Körfubolti

Falko farinn frá ÍR

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jacob Falko var öflugur með ÍR. 
Jacob Falko var öflugur með ÍR.  Vísir/Hulda Margrét

Eistneska liðið BC Kalev/Cramo hefur samið við bandaríska leikstjórnandann og fyrrverandi leikmann ÍR, Jacob Falko, fyrir komandi tímabil. Karfan.is greinir frá.

 Þetta þýðir að Falco verður ekki áfram hjá ÍR en hann hefur verið einn besti leikmaður Bónus-deildarinnar undanfarin tvö tímabil.

Falko sem er 25 ára gamall og var með 22,2 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili auk þess sem hann 7,8 stoðsendingar að meðaltali.

BC Kalev/Cramo er eitt sigursælasta körfuboltafélag Eistlands og hefur verið fastagestur í evrópskum keppnum undanfarin ár. Kaupin á Falko eru liður í því að styrkja bakvarðasveit félagsins fyrir krefjandi verkefni vetrarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×