„Það er alvöru mótbyr“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. mars 2023 20:31 Jónatan Magnússon var sáttur með framlag sinna manna í Garðabænum þótt úrslitin hafi ekki verið honum að skapi. vísir/hulda margrét Jónatan Magnússon, þjálfari KA, sagði að herslumuninn hefði vantað hjá sínum mönnum til að vinna Stjörnuna í kvöld. Garðbæingar sigruðu Akureyringa, 30-26. „
Það vantaði ekki mikið upp á. Þetta var hörkuleikur og við vorum vel inni í honum. Þetta voru bara nokkur atriði í sókninni, í yfirtölunni undir lokin,“ sagði Jónatan við Vísi eftir leik. „Það er svolítið mótlæti og þá detta hlutirnir ekki með þér, fráköst og svona. Það er alvöru mótbyr. En margt í frammistöðunni var gott fannst mér. Það vantaði herslumuninn.“ Ekki var hægt að skynja uppgjöf í KA-mönnum í kvöld þótt illa hafi gengið að undanförnu. „Mér fannst margt í leiknum okkar sem var gott, hvað varðar baráttu og menn að leggja sig fram. Það eru tvö til þrjú atriði sem manni líður eins og hafi fallið á móti okkur. En þú þarft líka að skapa það sjálfur. Við vorum sjálfum okkur verstir í ákvörðunum,“ sagði Jónatan. „Við þurfum að skoða þennan leik og vinna í okkar hlutum áfram. Okkur vantar klárlega stig. Við ætluðum númer eitt að mæta til leiks og ekki missa hausinn eins og hefur gerst. Við höfum brotnað við fyrsta mótlæti en mér fannst það ekki gerast í dag. Það er framfaraskref. Við lögðum okkur virkilega vel fram og börðumst fyrir þessu. Það gekk ekki og þá þurfum við að reyna aftur í næsta leik.“
Olís-deild karla KA Stjarnan Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira