Trúnaðarmenn segja fullyrðingar Sólveigar Önnu með öllu rangar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 13. apríl 2022 15:21 Trúnaðarmenn Eflingar segja formann félagsins ekki hafa setið sáttafundi vegna hópuppsagnar. Vísir/Vilhelm Trúnaðarmenn starfsmanna Eflingar segja að fullyrðingar Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns félagsins um að samkomulag hafi náðst um framkvæmd hópuppsagnar með öllu rangar. Þeir segja hana sömuleiðis ekki hafa setið samráðsfundi með trúnaðarmönnum áður en hópuppsagnir voru tilkynntar. „
Í ljósi þess að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur rofið trúnað um bókun sem átti sér stað við lok samráðsferli sem trúnaðarmenn Eflingar áttu með lögmanni hennar getum við ekki séð að við séum bundin honum lengur.“ Svona hefst tilkynning trúnaðarmanna Eflingar sem barst fréttamiðlum laust fyrir klukkan þrjú. Þar er vísað til tilkynningar frá B-listanum, sem Sólveig Anna leiðir, sem barst fjölmiðlum í morgun. Í tilkynningunni var því haldið fram að samkomulag hafi náðst við trúnaðarmenn starfsfólks skrifstofu Eflingar um framkvæmd skipulagsbreytinga á vinnustaðnum. Stjórnarmenn hafi ekki reynt að koma í veg fyrir hópuppsögn Í skipulagsbreytingunum felst hópuppsögn allra starfsmanna skrifstofu Eflingar svo hægt sé, að sögn stjórnenda, að innleiða ný ráðningarkjör, með gagnsæi og jafnrétti að leiðarljósi. Þá verði starfað undir nýju skipulagi með breyttum hæfniskröfum og verkaskiptingu. „Þann 11. og 12. apríl sl. hittu trúnaðarmenn Eflingar lögmann stjórnar Eflingar vegna fyrirhugaðrar hópuppsagnar. Tilgangur þessara funda var skv. lögum að „forðast hópuppsagnir eða fækka starfsmönnum sem fyrir þeim verða og draga úr afleiðingum með hjálp félagslegra aðgerða“. Við trúnaðarmenn fórum á þessa fundi með opnum hug og reyndum eftir fremsta megni að leita leiða til þess að komast hjá þessum hópuppsögnum eða milda þær,“ segir í tilkynningunni frá trúnaðarmönnunum, þeim Ölmu Pálmadóttur og Gabríel Benjamin. Þau segjast telja að ekkert af yfirlýstum markmiðum stjórnar Eflingar krefjist hópuppsagnarinnar. Þá hafi þau gefið til kynna að þau tækju allar tillögur alvarlega og þau hafi reynt að vera samstarfsfús til lausna. „Ekkert varð úr því. Við getum ekki sagt að um samráð hafi verið að ræða í skilningi laga um hópuppsagnir, enginn vilji var til breytinga eða mildunar á hópuppsögn heldur einhliða ákvörðun sem er röng, óskynsamleg og með öllu ónauðsynleg. Gefnar voru upp ástæður sem fólust í breytingum á ráðningarkjörum og til að uppfylla skilyrði varðandi jafnlaunavottun. Þessar ástæður eru ekki byggðar á rökum og halda engu vatni,“ segir í tilkynningunni. Segja Sólveigu ekki hafa setið sáttafundi Þau segja að fullyrðingar Sólveigar Önnu um að samkomulag um framkvæmd uppsagnanna hafi náðst séu með öllu rangar. „Sem hún hefði vitað hefði hún setið fundina. Þegar ljóst var að ekki væri hægt að koma í veg fyrir eða milda þessar aðgerðir hófst samtal um hvernig mætti standa að þeim og úr því varð bókun. Í þeirri bókun ítrekuðum við andmæli okkar við hópuppsögnina en komumst að samkomulagi um fjögur atriði varðandi uppsagnirnar,“ segir í tilkynningunni. Þau segja að samkvæmt lögmanni stjórnar Eflingar sé bókunin og samskonar gögn ekki lengur trúnaðarmál og láta hana því fylgja með tilkynningunni. Bókunin fylgir hér að neðan í heild sinni. Þar kemur fram að þau fjögur atriði sem komist var að samkomulagi um hafi verið eftirfarandi: Öllum starfsmönnum verður tryggður að lágmarki þriggja mánaða uppsagnarfrestur, þ.e. einnig þeim sem hafa ekki áunnið sér slíkan rétt samkvæmt kjarasamningi eða ráðningarsamningi. Ef starfsmanni býðst starf hjá öðrum atvinnurekanda á uppsagnarfresti og hann óskar af þeim skum eftir að láta af störfum áður en uppsagnarfrestur er liðinn mun Efling samþykkja það með eins stuttum fyrirvara og unnt er og falla frá réttindum og skyldum það sem eftir er uppsagnarfrests. Starfsmönnum sem þess óska munu fá svigrúm á uppsagnarfresti til að sækjast eftir öðrum störfum, þ.e. fara í starfsviðtöl, undirbúa þau og fleira þess háttar á vinnutíma. Beiðnir um slíkt skulu þó berast fyrir fram til næsta yfirmanns, eigi síðar en degi áður en starfsmaður fyrirhugar að vera frá vinnu af þessum sökum. Starfsmenn sem óska þess verða leystir undan vinnuskyldu síðasta mánuð uppsagnarfrests, án skerðingar launa fyrir þann mánuð. „Eftir á að hyggja hefðum við trúnaðarmenn viljað að hverjum og einum starfsmanni yrði afhend uppsögnin af hendi formanns,“ segir í lok tilkynningarinnar. Tengd skjöl bókun_12PDF763KBSækja skjal
Ólga innan Eflingar Stéttarfélög Tengdar fréttir ASÍ-UNG segir uppsagnirnar lagalega tæpar Samtök ungs launafólks innan Alþýðusambands Íslands segja hópuppsögn innan Eflingar standa á mjög tæpum lagalegum grundvelli og stangast alfarið við þau siðferðislegu gildi sem þau vilji tileinka sér. 13. apríl 2022 13:57 Kom ekki til greina að hætta við uppsagnirnar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að ekki hafi komið til umræðu að hætta við uppsagnir alls starfsfólks á skrifstofu Eflingar, þegar unnið var að samkomulagi við trúnaðarmenn starfsfólks. Fráleitt sé að halda því fram að réttindi starfsfólksins verði ekki virt. 13. apríl 2022 12:08 Starfsmaður Eflingar og frænka Sólveigar sakar stjórnina um hræsni „Ef einhver vinnustaður annar hefði tilkynnt um hópuppsagnir til að svo endurráða starfsfólk á lægri kjörum þá værum við hjá Eflingu fyrst til að verja þau og þeirra réttindi. Ef einhver annar vinnustaður hefði ráðist á trúnaðarmenn sína og starfsmenn í fjölmiðlum þá værum við fyrst til að fordæma það og taka upp hanskann fyrir það starfsfólk.“ 13. apríl 2022 10:25 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira
ASÍ-UNG segir uppsagnirnar lagalega tæpar Samtök ungs launafólks innan Alþýðusambands Íslands segja hópuppsögn innan Eflingar standa á mjög tæpum lagalegum grundvelli og stangast alfarið við þau siðferðislegu gildi sem þau vilji tileinka sér. 13. apríl 2022 13:57
Kom ekki til greina að hætta við uppsagnirnar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að ekki hafi komið til umræðu að hætta við uppsagnir alls starfsfólks á skrifstofu Eflingar, þegar unnið var að samkomulagi við trúnaðarmenn starfsfólks. Fráleitt sé að halda því fram að réttindi starfsfólksins verði ekki virt. 13. apríl 2022 12:08
Starfsmaður Eflingar og frænka Sólveigar sakar stjórnina um hræsni „Ef einhver vinnustaður annar hefði tilkynnt um hópuppsagnir til að svo endurráða starfsfólk á lægri kjörum þá værum við hjá Eflingu fyrst til að verja þau og þeirra réttindi. Ef einhver annar vinnustaður hefði ráðist á trúnaðarmenn sína og starfsmenn í fjölmiðlum þá værum við fyrst til að fordæma það og taka upp hanskann fyrir það starfsfólk.“ 13. apríl 2022 10:25