Frábært vatn fyrir byrjendur og lengra komna Karl Lúðvíksson skrifar 7. júlí 2022 09:07 Fallgur urriði úr Geldinatjörn Karl Lúðvíksson Það eru margir sem taka sín fyrstu skref í fluguveiði á hverju sumri og leita að vatni sem passar vel þessum fyrstu köstum í frábæru sporti.
Við erum sem betur fer ágætlega sett með góð veiðivötn í kringum höfuðborgina en mesta áherslan hefur alltaf verið á Elliðavatn og Þingvallavatn. Það er samt annar gullmoli sem vert er að nefna. Geldingatjörn á Mosfellsheiði er nefnilega frábært vatn fyrir þá sem eru að byrja í fluguveiði. Þarna er nóg af urriða, mest 1-3 punda, og inn á milli ansi vænir fiskar sem geta auðveldlega náð 8-10 pundum. Veiðimenn sem voru við vatnið í þrjá tíma í gær að kasta flugu settu í á annan tug fiska á hinar ýmsu flugur í gær og sögðu að það hafi verið reglulega gaman að sjá mjög væna fiska byllta sér um vatnið á sama tíma og verið var að þreyta fisk. Þarna er á lygnum degi hægt að æfa sig á þurrflugu, notað púpur til að kasta í vakir og strippa littlar straumflugur. Það er eiginlega varla hægt annað en að setja í fisk þó svo að taka sé misgóð eftir dögum og veðri. Veiðileyfin eru alls ekki dýr, vegur sem nær mjög nálægt vatninu og þetta er ekki nema 15 mínútna akstur frá Mosfellsbæ. Það er Fishpartner sem selur leyfi í Geldingatjörn.
Stangveiði Mest lesið Gjörbylting fyrir starfsfólk í Langá Veiði Óvissa um Norðurá - Tilboðum SVFR hafnað Veiði Korpa sjaldan litið betur út til veiða Veiði Vænir sjóbirtingar í Leirá Veiði 60-80 laxar á dag úr Eystri Rangá Veiði Mokveiði í Frostastaðavatni Veiði Laxateljari kominn í gagnið í Langadalsá Veiði Veiði lokið í Veiðivötnum Veiði Stórlaxaáin Alta í hættu vegna eldislaxa sem sluppu úr kvíum Veiði Fín veiði og vænir fiskar í vinsælustu silungsvötnunum Veiði