Guðbjörg Jóna einu sæti frá því að komast áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2023 07:46 Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir endaði í 24. sæti af 30 keppendum í undanrásum í 100 metra hlaupi. Getty/Buda Mendes Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir komst ekki upp úr undanrásum í 100 metra hlaupi kvenna á Evrópumeistaramóti undir 23 ára sem hófst í Finnlandi í morgun.
Guðbjörg Jóna var reyndar nokkuð frá sínu besta og kom í mark á 11,92 sekúndum. Íslandsmet hennar er 11,56 sekúndur og hún hafði hlaupið best á 11,70 sekúndum í ár. Sá tími hefði dugað henni til að komast áfram í undanúrslitin en tvær síðustu sem komust upp úr hennar riðli hlupu á 11,73 og 11,75 sekúndum. Guðbjörg endaði í fjórða sæti í sínum riðli en þrjár fyrstu konur í hverjum riðli komust áfram í undanúrslit og síðan fjórir hröðustu tímarnir eftir það. Riðill Guðbjargar var hægari en hinir og því átti hún aldrei möguleika á því að vera með einn af fjórum hröðustu tímunum. Hún var því eftir á að hyggja í riðli sem gaf betri von um að komast áfram en náði ekki að nýta sér það til að ná einu af þremur efstu sætunum. Viðbót: Riðill Guðbjargar var með meiri mótvind en hinir riðlarnir (-1,3) og það er ein af ástæðunum fyrir því að tímarnir voru slakari í honum. Guðbjörg Jóna endaði í 24. sæti í undanrásunum af þrjátíu keppendum.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille KR - Njarðvík | Toppslagur í Vesturbænum O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Gerpla fullkomnaði frábæra bikarhelgi Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Rodman í heiðurshöll WWE Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Ármann fékk skell í kveðjugjöf Tryggvi fagnaði eftir trylli í Pýreneafjöllum Sjá meira