Allt í blóma í Mosfellsbænum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2022 14:31 Magnús Már Einarsson er á sínu þriðja tímabili sem þjálfari Aftureldingar. vísir/vilhelm Afturelding gerði góða ferð austur fyrir fjall og vann 1-4 sigur á Selfossi í 14. umferð Lengjudeildar karla í gær. Þetta var þriðji sigur Mosfellinga í röð en þeir eru komnir upp í 5. sæti deildarinnar.
Júlí hefur verið gjöfull fyrir Aftureldingu en liðið hefur náð í þrettán stig í sex leikjum í mánuðinum. Aðeins topplið Lengjudeildarinnar, Fylkir, hefur fengið fleiri stig í mánuðinum, eða sextán. Eina liðið sem tók stig af Fylki í júlí var einmitt Afturelding. Mosfellingar hafa heldur betur verið á skotskónum að undanförnu en í síðustu þremur leikjum, sem hafa allir verið á útivelli, hefur liðið skorað samtals þrettán mörk. Afturelding vann Vestra og Selfoss, 1-4, og Grindavík, 4-5. Spánverjinn Marciano Aziz var sérstaklega öflugur í þessum leikjum og skoraði samtals fimm mörk í þeim. Tvö þeirra komu á Selfossi í gær. Aftureldingu hefur gengið sérlega vel á útivöllum í sumar og náð þar í þrettán af 22 stigum sínum. Aðeins Fylkir hefur fengið fleiri stig á útivelli, eða fjórtán. Mosfellingar eru á sínu fjórða tímabili í röð í næstefstu deild. Sumurin 2019 og 2020 endaði liðið í 8. sæti og í 10. sæti með 23 stig í fyrra. Mosfellinga vantar því aðeins eitt stig til að jafna stigafjölda sinn frá því á síðasta tímabili. Afturelding náði sínum besta árangri í sögu félagsins þegar liðið endaði í 4. sæti næstefstu deildar 2002. Mosfellingar stefna væntanlega á að bæta þann árangur í sumar. Seinni þrír leikirnir í 14. umferð Lengjudeildarinnar fara fram í kvöld. Grindavík tekur á móti Þór, Vestri fær botnlið Þróttar V. í heimsókn og HK og Grótta eigast við í Kórnum. Með sigri komast HK-ingar aftur á topp deildarinnar.
Lengjudeild karla Afturelding Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira