 08:06
Af hverju útiloka Ísrael frá Eurovision eins og Rússland? Þegar Evrópusamband útvarpsstöðva (EBU) kemur saman í London dagana 3.–4. júlí stendur stjórn þess frammi fyrir afdrifaríkri ákvörðun: Ætti ríki sem situr undir trúverðugum ásökunum um stríðsglæpi að fá að vera áfram þátttakandi á menningarhátíð Evrópu? Skoðun 1. júlí 2025 08:01
Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Svíinn Martin Österdahl er hættur sem framkvæmdastjóri Eurovision-söngvakeppninnar eftir að hafa gegnt stöðunni í fimm ár. Lífið 27. júní 2025 11:42
Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Fimm ár eru síðan Eurovision myndin fræga með Will Ferrell í aðalhlutverki um Húsvíkinga sem kepptu í Eurovision fyrir Íslands hönd var frumsýnd. Myndin setti Húsavík á kortið á alþjóðavettvangi og enn í dag flykkjast Eurovision aðdáendur þangað að bera þorpið augum, og til að skoða Eurovision-safnið sem þar hefur risið. Lífið 26. júní 2025 23:34
Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Hún elskar kántrí, elskar allt bling og heldur dansiball fyrir öll þau sem langar að vera með. Sindri fór í morgunkaffi til júróstjörnunnar Regínu Óskar, sem á fallegt og kántrílegt heimili í Kópavogi. Lífið 22. júní 2025 07:01
Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Bræðurnir í hljómsveitinni Væb hafa tilkynnt um tónleikaferðalag um Evrópu í febrúar og mars á næsta ári. Tónleikaferðin hefst í Þrándheimi í Noregi 20. febrúar 2026. Lífið 19. júní 2025 11:43
Felix kveður Eurovision með tárum Felix Bergsson sat sinn síðasta fund hjá framkvæmdastjórn Eurovision-söngvakeppninnar á mánudaginn. Hann var leystur út með góðri gjöf. Lífið 18. júní 2025 14:11
Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Framlag Íslands hlaut fæst atkvæði í símakosningu Ísraela á úrslitakvöldi Eurovision í maí. Þá setti ísraelska dómnefndin VÆB-bræður í næstneðsta sæti. Lífið 9. júní 2025 18:07
„Hæ allir saman, kjósið New Day Will Rise“ Stjórnendur Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hyggjast í kjölfar gagnrýni á úrslit Eurovision 2025 rýna í hvort markaðsstarf þátttökuþjóða og hámarksfjöldi atkvæða hafi óeðlileg áhrif á úrslit keppninnar. Ríkisstjórn Ísraels varði miklum fjármunum í kynningarstarf fyrir framlag sitt í Eurovision-vikunni. Lífið 23. maí 2025 10:53
Sigurvegarinn vill banna Ísrael Austurríski tónlistarmaðurinn JJ, sem vann Eurovision á dögunum með laginu Wasted Love, gagnrýnir þátttöku Ísraels í keppninni og segir að landið eigi ekki að fá að keppa á næsta ári. Hann segist ósáttur við kosningakerfið og vill sjá meiri gagnsæi í stigagjöfinni. Lífið 22. maí 2025 12:58
Vill Ísrael og Úkraínu úr Eurovision Keppandi Króatíu í Eurovision í ár vill að engar þjóðir í stríði fái að taka þátt í Eurovision, sama hvort þær hafi hafið stríðið eða ekki. Það sé óhjákvæmilegt að keppnin verði pólitísk með þátttöku þeirra. Lífið 20. maí 2025 15:37
Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, lýsti í dag yfir þeirri skoðun sinni að Ísrael ætti ekki að fá að taka þátt í Eurovision vegna hernaðaraðgerða landsins á Gasa. Hann gagnrýndi Samtök evrópskra ríkissjónvarpsstöðva (EBU) fyrir tvískinnungshátt með því að leyfa Ísrael að keppa, á meðan Rússland var útilokað eftir innrás sína í Úkraínu árið 2022. Erlent 19. maí 2025 15:56
RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að RÚV muni fylgjast með framvindu mála varðandi símakosninguna í Eurovision. Fjallað var um það í morgun að spænska ríkissjónvarpið hefði óskað þess að símakosningin yrði yfirfarin. Innlent 19. maí 2025 13:05
Stjörnulífið: Bikiní dress vikunnar Liðin vika var umvafin sól og sælu. Íslendingar nutu veðurblíðunnar um helgina og birtu myndir af sér ýmist á hlaupum, í miðborginni eða í sólbaði með svalandi drykk á sundfötunum. Eurovision setti sinn svip á vikuna þar sem Væb-bræður kepptu fyrir Íslands hönd og stóðu sig með prýði. Lífið 19. maí 2025 10:38
Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Spænska ríkissjónvarpið, RTVE, hefur krafist þess að Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, yfirfari spænsku símakosninguna í Eurovision. Ísrael fékk flest stig í símakosningunni á Spáni síðasta laugardag og þar með tólf stig frá spænsku þjóðinni. Fjallað er um málið á spænska miðlinum El País. Ísrael fékk engin stig frá spænsku dómnefndinni. Erlent 19. maí 2025 07:15
Felix kveður Eurovision Felix Bergsson hefur tilkynnt að hann muni ekki snúa aftur í Eurovision-teymi Rúv. Hann hefur sinnt ýmsum störfum í teyminu undanfarin fjórtán ár, verið fjölmiðlafulltrúi og fararstjóri íslenska hópsins, lýst keppninni og verið í stýrihópi Eurovision. Lífið 18. maí 2025 19:35