Allir styrkirnir í RÚV-verkefni Fanndís Birna Logadóttir skrifar 16. apríl 2023 15:01 Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, segir framleiðslufyrirtækja á þeirra vegum hafa fengið þau skilaboð að ekki væri meira fjármagn í boði, það hafi allt farið til verkefna á fyrir RÚV. Vísir/Vilhelm Kvikmyndasjóður hefur verið tæmdur til Ríkisútvarpsins þetta árið en engin verkefni hjá öðrum miðlum virðast fá styrk. Framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum segir jafnræðis ekki gætt og að þetta sé enn eitt dæmið um slæma samkeppnisstöðu, en Ríkisútvarpið hafi þegar gríðarlegt forskot. Ríkið leiti lausna en það sé í raun vandinn.
Kvikmyndamiðstöð Íslands veitir árlega styrki úr kvikmyndasjóði, meðal annars fyrir leikið sjónvarpsefni. Fjögur verkefni eru á lista, þrjú þeirra; Vigdís, Danska konan og Ráðherrann 2, hafa fengið vilyrði fyrir 200 milljónum króna í heildina í ár. Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, segir að framleiðslufyrirtæki á þeirra vegum sem sótt hafi um hafi fengið þau svör að það væri ekki meira fjármagn til staðar. Þrjú verkefni hafa fengið vilyrði fyrir 200 milljónum króna á árínu. Öll verkefnin eru í samvinnu við Ríkisútvarpið. Aðrir aðilar hafa fengið þau svör að sjóðurinn fyrir árið 2023 sé tómur. „Það virðist vera að þessi vilyrði sem hafa verið gefin núna úr sjóðinum þetta ár fari öll til framleiðslufyrirtækja sem eru að vinna verkefni fyrir Ríkisútvarpið. Þannig áfram heldur þessi samkeppnisstaða okkar á einkareknu miðlunum að vera frekar sérkennileg, það er að segja að við sitjum alveg óbætt hjá garði þarna líka,“ segir Magnús en hann hefur áður gagnrýnt umsvif RÚV harðlega. Hingað til hafi það verið eins konar óskráð regla að reyna að ráðstafa fjármagninu betur, þannig að aðrir miðlar komist einnig að, en nú sé ekki gætt jafnræðis. Erfitt sé að standa fyrir öflugri framleiðslu á meðan Ríkisútvarpið yfirtekur sjóðinn en ríkið sé búið að ráðstafa öllum peningnum til síns sjálfs. Ríkisútvarpið hafi þá haft ærið forskot fyrir. „Þeim gengur miklu betur almennt að fjármagna verkefni í rauninni af því að þeir hafa þetta mikið fjármagn bara í ríkisstuðning í gegnum útvarpsgjöld. Síðan geta þeir notið endurgreiðslna, þeir geta notið Kvikmyndasjóðs, þeir eru í mjög sterku norrænu sölusamstarfi, forskotið er eiginlega út um allt,“ segir Magnús. Alþingi fjallar nú um nýtt frumvarp um stuðning til einkarekinna miðla og mun Magnús sjálfur mæta fyrir þingnefnd á þriðjudag. Verði ekkert gert er ljóst að áhrifin á einkarekna miðla verði mikil. „Það er svo sem ósköp einfalt, við munum bara þurfa að draga úr framleiðslu á meðan þeir stórauka framleiðslu, myndin bara skekkist meira og meira,“ segir hann. „Ríkið er að leita lausna, en ríkið er vandinn.“
Fjölmiðlar Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Ríkisútvarpið Síminn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Væri búin að taka RÚV af auglýsingamarkaði væri það lausnin Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og ferðamálaráðherra, segir daginn í dag hvorki vera góðan fyrir fjölmiðlun né lýðræði í landinu. Hún segir yfirvöld hafa stóraukið stuðning við einkarekna fjölmiðla og að hún væri búin að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði væri það lausnin við vanda fjölmiðla á borð við Fréttablaðið, sem gefið var út í hinsta sinn í morgun. 31. mars 2023 20:30 Fjölmiðlafrumvarpið áfangasigur: Vill RÚV af auglýsingamarkaði en jafnframt bæta tækjutapið „Ég tel að það þurfi að ganga lengra. Það sem mér finnst mjög mikilvægt er að samkeppniseftirlitið sé heilbrigt. Ég myndi vilja að RÚV væri ekki á auglýsingamarkaði en það hefur ekki náðst sátt um það hvernig við förum í þær breytingar.“ 26. maí 2021 10:48 Lilja boðar breytingu á skattaumhverfi frjálsra fjölmiðla Sérstök umræða um stöðu fjölmiðla fór fram á þinginu fyrr í dag. Þingflokksformaður Viðreisnar var málshefjandi. Flestir sammála um fyrirferð Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og kölluðu eftir heildstæðri stefnu ríkisstjórnarinnar í málinu. Ráðherra boðar skattaaðgerðir en vill ekki stofna „enn eina nefndina” til að greina stöðuna. 30. mars 2022 17:09 Síminn segir framtíð RÚV betur borgið utan samkeppnismarkaðar Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins leggur aftur fram frumvarp um að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Síminn fagnar framkomu málsins í umsögn og segir ánægjulega afleiðingu þess að hið opinbera fari af samkeppnismarkaði verði betra ríkisútvarp. „Ríkisútvarp þar sem dagskrárákvarðanir verða loks teknar af dagskrárstjóra en ekki auglýsingadeild.” 15. febrúar 2022 15:35 Telur galið að stóru fjölmiðlarnir fái ríkisstyrki Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Vodafone og Stöð 2 segir að sér finnist það galið að fyrirtæki á borð við Sýn og Árvakur, sem reki stóra fjölmiðla, njóti sérstaks ríkisstuðnings. Taka þurfi á fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði og erlendra aðila sem starfi samkvæmt öðrum leikreglum en innlend fyrirtæki á auglýsingamarkaði. 3. september 2021 15:57 Mest lesið Þúsundir hafi orðið af milljónum Innlent Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Erlent „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Innlent Moskítóflugan lifði kuldakastið af Innlent Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Erlent Velunnarar hefja söfnun fyrir ekkju Hjörleifs Innlent Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Erlent Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Erlent Hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki Innlent Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina „Aldrei fyrirgefanlegt þegar það er farið svona með opinbert fé“ Hjóluðu 1300 kílómetra meðfram Dóná með börnum sínum „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Kynlífsverkafólk í Norræna húsinu og tölvuspilandi eldri borgarar Moskítóflugan lifði kuldakastið af „Þorsti í auglýsingafé er talsverður hjá Ríkisútvarpinu“ Hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki Velunnarar hefja söfnun fyrir ekkju Hjörleifs Þúsundir hafi orðið af milljónum Hundrað þúsund færri kindur í dag en fyrir tíu árum Dökk mynd í byggingariðnaði, umsvif RÚV og fækkun fjár Losun gróðurhúsalofttegunda jókst í Reykjavík Húsnæðismálin og staða Ríkisútvarpsins Ölvaður undir stýri með börn í bílnum Kosningahugur í eigendum frístundahúsa Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Getur gervigreindarsmjaður leitt til gervigreindargeðrofs? Söguleg óvissa á fasteignamarkaði og meðvirk gervigreind Óttast að námsbraut verði undir verði af frumvarpinu Kostnaður við stjórnsýslu borgarinnar mun hærri en landsmeðaltalið Tveir fá heilablóðfall á hverjum degi á Íslandi Breytingar sem litlu breyta og mokstursmenn þakka veðurguðunum Líta eigi á eignir landsbyggðafólks í Reykjavík sem sumarbústaði Sendi síðasta bréfið degi áður en fellibylurinn gekk yfir Borgin tekur út framkvæmdir við Vesturbæjarlaug Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Tilkynnt um bíl fullan af flugeldum Valhöll auglýst til sölu Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Sjá meira
Væri búin að taka RÚV af auglýsingamarkaði væri það lausnin Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og ferðamálaráðherra, segir daginn í dag hvorki vera góðan fyrir fjölmiðlun né lýðræði í landinu. Hún segir yfirvöld hafa stóraukið stuðning við einkarekna fjölmiðla og að hún væri búin að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði væri það lausnin við vanda fjölmiðla á borð við Fréttablaðið, sem gefið var út í hinsta sinn í morgun. 31. mars 2023 20:30
Fjölmiðlafrumvarpið áfangasigur: Vill RÚV af auglýsingamarkaði en jafnframt bæta tækjutapið „Ég tel að það þurfi að ganga lengra. Það sem mér finnst mjög mikilvægt er að samkeppniseftirlitið sé heilbrigt. Ég myndi vilja að RÚV væri ekki á auglýsingamarkaði en það hefur ekki náðst sátt um það hvernig við förum í þær breytingar.“ 26. maí 2021 10:48
Lilja boðar breytingu á skattaumhverfi frjálsra fjölmiðla Sérstök umræða um stöðu fjölmiðla fór fram á þinginu fyrr í dag. Þingflokksformaður Viðreisnar var málshefjandi. Flestir sammála um fyrirferð Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og kölluðu eftir heildstæðri stefnu ríkisstjórnarinnar í málinu. Ráðherra boðar skattaaðgerðir en vill ekki stofna „enn eina nefndina” til að greina stöðuna. 30. mars 2022 17:09
Síminn segir framtíð RÚV betur borgið utan samkeppnismarkaðar Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins leggur aftur fram frumvarp um að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Síminn fagnar framkomu málsins í umsögn og segir ánægjulega afleiðingu þess að hið opinbera fari af samkeppnismarkaði verði betra ríkisútvarp. „Ríkisútvarp þar sem dagskrárákvarðanir verða loks teknar af dagskrárstjóra en ekki auglýsingadeild.” 15. febrúar 2022 15:35
Telur galið að stóru fjölmiðlarnir fái ríkisstyrki Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Vodafone og Stöð 2 segir að sér finnist það galið að fyrirtæki á borð við Sýn og Árvakur, sem reki stóra fjölmiðla, njóti sérstaks ríkisstuðnings. Taka þurfi á fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði og erlendra aðila sem starfi samkvæmt öðrum leikreglum en innlend fyrirtæki á auglýsingamarkaði. 3. september 2021 15:57