„Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Árni Gísli Magnússon skrifar 23. ágúst 2026 20:29 Eiður Smári Guðjohnsen er mættur aftur á hliðarlínuna. Vísir/Hulda Margrét KA beið lægri hlut gegn KR á Greifavellinum á Akureyri í dag í 20. umferð Bestu deildar karla í fjörugum leik. Lokatölur 5-3 en KR leiddi 4-2 í hálfleik. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í þjálfarateymi KA á dögunum og stýrði liðinu í fyrsta sinn í dag sem aðalþjálfari ásamt Hallgrími Jónassyni. Hann er ánægður með að vera mættur aftur á hliðarlínuna og fór yfir sína sýn á leikinn. „
Mér fannst margt jákvætt í því sem við gerðum fram á við og við sköpuðum bara nokkuð mikið af færum, eins og bæði lið, þetta var svolítið fram og til baka. Við vissum að þetta yrði svona rokk og ról fótbolti en það sem kannski pirrar mig mest er hvað við fáum á okkur mikið af mörkum auðveldlega, aðeins of auðveldlega. Við vorum ekki alveg nógu djarfir í að stíga upp í menn fyrr og bárum bara aðeins of mikla virðingu fyrir ákveðnum leikmönnum í þeirra liði sem verður bara til þess að þeir líta rosalega vel út,“ sagði Eiður Smári eftir leikinn. „Klárlega með frábært lið á íslenskan mælikvarða en það var margt mjög flott fram á við og að fá svona skell til að byrja með og koma til baka var mjög sterkt en eins og ég segi það gengur náttúrulega ekki að fá á sig níu mörk í síðustu tveimur leikjum, samt vera búnir að skora sjö. Þannig það er margt jákvætt en margt sem þarf að laga.“ KR skoraði frábær mörk í dag en Eiður hefði viljað sjá sitt lið veita þeim meiri mótspyrnu í varnarleiknum. „Já, að sjálfsögðu maður vill það og kannski aðeins þéttari og við hefðum kannski átt að bregðast við fyrr með því að færa svona miðjuna hjá okkur aðeins meira, sem sagt upp þeirra vinstri væng þar sem Aron Sigurðarson á það til að leita mikið og yfirmanna þau svæði. Við vissum það, við vorum bara ekki alveg nógu djarfir í að gera það líka,“ sagði Eiður Smári. „Aftur á móti þegar við unnum boltann og komum okkur út úr þeirra pressu þá sköpuðum við okkur mikið pláss öfugu megin á vellinum og ég var ánægður með það. Ég er líka ánægður með þriðja markið hjá okkur. Við erum einum færri og lendum í meiðslum í leiknum sem við megum alls ekki við á þessum tímapunkti, við viljum náttúrulega helst fá alla til baka því að við vitum alveg hversu mikilvægir leikir eru framundan. Að tapa fyrir KR er engin skömm eins og ég segi en við þurfum að byrja að safna stigum.“ Hæstánægður að ég hafi tekið þessa ákvörðun Eiður Smári talaði um að vera með fiðring í maganum við að vera mættur aftur á hliðarlínuna í viðtali fyrir leik. Eftir leik fór hann stuttlega yfir tilfinninguna að vera mættur aftur. „Auðvitað er þetta skemmtilegt, við erum í þessu til að safna stigum og vinna fótboltaleiki, sérstaklega hér á heimavelli. Þetta var bara meiriháttar og ég er svo hæstánægður að ég hafi tekið þessa ákvörðun að koma hingað. Ég er fullur tilhlökkunar. Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið þegar ég sá hvað boltinn lak auðveldlega í netið hjá okkur,“ sagði Eiður og hló áður en hann hélt áfram. „En það er ekkert að hengja haus. Bara taka þessu eins og menn, reyna að lagfæra smám saman einhverja hluti. Safna einhverjum stigum í síðustu tveimur leikjum áður en deildinni verður skipt upp.“ Þetta kerfi ekki nýtt fyrir mig Eiður Smári og Hallgrímur Jónasson eru báðir aðalþjálfarar liðsins eftir að Eiður kom inn í teymið á dögunum. Eiður segist vanur að vinna með það kerfi. „Ég hef oftast verið í þessu hlutverki þegar ég hef verið að þjálfa. Hvort sem það var með U-21 árs landsliðinu, þá var ég með Arnari Viðarssyni. Hjá FH var ég með Loga [Ólafsson] með mér og Sigurvin Ólafsson. Þetta er ekkert nýtt fyrir mér, við skiptum bara hlutverkum jafnt á milli okkar og reynum að hafa gott jafnvægi í því. Aðalatriðið er náttúrulega að koma skilaboðunum bara skýrt til leikmanna og við erum byrjaðir á því saman og munum gera það saman,“ sagði Eiður að lokum.
Besta deild karla KA KR Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira