„Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ Ester Ósk Árnadóttir skrifar 6. september 2026 17:39 Ásgeir Sigurgeirsson. MYND/KA-SPORT.IS „Þetta var frábært, mér fannst við eiga þetta skilið. Við unnum fyrir þessu inn á vellinum. Þetta var bara gríðarlega mikilvægt, líka í ljósi hina úrslitanna þá var þetta ennþá mikilvægara. Þá líka bara að fá smá trú í liðið að ef við erum að sinna okkar að þá vinnum við leiki, þannig þetta var bara mjög sætt,“ sagði Ásgeir Sigurgeirsson leikmaður KA eftir 2-1 sigur gegn Breiðablik í dag.
Ásgeir var að spila sinn fyrsta leik síðan í fyrra en hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli. Hann kom inn á, á 78. mínútu. „Það var geggjað. Ég er búin að bíða eftir þessu mjög lengi, er búin að fara í gegnum erfiða mánuði og hélt að þetta væri bara búið. Ég er búin að fara í tvær aðgerðir, tvær sprautur, þrjár myndatökur og alltaf eitthvað vesen þannig að það var geggjað að koma inn á. Þetta hefur verið svona síðan í janúar þannig að ég er yfir höfuð bara mjög fegin að hafa náð mínútum og auðvitað sigrinum. Það er bara plús fyrir mig ef ég næ að hjálpa liðinu eitthvað.“ Það var mikill fögnuður hjá stuðningsfólki KA þegar Ásgeir kom inn á völlinn. „Það var yndislegt, þessi klúbbur er búin að gera þvílíkt mikið fyrir mig og mér finnst ég eiginlega bara skulda þeim aðeins. Þetta fer alveg djúpt í hjartað.“ Ásgeir var spurður út í hversu mikið hann getur spilað. „Í rauninni bara allt sem ég get hjálpað liðinu hvort sem það er að koma inn á í fimm mínútur eða við náum að teygja það fram í hálfleik eða hvernig sem það er. Það verður eiginlega bara að koma í ljós, bara hvað er best fyrir liðið og vinnum út frá því.“ Sigurinn í dag var mikilvægur fyrir KA sem er í harðri fallbaráttu. „Við fögnum þessum sigri en síðan þurfum við bara að átta okkur á því að við þurfum sigur í næsta leik. Ef við spilum svona eins og við höfum verið að spila undanfarið að þá fáum við þrjú stig. Ég hef bara mikla trúa á okkur sem lið. Maður er að koma inn á æfingar og finnur að það er hungur og við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum. Ef við höldum þessu áfram að þá hef ég ekki miklar áhyggjur.“ Eiður Smári Guðjohnsen hefur nú starfað við hlið Hallgríms Jónassonar sem þjálfari KA frá 19. ágúst. „Hann hefur komið mjög sterkur inn í þetta. Það sem hann hefur komið með mest af er trú. Hann er ekkert endilega með langar ræður eða fundi en það sem hann segir er stutt og laggott og hópurinn meðtekur það. Hann er búinn að vera frábær.“
KA Besta deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira