Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu Árni Gísli Magnússon skrifar 17. september 2026 09:25 Fögnuðurinn var gríðarlegur hjá Þórsurum eftir sigurinn á erkifjendunum. Facebook/@thorhandbolti „Þetta var aldrei í hættu, við mættum vel innstilltir í þetta og bara kláruðum þennan leik, ógeðslega sáttur með þetta“ sagði Þórður Tandri Ágústsson, leikmaður Þórs eftir frábæran sigur á grönnunum í KA í Olís-deildinni í handbolta.
Lokatölur urðu 31-35 fyrir Þór eftir æsispennandi leik. Hvernig líður þér akkúrat núna? „Bara aldrei verið betri, bara aldrei“, sagði Þórður í gærkvöld og var augljóslega enn í sigurvímu. Þórsarar byrjuðu leikinn illa og voru 7-2 undir eftir níu mínútna leik. „Við vorum bara sofandi í byrjun og tempóið var lélegt og tókum bara leikhlé og byrjuðum svona að saxa á þetta hægt og rólega og svo bara fengum við stuðningsmennina með okkur og þá bara fór þetta að tikka.“ „Mér fannst við ekki alveg gíraðir einhvern veginn, allavega ég persónulega fann bara svona meiri eldmóð í mér þarna í seinni hálfleik og vorum að setja hnefann upp í stúku og þetta var bara sturlað.“ Urðu að sigra upp á stoltið Þór og KA mættust tvívegis í fyrra og hafði KA betur í fyrri leik liðanna en jafntefli varð niðurstaðan í seinni leiknum. Það má því með sanni segja að þessi sigur hafi verið kærkominn fyrir Þórsara. „Við urðum að vinna, bara upp á stoltið, og höfðum alveg fulla trú á þessu frá byrjun sko þó svo við byrjuðum illa og ætluðum okkur að sækja þessi tvo stig og vera með montréttinn.“ Þórður Tandri Ágústsson lét til sín taka í KA-heimilinu í gærkvöld.thorsport.is Dönsk nýlenda í Þorpinu Þórsliðið missti leiki oft niður í jafntefli eða tap á lokamínútunum á síðasta tímabili en lokamínúturnar í dag féllu svo sannarlega Þórs megin. „Við erum náttúrulega komnir með danska nýlendu hérna og þeir stigu bara hrikalega vel upp hérna í lokin og þeir eru allir geggjaðir og ógeðlega ánægður með þá þannig að bara já við erum með meiri breidd og erum bara meira tilbúnir í leikina finnst mér“. Þórsarar fengu fjóra unga danska leikmenn til liðs við sig fyrir tímabilið og skiluðu þeir allir sínu í gær. Þórður fer fögrum orðum um frændur sína. „Bara ekkert eðlilega vel, þetta eru bara toppmenn og menningin og svona er bara svipuð og þeir eru bara geggjaðir og ógeðslega góðir í handbolta, ógeðslega mikinn metnað, bara ógeðslega gott að hafa fengið þá hingað í Þorpið.“ Bertram Simonsen fékk rautt spjald í dag en það spjald er oft dregið upp í rimmum þessara liða. „Já ég hef gert það og það er aldrei gaman en það er bara mikill hiti og hann bara lærir af þessu.“
Olís-deild karla Þór Akureyri KA Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Sjá meira