Vanda listar upp aðgerðir KSÍ gegn kynferðisofbeldi Sindri Sverrisson skrifar 15. september 2022 12:30 Vanda Sigurgeirsdóttir hefur verið formaður KSÍ í tæpt ár og haft nóg fyrir stafni. vísir/Arnar Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir að sambandið hafi þegar „virkjað“ flest þau atriði sem lögð voru til í skýrslum nefnda og vinnuhópa varðandi kynferðislega áreitni og ofbeldi innan knattspyrnuhreyfingarinnar.
Vanda fjallar um þetta í pistli sem hún skrifar á vef KSÍ nú tæpu ári eftir að hún var kjörin formaður. Í pistlinum nefnir hún nokkur verkefni sem eru henni sérstaklega hugleikin og þar á meðal er stofnun sérstaks ungmennaráðs, til að fá meiri aðkomu barna og unglinga að ákvarðanatöku í knattspyrnuhreyfingunni, sem og að opna betur samtalið við opinbera aðila til að benda á hvernig styðja megi betur við knattspyrnustarfið í landinu. Stærstur hluti pistilsins fer þó í yfirlit yfir þau verkefni sem KSÍ hefur unnið eða vinnur að varðandi forvarnir og fræðslu um kynferðislega áreitni, ofbeldi og jafnréttismál. Á það var bent í grein á Vísi í lok ágúst að á því ári sem liðið væri frá því að Guðni Bergsson sagði af sér sem formaður KSÍ, í skugga skandals sem skók sambandið, virtist lítið hafa verið gert í þessum málum. Í raun væri eina stóra breytingin sú að stjórn KSÍ hefði samþykkt viðbragðsáætlun þann 25. maí þar sem sagði að leikmenn þjálfarar og aðrir sem störfuðu innan KSÍ þyrftu að stíga til hliðar væru mál þeirra til meðferðar hjá rannsóknar- eða ákæruvaldi og/eða samskiptaráðgjafa ÍSÍ. Vanda segir hins vegar að flest þau atriði sem nefnd hafi verið í skýrslum nefnda og starfshópa sem skipuð voru vegna þessara mála hafi þegar verið virkjuð. Þeirri vinnu er aftur á móti í mörgum tilvikum ekki lokið, eins og til að mynda uppfærslu siðareglna KSÍ með sérgrein varðandi ofbeldi, og útfærslu samninga við leikmenn og starfsfólk landsliða sem tækju mið af þeim siðareglum. Vanda telur upp eftirfarandi atriði í þessu samhengi: Stjórn KSÍ samþykkti í vor meginviðmið varðandi það hvenær fulltrúar KSÍ skuli stíga til hliðar í hlutverki sínu og eiga þær reglur jafnt við um dómara, þjálfara, leikmenn, forystumenn, starfsmenn og aðra þá sem eru innan KSÍ. Forvarnar- og viðbragðsáætlun er í uppsetningu hjá Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og á að vera tilbúin í september. Uppfærsla siðareglna KSÍ er í vinnslu. Samningar við leikmenn og starfsfólk landsliða eru í vinnslu og áætlað er að þeirri vinnu ljúki á haustdögum. Á vef KSÍ er hlekkur inn á vefsíðu Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála (og annað fræðsluefni), þar sem er m.a. að finna upplýsingar og úrræði fyrir þolendur. Námsefni um jafnrétti, forvarnir og fræðsla um ofbeldi og sér í lagi kynferðisofbeldi er hluti af þjálfaramenntun KSÍ. Þar á meðal taka þjálfarar sérstakt netnámskeið æskulýðsvettvangsins. KSÍ tilkynnti fyrr á árinu um tveggja ára samstarfsverkefni með Barnaheillum. Um er að ræða fræðsluverkefnið Verndarar barna með það að markmiði að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, þekkja einkenni ofbeldis og læra að bregðast við. Öllum aðildarfélögum KSÍ stendur til boða fræðsla fyrir sitt starfsfólk. Vinna við fræðslu til leikmanna landsliða er langt komin og mun sú fræðsla, sem verður tilbúin haustið 2022, einnig standa aðildarfélögum KSÍ til boða. Allir stjórnarmenn og nefndarmenn innan KSÍ hafa undirritað undir yfirlýsingu um trúnað, hlutleysi og virðingu. Aðildarfélög KSÍ hafa brugðist vel við ákalli um að huga að jafnrétti kynjanna við val á sínum þingfulltrúum síðustu ársþing KSÍ og á þinginu 2022 voru fleiri konur þingfulltrúar en nokkru sinni fyrr. Í kosningum og við skipan í nefndir á ársþingi 2022 var hugað sérstaklega að jafnrétti kynjanna og er staðan þannig að í nefndum og starfshópum á vegum KSÍ í dag eru karlar 53% og konur 47%, sem er vel yfir þeim markmiðum sem við settum okkur og líklega einsdæmi í knattspyrnuheiminum. Vanda lýkur pistlinum á að nefna þá spennandi tíma sem eru hjá íslensku landsliðunum en bæði A-landslið kvenna og U21-landslið karla eiga möguleika á því að komast inn á stórmót í haust, og A-landslið karla á enn von um að vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni. Þá segir hún spennandi að fylgjast með lokum mótanna hér heima og nefnir sérstaklega nýja fyrirkomulagið í Bestu deild karla, þar sem úrslitakeppni tekur brátt við eftir lokaumferð hefðbundnu deildakeppninnar á laugardaginn.
Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi KSÍ Fótbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Sjá meira