Arteta: Augljóst að strákarnir eru að njóta þess að spila saman Arnar Geir Halldórsson skrifar 13. mars 2022 20:02 Óstöðvandi. vísir/Getty Arsenal er heitasta liðið í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir.
Liðið hefur unnið fimm leiki í röð í deildinni og stendur nú afar vel af vígi í baráttunni um sæti sem skilar keppnisrétti í Meistaradeild Evrópu. „Þú þarft að ná góðri frammistöðu til að vinna Leicester. Þeir eru gott lið og gerðu okkur erfitt fyrir. Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur,“ sagði Arteta í leikslok. „Við erum í góðri stöðu en það er enn að miklu að keppa. Við eigum Liverpool næst og við vitum hversu erfitt það er en við munum spila til sigurs.“ „Við verðum að komast í Meistaradeildina. Við ættum að vera þar. Saga félagsins segir að við eigum að vera þar en við erum ekki enn búnir að tryggja það og það eru margir leikir eftir,“ segir Arteta. Arsenal hefur á að skipa ansi ungu liði og hafa ungstirni á borð við Gabriel Martinelli og Bukayo Saka verið að spila frábærlega að undanförnu auk þess sem Norðmaðurinn Martin Ödegaard er ekki nema 23 ára gamall en hann hefur verið einn allra besti leikmaður deildarinnar að undanförnu. „Maður skynjar það og finnur fyrir því hvað þeir eru að njóta þess að spila saman. Það skín af þeim á vellinum,“ sagði spænski stjórinn að lokum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sigurganga Arsenal heldur áfram Ekkert virðist geta stöðvað Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir. 13. mars 2022 18:25 Mest lesið Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Handbolti Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Í beinni: Liverpool - Bournemouth | Veislan hefst á Anfield Enski boltinn Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Enski boltinn „Algjörlega niðurbrotinn eftir þetta tap“ Fótbolti Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum Fótbolti Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Enski boltinn Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Fótbolti Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Enski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Í beinni: Liverpool - Bournemouth | Veislan hefst á Anfield Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Sjá meira
Sigurganga Arsenal heldur áfram Ekkert virðist geta stöðvað Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir. 13. mars 2022 18:25