Southgate segir að Trippier sé á undan Alexander-Arnold í röðinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. september 2022 08:30 Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, virðist vera hrifnari af Kieran Trippier en Trent Alexander-Arnold. getty/Michael Regan Leiðin í byrjunarlið enska landsliðsins virðist vera býsna löng fyrir Trent Alexander-Arnold, leikmann Liverpool, allavega ef marka má orð landsliðsþjálfarans Gareths Southgate.
Alexander-Arnold sat allan tímann á varamannabekknum þegar England tapaði fyrir Ítalíu í Þjóðadeildinni á föstudaginn og var ekki í leikmannahópnum í 3-3 jafnteflinu gegn Þýskalandi í fyrradag. Hvorki fleiri né færri en fjórir hægri bakverðir voru í landsliðshópnum sem Southgate valdi síðast. Alexander-Arnold virðist neðst í goggunarröðinni af þeim. Southgate sagði meðal annars að heildarpakkinn sem Newcastle-maðurinn Kieran Trippier byði upp á væri betri en hjá Alexander-Arnold. „Ég ræddi lengi við alla þá sem spiluðu ekki,“ sagði Southgate er hann var beðinn um að útskýra val sitt. „Gegn Ítalíu þurftum við ekki auka mann í stöðu vinstri bakvarðar. En við þurftum þess gegn Þýskalandi vegna þess hvernig liðinu var stillt upp. Við þurftum Ben Chilwell á bekknum og við höfum Trippier sem er betri alhliða leikmaður en Alexander-Arnold á þessari stundu.“ Hnn 23 ára Alexander-Arnold hefur verið lykilmaður hjá Liverpool undanfarin ár og unnið allt sem hægt er að vinna með Rauða hernum. Honum hefur hins vegar ekki tekist að vinna sér inn sæti í byrjunarliði Englands. Hann hefur leikið sautján landsleiki og skorað eitt mark.
Enski boltinn Þjóðadeild UEFA Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik Körfubolti Fleiri fréttir Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjá meira