KA

KA

Fréttir af Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA, frá Akureyri.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA

Miðjumaðurinn efnilegi Magnús Dagur Jónatansson hefur sagt skilið við KA og er genginn í raðir ÍBV, nú þegar handboltaleiktíðin er nýhafin.

Handbolti
Fréttamynd

„Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóst­kassanum“

„Þetta var frábært, mér fannst við eiga þetta skilið. Við unnum fyrir þessu inn á vellinum. Þetta var bara gríðarlega mikilvægt, líka í ljósi hina úrslitanna þá var þetta ennþá mikilvægara. Þá líka bara að fá smá trú í liðið að ef við erum að sinna okkar að þá vinnum við leiki, þannig þetta var bara mjög sætt,“ sagði Ásgeir Sigurgeirsson leikmaður KA eftir 2-1 sigur gegn Breiðablik í dag. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Sýndum karakter og vilja“

„Ég mjög ánægður, mér fannst við gera hlutina ágætlega á köflum en svo datt þetta niður inn á milli en það sem við sýndum varðandi karakter og vilja í að sigla þessu heim er það sem stendur upp úr,“ sagði Eiður Smári Guðjonsen þjálfari KA eftir 2-1 sigur á Blikum í dag. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Full­komin byrjun eftir heim­komu Dags Árna

KA-menn unnu stórsigur í fyrsta leik tímabilsins í Olís-deild karla í handbolta þegar þeir heimsóttu HK-inga í Kórinn. Niðurstaðan varð 37-28 sigur gestanna frá Akureyri sem nutu þess að hafa fengið Dag Árna Heimisson aftur í sitt lið.

Handbolti
Fréttamynd

„Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“

KA beið lægri hlut gegn KR á Greifavellinum á Akureyri í dag í 20. umferð Bestu deildar karla í fjörugum leik. Lokatölur 5-3 en KR leiddi 4-2 í hálfleik. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í þjálfarateymi KA á dögunum og stýrði liðinu í fyrsta sinn í dag sem aðalþjálfari ásamt Hallgrími Jónassyni. Hann er ánægður með að vera mættur aftur á hliðarlínuna og fór yfir sína sýn á leikinn.

Íslenski boltinn