Fjórir af fimm launahæstu á Englandi leika með United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2022 12:30 Jadon Sancho og Cristiano Ronaldo eiga fyrir salti í grautinn. getty/James Gill Manchester United borgar bestu launin í ensku úrvalsdeildinni ef marka má lista L'Équipe yfir launahæstu leikmenn deildarinnar.
Samkvæmt úttekt franska blaðsins leika fjórir af fimm launahæstu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar með United. Það kemur kannski fáum á óvart að Cristiano Ronaldo er á toppi listans en talið er að hann fái 2,2 milljónir punda í mánaðarlaun. Það gerir 26,4 milljónir punda í árslaun. Kevin De Bruyne, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, er næstlaunahæstur í ensku úrvalsdeildinni með 1,7 milljónir punda í mánaðarlaun. Næstu þrír á launalistanum leika allir með United. Þetta eru þeir David De Gea, Jadon Sancho og Raphäel Varane. Þeir tveir síðastnefndu komu til United fyrir tímabilið líkt og Ronaldo. United er fjórða tekjuhæsta félag heims samkvæmt úttekt Deloitte. Á síðasta tímabili var United með 558 milljónir evra í tekjur. City er efst á listanum, Real Madrid í 2. sæti, Bayern München í því þriðja og Barcelona númer fjögur. Þótt United þéni mikið og borgi góð laun hefur það ekki skilað sér í árangri inni á vellinum. Liðið er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, dottið út úr ensku bikarkeppninni og Meistaradeild Evrópu og hefur ekki unnið titil síðan 2017.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Sjá meira