Taka þurfi á upplýsingaóreiðu um hinsegin fólk: „Við verðum að fá allt samfélagið með okkur“ Fanndís Birna Logadóttir skrifar 4. október 2022 17:19 Daníel Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, segir upplýsingaóreiðu hafa gríðarlega skaðleg áhrif á hinsegin fólk og stuðla að hatursáróðri. Starfshópur forsætisráðherra gegn hatursorðræðu kemur til með að skila niðurstöðum sínum fyrir lok árs en framkvæmdastjóri Samtakanna 78 segir upplýsingaóreiðu þeirra helsta óvin um þessar mundir. Stjórnvöld geti gert meira til að bregðast við og samfélagið allt þurfi að taka þátt.
Formaður starfshópsins greindi frá því í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag að hópurinn hafi rætt við fulltrúa á þriðja tug hagsmunasamtaka á síðustu vikum og að full ástæða væri til að halda vinnunni áfram út frá því sem kom þar fram. Meðal þeirra samtaka sem hópurinn ræddi við voru Samtökin 78 en Daníel Arnarsson, framkvæmdastjóri samtakanna, segir að fyrst og fremst þurfi að skilgreina hvað felist í hatursorðræðu en engin alþjóðleg skilgreining sé í raun til staðar. „Það er mjög erfitt að skilgreina þetta og í rauninni ef við erum að fara í einhvers konar vitundarvakningu eða ef við ætlum að fara í lagabreytingar eða eitthvað annað, þá þurfum við öll að koma okkur niður á einhverja skilgreiningu, hvað er hatursáróður og hatursglæpur,“ segir Daníel. Að hans sögn má skipta hatursáróðri í tvo flokka, annars vegar beinan hatursáróður þar sem andúð gegn ákveðnum hóp er lýst með berum orðum, og hins vegar upplýsingaóreiðu. Hann tekur sem dæmi viðtal sem Mannlíf birti um helgina við einstakling sem sagðist hafa reynslu af því að vinna með trans fólki og gagnrýndi harðlega kynleiðréttingar trans barna. „Síðan les þetta einhver einstaklingur og byrjar að spyrja spurninga um einhvern ákveðinn hóp og jafnvel tilvistarétt þeirra. Þetta er í rauninni grunnurinn að hatursáróðri, það er þessi upplýsingaóreiða sem er svo erfitt að einhvern veginn standa á móti eða vinna gegn,“ segir Daníel. Samfélagið þurfi að standa í lappirnar Í kringum Hinsegin daga hafi þau séð beinan hatursáróður eða ógn við hinsegin samfélagið þar sem greint var frá því að gelt hafi verið á hinsegin fólk, hinsegin fánar skornir niður og hinsegin ungmennum sagt að drepa sig. „Þetta er barátta á hverjum einasta degi og þetta er vinna á hverjum einasta degi og við verðum að fá allt samfélagið með okkur til að sporna gegn þessu. Að bregðast við þegar við heyrum að einhver ákveðinn hópur er talaður niður, þá þurfum við að standa í lappirnar og segja: Svona gerum við ekki, við viljum ekki vera svona samfélag,“ segir Daníel. Íslandi hefur oft verið hampað fyrir árangur í málefnum hinsegin einstaklinga og miðillinn Pink News fjallaði til að mynda á dögunum um nýja stefnu íslenskra stjórnvalda í hinsegin málum. Daníel segir þó meira þurfa til. „Það er margt að gerast núna en á sama tíma þá er þjónusta við þennan hóp í algjöru lágmarki og í rauninni þekkingin er í algjöru lágmarki hjá stjórnkerfinu. Þannig að þau eiga að efla félagasamtök kannski fyrst og fremst og líka að einstaklingarnir fái til dæmis heilbrigðisþjónustu, það skiptir sköpum núna,“ segir hann. Kjörið tækifæri fyrir Alþingi til að bregðast við Þá séu þau uggandi yfir þróuninni erlendis þar sem hægri flokkar hafa verið að sækja í sig veðrið en hér á landi sé fólk í ákveðinni forréttindastöðu þar sem allir stjórnmálaflokkar, að einum undanskildum, styðji réttindi hinsegin fólks. Það sé kjörið tækifæri fyrir til að mynda Alþingi að koma saman og koma á fót metnaðarfyllri áætlunum. „Til að bregðast við öllum þessum teiknum og merkjum um að það ólgi eitthvað undir niðri. Þannig þau geta gert meira því að viljinn er algjörlega til staðar hjá öllum stjórnmálaflokkum, nema þessum eina. Þannig að tíminn er núna,“ segir Daníel. Til þess þurfi samfélagið allt sömuleiðis að standa saman en Daníel segir flesta líklega vilja búa í samfélagi þar sem allir geta lifað opnu og frjálsu lífi án þess að eiga á hættu að verða fyrir áreiti. „Ég held að langflestir landsmenn vilji það en þá verðum við líka að vera tilbúin til þess að taka eftir þessari upplýsingaóreiðu og taka eftir tóninum sem er oft gefinn,“ segir hann. „Við erum að tala um hóp fólks sem er til, hann er þarna, hann er ekki að fara neitt, hann hefur alltaf verið þarna. Það er bara okkar að veita sýnileikann og veita réttindin og það gerum við bara saman.“
Hinsegin Tengdar fréttir Hinsegin fólk áhyggjufullt vegna bakslags Gríðarlegur fjöldi var saman kominn í Gleðigöngunni í miðbæ Reykjavíkur til að fagna fjölbreytileikanum. Hinsegin fólk segir að mæting sé til marks um samstöðu þrátt fyrir mikið bakslag í þjóðfélaginu. 6. ágúst 2022 21:16 Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira
Hinsegin fólk áhyggjufullt vegna bakslags Gríðarlegur fjöldi var saman kominn í Gleðigöngunni í miðbæ Reykjavíkur til að fagna fjölbreytileikanum. Hinsegin fólk segir að mæting sé til marks um samstöðu þrátt fyrir mikið bakslag í þjóðfélaginu. 6. ágúst 2022 21:16