Klopp: Liverpool getur enn orðið enskur meistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2022 16:00 Jürgen Klopp fagnar hér sigrinum á Villarreal sem kom Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Getty/David S. Bustamante Liverpool er þremur stigum á eftir Manchester City eftir leiki helgarinnar og búið að missa forskot sitt í markatölu. Liverpool tapaði stigum á móti Tottenham á sama tíma og City rúllaði upp Newcastle.
Knattspyrnustjóri Liverpool, Jürgen Klopp, er ekki búinn að gefa upp vonina þrátt fyrir vonbrigði helgarinnar en fram undan er leikur á móti Aston Villa í kvöld. Klopp var spurður um það á blaðamannafundi hvort að hann hafi talað um það við leikmenn sína að möguleikinn á enska meistaratitlinum væri nú orðinn að engu eftir síðustu úrslit. ESPN segir frá. „Ég er nú ekki viss að ég hafi sagt það því það er augljóst. Það liggur í augum uppi að titilbaráttan er ekki búin sama hvað gerðist,“ sagði Jürgen Klopp. „Við eigum þrjá leiki eftir og ég hef bara áhyggjur af því hvernig við förum að því að vinna þessa þrjá leiki. Ég hef ekkert með það að segja hvort City vinni sína þrjá leiki eða ekki. Við hættum aldrei að trúa, þannig virkum við,“ sagði Klopp. „Sem manneskjur þá er það virkilega svalt að við getum ákveðið það sjálfir hvernig við horfum á þetta. Það eru staðreyndir en við megum hunsa þær. Ég er að reyna að hjálpa strákunum að sjá stöðuna eins og ég sjálfur,“ sagði Klopp. Manchester City spilar við Wolves á útivelli annað kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Fótbolti Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn Fótbolti Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Fótbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Íslenski boltinn „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ Fótbolti Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Fótbolti „Hörku barátta tveggja góðra liða“ Fótbolti Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Sjá meira