Grindavík vann slaginn um Suðurstrandaveginn Smári Jökull Jónsson skrifar 22. júní 2023 21:30 Grindavík vann góðan sigur í dag. Knattspyrnudeild UMFG/Petra Rós Grindavík vann 3-1 sigur á Ægi í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Þá unnu Þróttarar góðan endurkomusigur gegn Gróttu.
Grindavík lagði mikið í sölurnar fyrir tímabilið í Lengjudeild karla og fékk til liðs við sig sterka leikmenn. Óskar Örn Hauksson sneri heim á Suðurnesin og ljóst að Grindvíkingar ætluðu sér ekkert nema upp í Bestu deildina. Fyrir leikinn gegn Ægi í Þorlákshöfn í dag var Grindavík í 5. sæti, átta stigum á eftir toppliði Aftureldingar sem situr á toppnum. Ægir var hins vegar í neðsta sæti með aðeins eitt stig eftir sjö umferðir. Símon Logi Thasaphong var maðurinn á bakvið sigur Grindavíkur í dag. Hann kom liðinu í 2-0 í fyrri hálfleik áður en Ivo Pereira Braz minnkaði muninn fyrir Ægi. Símon Logi fullkomnaði hins vegar þrennu sína snemma í síðari hálfleik og Grindavík vann 3-1 sigur. Þróttarar komu til baka gegn Seltirningum Í Laugardal tóku heimamenn í Þrótti á móti Gróttu. Grímur Ingi Jakobsson kom Gróttu yfir á 8. mínútu og Grótta hélt forystunni allt þar til rúmar tíu mínútur voru eftir. Þá vöknuðu Þróttarar af blundi sínum og tryggðu sér sætan endurkomusigur. Hinrik Harðarson jafnaði metin í 1-1 á 78. mínútu og þremur mínútum síðar skoraði Jorgen Pettersen sigurmark heimamanna. Lokatölur 2-1 og Þróttur jafnar þar með Gróttu að stigum en bæði lið eru með 10 stig um miðja deild.
Lengjudeild karla Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum Körfubolti Fleiri fréttir Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira