Stjarnan skoraði sex gegn Tindastóli Hjörvar Ólafsson skrifar 11. febrúar 2023 18:23 Aníta Ýr Þorvaldsdóttir skoraði eitt marka Stjörnunnar í leiknum. Vísir/Hulda Margrét Stjarnan vann öruggan 6-0 sigur þegar liðið mætti Tindastóli í Miðgarði í A-deild Lengjubikars kvenna í fótbolta í dag.
Alma Mathiesen og Arna Dís Arnþórsdóttir skoruðu tvö mörk hvor fyrir Stjörnuna í leiknum en Aníta Ýr Þorvaldsdóttir skoraði eitt mark og eitt marka Stjörnunnar var sjálfsmark. Keflavík lagði svo Aftureldingu að velli 3-2 í hinum leik dagsins í riðli 2 í A-deild Lengjubikars kvenna. Elfa Karen Guðmundsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Keflavík í þeim leik og Caroline Slambrouck bætti þriðja markinu við fyrir Suðurnesjaliðið. Katrín Rut Kvaran og Hildur Karítas Gunnarsdóttir höfðu hins vegar komið Aftureldingu tveimur mörkum yfir í leiknum. Þetta voru fyrstu leikir riðilsins en auk framangreindra liða eru Breiðablik og ÍBV í riðli 2. Í riðli 1 burstaði Þróttur svo KR en lokatölur í þeim leik urðu 11-0. Þar skoruðu Ólöf Sigríður Kristjánsdóttir, sem var valinn í A-landsliðið á dögunum í fyrsta skipti, Brynja Rán Knudsen, Katla Tryggvadóttir og Sierra Lelii skoruðu tvö mörk hver. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, Freyja Karín Þorvarðardóttir og Sæunn Björnsdóttir skoruðu síðan eitt mark hver. Valur og Selfoss áttu að mætast fyrr í dag í riðli 1 en þeim leik var frestað vegna veðurs.
Íslenski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Sjá meira