Valdaseta byggð á vondu lýðræði Gunnar Smári Egilsson skrifar 25. maí 2022 08:31 Ég skrifaði grein á Vísi fyrr í vikunni þar sem ég benti á hvernig mörg ákvæði íslenskra kosningalaga hygla stærri flokkum. Ég ætla að freista þess að vekja aftur athygli á þessu óréttlæti með því að fara með ykkur í gegnum allar borgarstjórnarkosningar frá 1930 og bera saman útdeilingu borgarfulltrúa milli flokka samkvæmt D’Hondt-reglunni sem notuð er hérlendis og hyglir stærri framboðum og Sainte-Laguë-aðferðinni sem beitt er á Norðurlöndum og hefur ekki sömu skekkju. Þetta hljómar kannski óspennandi, en ferðalag um söguna með þeim D’Hondt og Sainte-Laguë er hörkuspennandi, full af óvæntum tíðindum. Sjálfstæðismenn vinna meirihluta Nýstofnaður Sjálfstæðisflokkur vann góðan sigur í kosningunum 1930, fékk 8 fulltrúa af 15 hvort sem við beitum D’Hondt eða Sainte-Laguë, Alþýðuflokkurinn fékk fimm fulltrúa og Framsókn tvo. Í næstu kosningum buðu Kommúnistar og Þjóðernissinnar (Nasistar) fram og náðu Kommúnistar öðrum fulltrúanum af Framsókn. Sjálfstæðismenn féldu sínum 8 fulltrúum og Kratar 5. Aftur breytir engu hvora aðferðina við notum, D’Hondt eða Sainte-Laguë. Árið 1938 vinna Sjálfstæðismenn á og fá níunda manninn samkvæmt D’Hondt en ekki samkvæmt Sainte-Laguë. D’Hondt flutti sem sé einn fulltrúa frá sameiginlegu framboði Krata og Kommúnista, sem fengu því 5 en ekki 6 fulltrúa. Framsókn var áfram með einn. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins fellur Í kosningum 1942 missir Sjálfstæðisflokkurinn fylgi og hefði misst meirihluta sinn samkvæmt Sainte-Laguë. D’Hondt tryggði þeim hins vegar átta fulltrúa, 53% fulltrúa fyrir 48,7% atkvæða. Þetta voru fyrstu kosningar Sósíalistaflokksins, sem fékk fjóra menn kjörna. Kratar fengu þrjá en Framsókn missti sinn eina. Og það var D’Hondt að kenna, hann flutti Framsóknarmanninn yfir á Íhaldið, sem hélt þar með meirihluta. Í kosningunum 1946 endurtekur leikurinn sig. Framsóknarmenn ná aftur inn manni, Sósíalistar halda sínum fjórum en nú tekur D’Hondt þriðja mann kratana og færir yfir á Sjálfstæðisflokkinn svo Íhaldið heldur meirihluta. Samkvæmt Sainte-Laguë hefði hann fallið ef svo má segja, en hann hefði í raun fallið fjórum árum fyrr. Mögulega hefði Framsókn myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokksmönnum frekar en Sósíalistum og Krötum. Við vitum auðvitað ekkert um það, þetta er hluti sögu sem við fengum ekki að lifa vegna þess að stóru flokkarnir settu leikreglurnar sem tryggðu þeim völdin. Aftur fellur meirihlutinn 1950 bætti Sjálfstæðisflokkurinn við sig og hefði endurheimt meirihlutann sinn samkvæmt Sainte-Laguë en þurfti það ekki samkvæmt D’Hondt. Fulltrúar annarra flokka voru þeir sömu: Sósíalistar 4, Kratar 2 og Framsókn 1. 1954 missir Sjálfstæðisflokkurinn fylgi og hefði átt að missa meirihlutann en aftur kemur D’Hondt til bjargar. Nú tekur hann annan mann Þjóðvarnarflokksins sem náði góðu kjöri í sínum fyrstu borgarstjórnarkosningum, náði einum manni af Sósíalistum en hefði átt að ná öðrum af Íhaldinu. Annað var óbreytt: Kratar 2 og Framsókn 1. 1958, í tíð vinstri stjórnar í landsmálum vinnur Sjálfstæðisflokkurinn mikinn sigur, fær 10 fulltrúa samkvæmt D’Hondt þegar Sainte-Laguë hefði gefið flokknum 9. D’Hondt fellir Þjóðvarnarflokkinn út úr borgarstjórn á meðan Sainte-Laguë hefði haldið honum inni. Staða hinna flokkanna er: Sósíalistar 3, Kratar 1 og Framsókn 1. Sjálfstæðismenn halda meirihlutanum 1962 en aftur færir D’Hondt þeim aukamann, nú frá Krötum. Þeir vinna því ekki sinn annan mann eins og Framsókn gerði. Sósíalistar halda sínum þremur. Sundrung vinstrimanna var aldrei vandamálið Samkvæmt Sainte-Laguë hefði Sjálfstæðisflokkurinn aðeins unnið meirihlutann í einum af næstu fjórum kosningum, árið 1974. Það hefði ekki tekist 1966 eða 1970 og örugglega ekki 1978, þegar meirihlutinn féll loksins samkvæmt D’Hondt. Þá höfðu Sjálfstæðismenn ríkt í Reykjavík óslitið frá 1930 eða í 48 ár. Af þessum 48 árum hafði Sjálfstæðisflokkurinn sannarlega unnið kosningar og unnið fyrir valdasetu í 28 ár en í 20 ár sat flokkurinn í skjóli D’Hondt, útdeildingarkerfi sem hyglir stærri flokkum svo þeir fá hlutfallslega fleiri fulltrúa en atkvæðamagn þeirra segir til um. 1970 fékk flokkurinn 53,3% fulltrúa úr á 47,7% atkvæða. Allan þennan tíma trúðu vinstrimenn að böl þeirra væri sundrung þeirra sjálfra þegar vandinn var kosningakerfið sem tók fulltrúa frá smærri framboðum og færði til stærri framboða. Í reynd færði kerfið fulltrúa frá vinstri flokkunum til Sjálfstæðisflokks. Meirihlutinn sem féll hefði aldrei orðið til Eftir 1978 gerist það ekki að D’Hondt hafi haldið meirihluta á lífi sem hefði átt að falla samkvæmt Sainte-Laguë. Á tímabili Davíðs Oddssonar nær Sjálfstæðisflokkurinn manni af Alþýðuflokknum bæði 1982 og 1986 með D’Hondt en það réð ekki úrslitum, stækkaði bara meirihlutann umfram tilefni. Og á R-listatímabilinu voru línur skýrar, aðeins tveir flokkar að skipta á milli sín fulltrúum og engu breytti hvor aðferðin var notuð. Árið 2006 færir D’Hondt annan mann Frjálslyndra yfir á Sjálfstæðisflokkinn sem gefur Sjálfstæðisflokknum færi á að mynda stjórn með einum manni Framsóknar. Þótt sá meirihluti hafi lifað skammt þá hafði D’Hondt þarna umtalsverð áhrif. Næst hefur D’Hondt mikil áhrif 2018. Þá fellir D’Hondt Framsókn út úr borgarstjórn og tekur annan manninn af Sósíalistum og færir þessa menn til Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Sem gefur Samfylkingunni færi á að mynda meirihluta með Viðreisn, Pírötum og Vg. Í kosningunum fyrr í mánuðinum var D’Hondt til friðs. Spillingin skrifar söguna Það sést á þessu að sú aðferð sem er í íslensku kosningalögunum og sem er frábrugðin þeirri sem notuð er á Norðurlöndunum hefur haft afgerandi áhrif á borgarmálin og pólitíkina. D’Hondt bjó til yfirburðastöðu Sjálfstæðisflokksins, færði honum mikil völd sem flokkurinn notaði til að deila út bitlingum til flokksmanna, sem aftur styrktu flokkinn svo hann gat hangið á völdunum. Og D’Hondt bjó líka til þá hugmynd meðal vinstrimanna að þeir væru ávallt að skemma fyrir sjálfum sér. Þeir áttuðu sig ekki á að þeir voru að keppa í leik þar sem dómarinn dæmdi Sjálfstæðisflokknum ávallt í vil. Þetta er óskeð saga sem við höfum farið í gegnum. Ef meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefði fallið strax 1942 hefði saga Reykjavíkur ekki bara orðið öðruvísi heldur pólitísk saga landsins alls. Og þetta má orða öðru vísi: Saga okkar varð eins og var vegna þess að það var vitlaust gefið. Stóri flokkurinn var með forgjöf. Svona er spillingin djúpstæð í samfélagi okkar. Hún er höfundur sögu okkar. Höfundur er félagi í Sósíalistaflokknum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Smári Egilsson Skoðun: Kosningar 2022 Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson Skoðun Þið eruð kosin til að vinna saman, ekki forðast hvort annað Frosti Heimisson Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sóknin í efri byggðum Kópavogs Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Taka þarf á gjörbreyttum aðstæðum í leikskólum Inga Þóra Þóroddssdóttir skrifar Skoðun Skiptir máli hvað við kjósum í sveitarstjórnakosningunum? Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Saman í félagi, Samfélagi Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Borgin er ekki að drukkna í einkabílum Þórir Garðarson skrifar Skoðun Börnin, kennararnir og ábyrgðin Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Anna Sigrún Jóhönnudóttir skrifar Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar Skoðun Gerum betur í Mosfellsbæ Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn? Berglind Robertson Grétarsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér hærri álögur í Reykjavík? Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Húsnæði á ekki að vera happdrætti fyrir ungt fólk Lilja D. Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Þið eruð kosin til að vinna saman, ekki forðast hvort annað Frosti Heimisson skrifar Skoðun Að fljóta sofandi að feigðarósi? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Þegar velferð aldraðra verður fasteignaverkefni Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar Skoðun Banvænt ósamræmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er Vestfjarðavegur (60) í gegnum Dalina afgangsstærð? skrifar Skoðun Hvítt fyrir börn sem biðja um frið Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Farið á bak við þing og þjóð? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Mannréttindaiðnaðurinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen skrifar Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson skrifar Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður er heimili okkar allra Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Sjá meira
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun
Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar
Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun