Aron Elís kom inná þegar OB tapaði Smári Jökull Jónsson skrifar 24. febrúar 2023 20:05 Aron Elís kom inná á 82.mínútu leiksins í kvöld. Vísir/Getty Aron Elís Þrándarson kom inn sem varamaður í liði OB sem tapaði fyrir Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Það var við ramman reip að draga hjá OB í dag enda mótherjarnir í Nordsjælland með nokkuð þægilega forystu á toppi dönsku deildarinnar. OB var hins vegar um miðja deild með 25 stig eftir nítján umferðir. Aron Elís byrjaði á varamannabekk OB í dag sem lenti undir á 28.mínútu leiksins þegar Wahid Faghir kom Nordsjælland í 1-0. Mads Frökjær-Jensen jafnaði hins vegar í 1-1 undir lok fyrri hálfleiks og þannig var staðan í hálfleik. Nordsjælland gerði hins vegar út um leikinn eftir hlé. Faghir skoraði sitt annað mark á 63.mínútu og Ernest Nuamah kom heimaliðinu í 3-1 tíu mínútum síðar. Emiliano Marcondes rak svo síðasta naglann í kistu OB þegar hann skoraði fjórða mark Nordsjælland á 80.mínútu. Aron Elís kom inná á 82.mínútu hjá OB og skömmu síðar tókst gestunum að minnka muninn þegar Kian Hansen skoraði sjálfsmark. Lokatölur 4-2 og Nordsjælland nú með sjö stiga forskot á Viborg á toppi deildarinnar.
Danski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira