Venus Williams hvergi nærri hætt og verður með á Opna ástralska Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 19. desember 2022 21:46 Venus Williams verður með á Opna ástralska risamótinu í tennis í janúar. Jamie Squire/Getty Images Hin 42 ára gamla Venus Williams er hvergi nærri hætt og mun hún taka þátt á Opna ástralska risamótinu í tennis sem fram fer í janúar.
Williams fær þátttökurétt í gegnum svokallað „Wildcard“ og mun því taka þátt á Opna ástralska risamótinu, 25 árum eftir að hún keppti á mótinu í fyrsta skipti. Þrátt fyrir að hafa aðeins unnið þrjá leiki á 13 mótum á síðasta tímabili hefur þessi 42 ára gamla tenniskona ekki enn gefið í skyn að hún ætli sér að fylgja fordæmi systur sinnar, hinnar 41 árs gömlu Serenu Williams, og leggja tennisspaðann á hilluna. Williams hefur unnið sjö risatitla í einliðaleik á ferlinum. Hún komst í tvígang í úrslit á Opna ástralska, árin 2003 og 2017, en þurfti í bæði skiptin að sætta sig við silfurverðlaun. Hún hefur þó tryggt sér fimm titla í tvíliðaleik í Melbourne á ferlinum. „Ég er mjög spennt að vera að fara að spila aftur í Melbourne. Það verður mikill heiður að spila fyrir framan þessa áhorfendur aftur,“ sagði Williams. „Ég hef verið að keppa þarna í yfir tuttugu ár og ástralska samfélagið hefur alltaf stutt mig af öllu hjarta. Ég hlakka til að skapa fleiri minningar á næsta móti.“ Williams, sem var um tíma besta tenniskona heims, situr nú í 1.007. sæti heimslistans.
Tennis Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni HK flaug upp í Olís-deildina Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille KR - Njarðvík | Toppslagur í Vesturbænum O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Gerpla fullkomnaði frábæra bikarhelgi Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Rodman í heiðurshöll WWE Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjá meira