Kaleo: Ekki spila í Ísrael Hópur stuðningsfólks frjálsrar Palestínu og aðgerðasinna BDS á Íslandi skrifar 1. júní 2023 13:01 Í ár eru 75 ár síðan hundruðir þúsunda íbúa Palestínu voru hraktir frá heimalandi sínu, heimili þeirra jöfnuð við jörðu og landi þeirra stolið í þeim tilgangi að stofna Ísraelsríki. Síðan þá hafa ísraelsk stjórnvöld hernumið stærstan hluta Palestínuríkis, hrakið milljónir á flótta, skipulega myrt fólk og börn. Í 75 ár hafa mannréttindi palestínsku þjóðarinnar verið brotin, hún þvinguð til að búa við hernám og aðskilnaðarstefnu á sama tíma og þjóðernishreinsun stendur yfir. Árið 2005 tók palestínska þjóðin þá ákvörðun að berjast fyrir tilvistarrétti sínum, mannréttindum og landi með því að kalla eftir alþjóðlegri samstöðu um sniðgöngu, efnahagsþvinganir og afturköllun fjárfestinga í Ísrael. Þessi alþjóðlega hreyfing gengur undir nafninu BDS (boycott, divestment & sanctions) og er stýrt af palestínsku þjóðinni. Hreyfingin skorar á þjóðir, fyrirtæki, samtök og einstaklinga um heim allan að sniðganga Ísrael þar til stjórnvöld þar í landi fylgja alþjóðalögum og virða mannréttindi palestínsku þjóðarinnar að fullu. Fyrirmynd ákallsins um sniðgöngu eru þær friðsamlegu aðferðir sem beitt var gegn Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Slíkar aðferðir áttu sinn þátt í að stjórnvöld þar í landi létu loks af aðskilnaðarstefnu sinni. Ísraelskar mennta- og menningarstofnanir taka beinan þátt í að viðhalda, verja og hvítþvo kúgun ísraelskra stjórnvalda á palestínsku þjóðinni. Í gegnum listir, menningu og íþróttir reyna ísraelsk stjórnvöld gagngert að fegra ímynd sína á alþjóðavettvangi á meðan brotið er á mannréttindum palestínsku þjóðarinnar á bak við tjöldin. Það gera þau til dæmis með því að taka þátt í evrópsku söngvakeppninni og með því að halda listahátíðir og tónleika með alþjóðlegum stórstjörnum. Þess má geta að í Eurovision vikunni í ár voru meira en 30 einstaklingar myrtir í Palestínu, þeirra á meðal börn, og fleiri en hundrað voru særð í árásum ísraelskra stjórnvalda. Á sama tíma fegraði Ísrael blóðuga ímynd sína og orðspor með söng, dansi og glimmeri. Vegna yfirgripsmikils hvítþvottar ísraelskra stjórnvalda á glæpum sínum hefur um árabil verið kallað eftir sniðgöngu á sviði lista og menningar, eins og á öðrum sviðum. Á meðal þess sem kallað hefur verið eftir er að listafólk komi ekki fram í Ísrael á meðan ísraelsk stjórnvöld láta ekki af aðskilnaðarstefnu og stríðsglæpum og virða ekki mannréttindi palestínsku þjóðarinnar. Sífellt stækkandi hópur listafólks neitar að koma fram eða sýna list sína í Ísrael. Á meðal þeirra sem hafa afþakkað boð um að koma fram eða hætt við að koma fram eru Lana Del Ray, Lorde, Roger Waters, Elvis Costello, Natalie Imbruglia, Stevie Wonder, Lauryn Hill og nú síðast Sam Smith, sem ætlaði að koma fram í Ísrael núna í lok maí en hætti við stuttu fyrir tónleikana. Þá skrifuðu árið 2021 meira en 600 einstaklingar sem starfa við tónlist undir áskorun til annars tónlistarfólks um að koma ekki fram í Ísrael, að taka ekki þátt í hvítþvotti ísraelskra menningarstofnana og styðja frelsisbaráttu palestínsku þjóðarinnar. Á meðal þeirra sem skrifuðu undir þá áskorun voru Rage Against the Machine, Cypress Hill, Run the Jewels, Black Thought og Questlove í the Roots, Serj Tankian í System of a Down, Julian Casablancas í the Strokes og Patti Smith. Þar að auki hafa 1500 írskir einstaklingar sem starfa í listum og menningu skrifað undir heiti þess efnis að koma ekki fram í Ísrael og þiggja ekki styrki frá stofnunum sem hafa tengsl við ísraelsk stjórnvöld þar til ísraelsk stjórnvöld virða alþjóðalög og mannréttindi palestínsku þjóðarinnar. Á meðal þeirra sem hafa skrifað undir undir eru Stephen Rea, Sinéad Cusack, Donal Lunny, Andy Irvine, Damien Dempsey, Sharon Shannon, Robert Ballagh, Mary Black og Kíla, Kevin Barry, Sally Rooney, Steve Wickham, Derbhle Crotty, Paul Duane og Eugene O’Hare. CMAT, Pillow Queens, Kneecap, Cherym, Array Collective og Katie Kim. Að kalla eftir sniðgöngu gegn Ísrael er sú aðferð sem palestínska þjóðin hefur óskað eftir að alþjóðasamfélagið styðji. Um er að ræða friðsamlega aðferð sem nýtur stuðnings víða um heim, líka á sviði lista og menningar. Um er að ræða áhrifaríka leið til þess að styðja palestínsku þjóðina í baráttu sinni sem hefur staðið yfir í 75 ár. Kæru meðlimir hljómsveitarinnar Kaleo, við hvetjum ykkur til þess að hætta við tónleikana ykkar í Ísrael í júní, við hvetjum ykkur til þess að sýna palestínsku þjóðinni stuðning í baráttu sinni fyrir tilvistarrétti sínum, við hvetjum ykkur til þess að taka afstöðu gegn stríðsglæpum og þjóðernishreinsun og taka ekki þátt í hvítþvotti ísraelskra stjórnvalda, við hvetjum ykkur til þess að grafa ekki undan mannréttindabaráttu palestínsku þjóðarinnar og styðja frjálsa Palestínu! Fyrir hönd stuðningsfólks frjálsrar Palestínu og aðgerðasinna BDS á Íslandi, Ahd Tamimi Alda Örlygur Villiljós Andrés Ingi Jónsson Anna María Ingibergsdóttir Anna Þorsteinsdóttir Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Auður Magndís Auðardóttir Ásdís Virk Sigtryggsdóttir Áslaug Elísa Daníelsdóttir Áslaug Björk Ingólfsdóttir Berglind Sveinbjörnsdóttir Birkir Blær Laufdal Kristinsson Bjarki Þór Magnússon Bjarki Óðinsson Bjarki Fjarki Rúnar Gunnarsson Björk Vilhelmsdóttir Björn Sighvatsson Bissan Heiðarsdóttir Tamimi Brynjar Jóhannesson Edda Aradóttir Edda Jóhannsdóttir Eldar Ástþórsson Dagný Baldvinsdóttir Drífa Snædal Einar Friðjónsson (krautzwel) Elía Hörpu Önundarbur Elín Signý Ragnarsdóttir Elsa Dóróthea Daníelsdóttir Elsa Jónsdóttir Embla Sól Þórólfsdóttir Erlingur Sigvaldason Erpur Þórólfur Eyvindsson Eva Kaaber Eyjólfur B Eyvindarson - Sesar A Falasteen Abu Libdeh Fida Abu Libdeh Fífa Sigfúsdóttir Georg Brynjarsson Guðbrandur Loki Rúnarsson Guðfinnur Sveinsson Guðný Nielsen Guðrún Margrét Guðmundsdóttir Guðrún Sif Friðriksdóttir Gunnar Hrafn Jónsson Gunnar Örvarsson Gyða Pétursdóttir Hafdís Ólafsdóttir Hafrún Sigurðardóttir Halldóra Sigrún Ásgeirsdóttir Hallur Ingólfsson Haraldur Daníelsson Harpa Lind Róbertsdóttir Haukur Logi Jóhannsson Helga Björk Haraldsdóttir Hildur Harðardóttir Hildur Rós Guðbjargardóttir Hildur Maral Hjálmar Snorri Jónsson Hjálmtýr Heiðdal Hlédís Sveinsdóttir Hreinn Magnússon Hrönn Rúnarsdóttir Inga Sveinsdóttir Iðunn Jónsdóttir Íris Ellenberger Íris Björk Kristjánsdóttir Ingibjörg Tamimi Sigurjónsdóttir Jasmín Guðrún Abu Libdeh Jóhann Gunnar Hansen Jóhanna Guðmundsdóttir Jóhanna Vilborg Ingvarsdóttir Karen Briem Karen Ástudóttir Kristjánsdóttir Katrín María Kristinn Vignir Helgason Kristín Einarsdóttir Kristín Þóra Haraldsdóttir Kristín Sveinsdóttir Laufey M Long Sumarliðadóttir Lára Jónsdóttir Leifur Dam Leifsson Logn Yndu Magga Stína Magnús Magnússon Margrét Gauja Magnúsdóttir María Dórótea Jóhannsdóttir María Ösp Ómarsdóttir Marín Árnadóttir Majd Abu Libdeh María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp María Tamimi Mist Rúnarsdóttir Nadia Tamimi Nazima Tamimi Nína Hjálmars Oddur Jónsson Oddur Sigurjónsson Pálína Guðrún Harðardóttir Pétur Geir Steinsson Qussay Odeh Ragnheiður Freyja Rakel Dögg Tamimi Rawda Sól Odeh Róbert Risto Hlynsson Cedergren Saga Kjartansdóttir Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir Sanna Magdalena Mörtudóttir Sara Mansour Sara Ósk Vífilsdóttir Sema Erla Serdaroglu Selma Reynisdóttir Sigríður Elfa Sigurðardóttir Sigrún Jónsdóttir Sigrún Kristínar Valsdóttir Sigrún Tómasdóttir Sigurlín Guðmundsdóttir Sigþrúður Guðmundsdóttir Skúli Vilhjálmsson Skúli Ragnar Skúlason Sólveig Anna Jónsdóttir Sólveig Ásta Sigurðardóttir Sólveig Ástudóttir Daðadóttir Sólveig Fríða Kjærnsted Steinunn Rögnvaldsdóttir Sveinn Rúnar Hauksson Sverrir Páll Sverrisson Tanja Mjöll Ísfjörð Theodór Þór Ingason Tinna Helgadóttir Tómas Jón Sigmundsson Valgerður Árnadóttir Valgerður Stella Kristjánsdóttir Vigfús Karl Steinsson Wala Abu Libdeh Zeljka Kristín Klobucar Þorgerður Gunnarsdóttir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Þórdís Ylfa Þórsdóttir Þuríður Sóley Sigurðardóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Palestína Ísrael Kaleo Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun