„Ansi dýrt áhugamál hjá einum karli“ Árni Sæberg skrifar 14. maí 2023 15:14 Katrín Oddsdóttir er lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Stöð 2/Arnar Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir einsýnt að stöðva þurfi hvalveiðar Íslendinga hið snarasta, ekki eingöngu vegna þess að fjárhagslegt tap er af þeim heldur einnig vegna gríðarlegra jákvæðra áhrifa hvala á loftslagið.
Greint var frá því í morgun á Vísi að Hvalur hf. hafi á árunum 2012 til 2021 tapað um þremur milljörðum króna á hvalveiðum sínum. Það má lesa út úr samantekt Gæðaendurskoðunar á ársreikningum Hvals tíu ár aftur í tímann. Katrín Oddsdóttir, lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir þær upplýsingar mikilvægar í umræðunni um hvalveiðar. „Ég held að þessi gögn um þetta rosalega tap á hvalveiðum sýni þessi mál í alveg nýju ljósi. Af því þarna eru rökin um að þetta sé eitthvað sem er gert í hagnaði farin út af borðinu. Auðvitað má Kristján Loftsson sólunda sínu fé eins og hann vill, það er svolítið spes samt að hans hluthafar nenni að sitja undir þessu, en það er samt í raun og veru íslenska þjóðin sem þarf að spyrja sig hvort við séum tilbúin til þess að taka þessa áhættu sem felst í hvalveiðum fyrir okkar orðspor og sérstaklega í ljósi þess að við erum með alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum.“ Sextíu milljarða kredit í loftslagsbókhaldinu Þar vísar Katrín til þeirrar staðreyndar að stórhveli binda gríðarlegt magn koltvísýrings, einfaldlega með því að vera til. Þannig segir í skýrslu sem unnin var fyrir sjóðinn að þegar kemur að bindingu koltvísýrings sé einn stór hvalur ígildi þúsunda trjáa. Þannig sé fjárhagslegt gildi hvers hvals að minnsta kosti tvær milljónir dala, eða um 275 milljónir króna. „Þegar Kristján er að taka þá ákvörðun um að drepa 144 hvali, eins og í fyrra, þá er það samkvæmt tölum, sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur verið að leggja til, um það bil sextíu milljarða króna skuld sem myndast í okkar loftslagsbókhaldi. Þannig að ég held að ef við tökum þetta saman þá sé þetta orðið ansi dýrt áhugamál hjá einum karli og ég held að við verðum bara að hafa hugrekki, og okkar stjórnvöld, til að stoppa þetta umsvifalaust í ljósi þessara nýju upplýsinga,“ segir hún. Þá segir Katrín að nauðsynlegt sé að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra taki tillit til þessara upplýsinga við ákvarðanatöku um mögulega afturköllun veiðileyfis Hvals hf. „Nú er dómaframkvæmdin að þróast þannig alþjóðlega að öllum stjórnvöldum ber rosalega rík skylda til að taka loftslagsmál inn í sínar ákvarðanir, þannig að það er ekki nóg að hugsa bara eitthvað: „Við erum að spá í stöðva hvalveiðar seinna, við ætlum að leyfa karlinum að fara út aftur.“ Nú þarf hún hreinlega að horfa á þessar tölur og þessa stóru mynd til þess að vera réttu megin við línuna í sinni ákvörðun,“ segir hún. Ekki hægt að afturkalla en framhaldið í lausu lofti Svandís sagði á dögunum að ekki væri hægt að afturkalla veiðileyfi Hvals hf. fyrir núverandi vertíð. Núverandi reglugerð um hvalveiðar renni hins vegar út eftir þetta veiðiár, og hún segir góðan rökstuðning þurfa til þess að halda veiðunum áfram. „Til þess að halda áfram hvalveiðum þá þarf að rökstyðja það mjög vel. Nú erum við að viða að okkur gögnum sem lúta að dýravelferð, gögnum sem lúta að hlutverki hvala í vistkerfum og áhrif veiðana á loftslagsmál. Við erum að viða að okkur gögnum varðandi efnahagsleg áhrif af hvalveiðum. Þannig að í þessu eins og öðru vil ég undirbyggja mína ákvörðun mjög vel og ég hef sagt það áður að sönnunarbyrðin hvílir á þeim sem vilja halda þessu áfram.“
Hvalveiðar Umhverfismál Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn Loftslagsmál Dýr Tengdar fréttir „Enginn að leika sér að veiða þessi dýr svo að þau þjáist“ Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir það gríðarlegt hagsmunamál að Hvalur hf. fái að halda áfram hvalveiðum sínum næstu árin. Að meðaltali hafi 90 starfsmenn Hvals verið félagsmenn í verkalýðsfélaginu á síðustu vertíð. Hann spyr sig hvaða veiðar skuli næst banna á grundvelli dýraverndunarsjónarmiða. 12. maí 2023 11:27 Gætu dregið ríkið fyrir dóm vegna aðgerðaleysis Náttúruverndarsamtök skoða nú hvort þau geti dregið íslenska ríkið fyrir dómstóla fyrir aðgerðaleysi í hvalveiði- og loftslagsmálum. Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir undiröldu gegn hvalveiðum allt öðruvísi nú en undanfarin ár. 9. maí 2023 07:01 „Ef þetta væri sláturhús væri því lokað tafarlaust“ Stjórnarmaður Dýraverndarsambands Íslands segir skýrt koma fram í nýrri skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar að óásættanlega hátt hlutfall veiddra hvala hafi þjáðst. Hann segir að ef þarna væri einhver önnur matvælaframleiðsla á ferð væri löngu búið að stöðva þetta. 8. maí 2023 15:07 Veiðileyfið ekki afturkallað fyrir árið en skýrslan gæti haft áhrif á framhaldið Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir nýja skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar við Íslandsstrendur vekja upp spurningar hvort endurskoða þurfi hvort atvinnugreinin tilheyri fortíðinni frekar en framtíð. Ekki sé þó hægt að afturkalla veiðileyfi fyrir þetta sumar. 8. maí 2023 16:44 Hvalkjöt fyrir 2,8 milljarða króna til kaupenda í Japan Um 2.600 tonn af íslensku hvalkjöti eru væntanleg með skipi til Japans um miðja þessa viku og er þetta mesta magn hvalaafurða sem flutt hefur verið út frá Íslandi í 35 ár. Útflutningsverðmætið nemur um 2,8 milljörðum króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. 6. febrúar 2023 21:50 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
„Enginn að leika sér að veiða þessi dýr svo að þau þjáist“ Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir það gríðarlegt hagsmunamál að Hvalur hf. fái að halda áfram hvalveiðum sínum næstu árin. Að meðaltali hafi 90 starfsmenn Hvals verið félagsmenn í verkalýðsfélaginu á síðustu vertíð. Hann spyr sig hvaða veiðar skuli næst banna á grundvelli dýraverndunarsjónarmiða. 12. maí 2023 11:27
Gætu dregið ríkið fyrir dóm vegna aðgerðaleysis Náttúruverndarsamtök skoða nú hvort þau geti dregið íslenska ríkið fyrir dómstóla fyrir aðgerðaleysi í hvalveiði- og loftslagsmálum. Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir undiröldu gegn hvalveiðum allt öðruvísi nú en undanfarin ár. 9. maí 2023 07:01
„Ef þetta væri sláturhús væri því lokað tafarlaust“ Stjórnarmaður Dýraverndarsambands Íslands segir skýrt koma fram í nýrri skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar að óásættanlega hátt hlutfall veiddra hvala hafi þjáðst. Hann segir að ef þarna væri einhver önnur matvælaframleiðsla á ferð væri löngu búið að stöðva þetta. 8. maí 2023 15:07
Veiðileyfið ekki afturkallað fyrir árið en skýrslan gæti haft áhrif á framhaldið Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir nýja skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar við Íslandsstrendur vekja upp spurningar hvort endurskoða þurfi hvort atvinnugreinin tilheyri fortíðinni frekar en framtíð. Ekki sé þó hægt að afturkalla veiðileyfi fyrir þetta sumar. 8. maí 2023 16:44
Hvalkjöt fyrir 2,8 milljarða króna til kaupenda í Japan Um 2.600 tonn af íslensku hvalkjöti eru væntanleg með skipi til Japans um miðja þessa viku og er þetta mesta magn hvalaafurða sem flutt hefur verið út frá Íslandi í 35 ár. Útflutningsverðmætið nemur um 2,8 milljörðum króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. 6. febrúar 2023 21:50