Afglöp við afglæpavæðingu Halldór Auðar Svansson skrifar 23. mars 2022 09:01 Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem settur var saman árið 2017 sagði: „Snúa þarf af braut harðra refsinga fyrir neyslu fíkniefna en styrkja aðgerðir gegn fíkniefnasölum, innflutningi og framleiðslu fíkniefna. Tryggja þarf fíklum viðunandi meðferðarúrræði með samvinnu dóms-, félags- og heilbrigðiskerfis.“ Í framkvæmd birtist þetta þannig að frumvörp Halldóru Mogensen þingkonu Pírata um afglæpavæðingu neysluskammta voru annað hvort tafin eða felld og með því að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði fram sitt eigið frumvarp sem dagaði upp í nefnd. Þó tókst henni að koma í gegn frumvarpi um neyslurými, sem eru sérstök örugg heilbrigðisúrræði þar sem refsistefnu gagnvart neytendum er ekki framfylgt. Flokkarnir þrír hafa endurnýjuðu stjórnarheitin í fyrra og þó nýi sáttmálinn sé sá lengsti í Íslandssögunni er þar ekkert minnst á málaflokkinn yfir höfuð. Það gaf strax alls ekki góð fyrirheit um að umbætur á þessu sviði yrðu í forgangi að þessu sinni - en svo glitti í vonarglætu þegar nýr heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, boðaði að hann myndi engu að síður leggja fram sitt eigið frumvarp um afglæpavæðingu. Sú sæla entist þó ekki lengi, því nú verður víst ekkert af frumvarpinu strax. Stofna skal starfshóp til að fara enn og aftur yfir rök með og á móti og ráðherrann hefur gefið út sína persónulegu og frumlegu skoðun að útfærslan ætti að vera þannig að ekki skuli gerð refsing fyrir vörslu neysluskammta en þeir skuli samt sem áður gerðir upptækir. Það er alveg í stíl við sögu umbótatilrauna á þessu sviði að þarna er stigið að óþörfu skaðlegt skref til baka og í raun ekkert hlustað á rökin fyrir því af hverju barist er fyrir afglæpavæðingu neysluskammta, engu skeytt um fyrir hverja það er gert og hvað skiptir þann hóp máli í samhenginu. Í þær áraraðir sem afglæpavæðing hefur verið í umræðunni hefur ítrekað komið skýrt fram að það að gera efnin upptæk af fólki í fíknivanda er jafnvel mesta refsingin sem það getur orðið fyrir og stærsti þátturinn í skaðsemi refsistefnunnar. Þar sem hér er ekki verið að fást við heimildaritgerðarskrif verður látið nægja að vísa í umsögn Rauða krossins um nýjustu útgáfu Halldóru Mogensen af hennar frumvarpi sem hún lagði fram í desember: „Verði frumvarpið að lögum mun aðgengi jaðarsettra einstaklinga, sérstaklega þeirra sem glíma við erfiðan vímuefnavanda, að heilbrigðisþjónustu, félagslegri þjónustu og viðbragðsþjónustu aukast til muna. Rauði krossinn telur mikilvægt að notendur vímuefna hafi greiðan aðgang að heilbrigðis- og velferðarþjónustu, án fordóma og jaðarsetningar. Dæmi eru um að einstaklingar sem glíma við vímuefnavanda veigri sér við að hringja eftir bráðaaðstoð eða leita sér aðstoðar af ótta við að lögregla geri neysluskammta þeirra upptæka og/eða vera handtekin vegna annars ólögmæts athæfis. Getur það jafnvel átt við í bráðatilfelllum eins og við ofskömmtun á vímuefnum, heimilisofbeldi eða annarskonar ofbeldi. Bæði notendur vímuefna og það starfsfólk heilbrigðis- og velferðarþjónustunnar sem starfar með þeim þurfa að geta rætt opinskátt um mál sín án þess að eiga á hættu að nauðsynleg velferðarmál geti jafnframt talist refsiverð athæfi, þ.e.a.s. mál tengd neyslu vímuefna og vitneskja um neysluskammta. Það að tryggja að ekki verði hægt að fjarlægja neysluskammta af fólki er mikilvægt öryggismál fyrir jaðarsetta einstaklinga og auðveldar einnig starfsfólki á vettvangi að þjónusta og styðja við einstaklinga sem glíma við vímuefnavanda út frá þeirra þörfum. Lagasetningin mun enn fremur styðja við uppsetningu og þróun skaðaminnkandi þjónustu Í landinu, við þau úrræði sem nú þegar eru til staðar fyrir einstaklinga með erfiðan vímuefnavanda, s.s. Frú Ragnheiði, Konukot, Gistiskýli og við búsetuúrræði og dagsetur fyrir einstaklinga í virkri vÍmuefnanotkun. Mikilvægt er að styrkja lagalega stöðu þessa úrræða og tryggja að öll úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æði geti veitt skjólstæðingum sínum öruggt neyslurými innanhúss til að lágmarka hættu á dauðsföllum vegna ofskömmtunar. Lagabreytingin er einnig í samræmi við þá heimild sem er að finna í 2. gr. a. laganna um neyslurými en ljóst er að lögin um neyslurými ná ekki fram markmiði sínu að fullu fyrr en kaup og varsla neysluskammta verður afglæpavædd. Rauði krossinn á Íslandi hefur fengið ómetanlega og einstaka innsýn í stöðu og veruleika einstaklinga sem glíma við erfiðan vímuefnavanda í gegnum skaðaminnkunarverkefni félagsins. Vert er að taka fram að skjólstæðingar þessara verkefna eru allajafna verulega jaðarsettir vegna vímuefnavandans og fjölmargir þeirra glíma við heimilisleysi. Þau löglegu og ólöglegu vímuefni sem skjólstæðingar Rauða krossins eru háðir eru í langflestum tilfellum keypt á ólöglegum markaði og einnig fjármögnuð eftir ólöglegum leiðum. Reynsla Rauða krossins er sú að þegar lögregla gerir neysluskammta upptæka eykst örvænting jaðarsetts einstaklings með vímuefnavanda. Þannig má leiða líkur að því að ef neysluskammtur einstaklings er gerður upptækur ýti það einstaklingnum enn frekar í átt að ólöglegu athæfi til fjármögnunar. Staða þess einstaklings verður þannig sífellt verri og vandi hans eykst. Að taka neysluskammta af fólki sem glímir við erfiðan og virkan vímuefnavanda getur aukið skaða fyrir einstaklinginn og samfélagið sömuleiðis.“ Ljóst er því að stefnu- og áhugaleysi sitjandi ríkisstjórnar á málaflokknum og einhver „Mér finnst“ þankagangur er enn og aftur að tefja fyrir þessu mikilvæga mannréttindamáli sem rúmur meirihluti þjóðarinnar styður samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. Heilbrigðisráðherrann hefur enn ekki tileinkað sér grunnþekkingu á málaflokknum, þó það sé vissulega til bóta að hann segist nálgast hann með opnum huga og binda má vonir við að starfshópurinn muni skera tvístígandi pólitíkusa úr þeirri snöru að eiga erfitt með að taka skýra afstöðu. Fagfólk sem þekkir til málaflokksins hefur haft rökin á hreinu í áraraðir og raddir þeirra sem þekkja hann á eigin skinni eru líka farnar að heyrast skýrar, samanber til að mynda ágætt viðtal við Kristján Hölluson, fyrrum vímuefnanotanda í bata, í Fréttablaðinu þar sem haft er eftir honum að „Þú býrð við stöðugan ótta um það að skammturinn þinn sé tekinn af þér. Þú ert alltaf hræddur við að verða refsað og jaðarsettur. Ég er búinn að vera edrú í 5 ár en ég fæ en þá kvíðakast við að sjá lögreglubíla og eiga samskipti við yfirvöld.“ Afglæpavæðing neysluskammta er þannig tímaspursmál, miðað við skriðið sem er á málinu í upplýstri umræðu, hvað sem stefnuleysi sitjandi stjórnvalda líður. Þegar sagan verður skrifuð verður mun hlutur ríkisstjórnarinnar hinnar sitjandi þó fyrst og fremst felast í afglöpum og vera skólabókardæmi um skaðsemi stefnuleysis sem leiðir til þess að íhaldssemi verður sjálfkrafa stöðugt ofan á. Höfundur er varaþingmaður Pírata. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Halldór Auðar Svansson Fíkn Píratar Alþingi Mest lesið Ég veit hvern ég styð Elliði Vignisson Skoðun Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut? Atli Björn Levy Skoðun Toyotan, sviðasultan & kötturinn Árni Stefán Árnason Skoðun Er Borgarlínan metnaðarfull framtíðarsýn eða tálsýn? Kristín Thoroddsen Skoðun Offita er ekki tilviljun – hún er kerfisvandi Elísabet Reynisdóttir Skoðun Banaslys á sjúkrahúsum: reynsla sem þarf að læra af Gunnar Salvarsson Skoðun Barnavernd á Íslandi fyrr og nú Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Opið bréf til stjórnar Háskólans á Bifröst Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Heilbrigðisþjónusta fyrir sum Telma Sigtryggsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Báknið minnkað, Miðflokkur á móti Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnar Háskólans á Bifröst Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Barnavernd á Íslandi fyrr og nú Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Banaslys á sjúkrahúsum: reynsla sem þarf að læra af Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Heilbrigðisþjónusta fyrir sum Telma Sigtryggsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Offita er ekki tilviljun – hún er kerfisvandi Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Er Borgarlínan metnaðarfull framtíðarsýn eða tálsýn? Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Toyotan, sviðasultan & kötturinn Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Ég veit hvern ég styð Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvað getur frístundaheimili gert fyrir barnið þitt? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut? Atli Björn Levy skrifar Skoðun Frelsið til að skipta um skoðun Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Að byggja upp samfélag Pétur Björgvin Sveinsson skrifar Skoðun Samstaða um varnarmál Pawel Bartoszek,Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Frítt í Strætó fyrir börn og ungmenni - ólíkt hafast menn að Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fordæmdu börnin Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Íslensk lög sniðin að þörfum norsku laxeldisrisanna Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Fossvogur án íþrótta – afleiðingar Fossvogsbrúar Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun X - Orri Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland, landið sem á nú engan að Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Barnamenningarhús – menning, sköpun, tengsl og geðheilbrigðisforvarnir frá upphafi Ellen Calmon skrifar Skoðun Búið að opna ESB pakkann: Sambandsríkið Evrópa og endalok íslensks fullveldis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Árás á almenningssamgöngur Hannes Pétursson skrifar Skoðun Reykjavík – norræn, en samt ekki ,,skandinavísk“ Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Símalausir grunnskólar í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Efling þekkingar í sjávarútvegi skilar árangri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Óvarin í umferðinni Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Barnamenningarhús – menning, sköpun, tengsl og geðheilbrigðisforvarnir frá upphafi Ellen Calmon skrifar
Skoðun Búið að opna ESB pakkann: Sambandsríkið Evrópa og endalok íslensks fullveldis Eggert Sigurbergsson skrifar