Spennan í hámarki fyrir lokadaginn Leikið um landið 28. september 2023 13:47 Lokadagur leiksins Leikið um landið er í dag. Í gær leystu keppendur þrautir á Egilsstöðum og á Akureyri. Spennan er í hámarki fyrir lokadag leiksins Leikið um landið en kvöld ráðast úrslitin. Þegar keppnin hélt áfram í gærmorgun leiddi lið FM957 keppnina en bæði Bylgjan og X977 voru skammt undan og því ljóst að staðan gæti breyst í lok dags.
Í Leikið um landið skorar starfsfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 á hvert annað í skemmtilegum þrautabrautum víða um land. Þriðji keppnisdagur fór fram á Egilsstöðum og á Akureyri en keppt var í þremur þrautum. Klippa: Leikið um landið - þriðji keppnisdagur Fyrst kepptu liðin í kapphlaupi með egg í skeið en keppnin fór fram á Berjaya hotel á Egilsstöðum. Óhætt er að segja að mikið hafi gengið á þar sem jafnvel svindl og bellibrögð hafi komið við sögu. Lið X977 sigraði en eftir hávær mótmæli ákvað dómarinn að endurtaka keppnina. Það hafði engin áhrif á lokaniðurstöðuna, Tommi Steindórs leiddi lið X977 aftur til sigurs en ekki mátti miklu muna. Einbeittir keppendur með egg í skeið. Næstu skelltu keppendur sér út í góða veðrið. Þar tók við næsta þraut sem var að kasta öxi í mark. Augljóst var að keppendur höfðu mismikinn bakgrunn í þessari íþrótt utan Ingimars frá X977 sem leiddi lið sitt til sigurs með tveimur glæsiköstum. Lokaþrautin var kokteilakeppni sem fór fram á Berjaya hotel á Akureyri. Keppendur sýndu fín tilþrif á bak við barborðið og útbjuggu þrjá ólíka kokteila. Barþjónn hótelsins var dómari og átti hann erfitt með að velja á milli kokteila Bylgjunnar og FM957. Úr varð þó að Bylgjan sigraði með kokteilnum Björt og brosandi! Lið Bylgjunnar ætlaði svo sannarlega að vinna kokteilakeppnina og það gerður þær með kokteilnum Björt og brosandi! „Þetta var bourbon kokteill með mörðum eplum, stjörnuanís, sítrónusafa og sykursýrópi, sannkölluð birta í glasi,“ sögðu þær Bylgjusystur Þórdís og Sigga sem voru himinlifandi með sigurinn. „Við vorum búnar að ræða mikið um hvaða drykkur væri fullkominn fyrir Bylgjuna og það skilaði okkur sigri. Tilfinningin var æðisleg!“ Kokteill Bylgjunnar sigraði keppnina en hann heitir Björt og brosandi! Hann inniheldur m.a. marin epli, stjörnuanís, sítrónusafa og sykursýróp.FM957 bauð upp á grænan FM gimlet sem endaði í öðru sæti eftir harða keppni við Bylgjuna.X977 rak lestina en átti samt skemmtilegasta nafnið: Fjólublátt ljós við barinn. Eftir þriðja keppnisdag leiðir FM957 keppnina með 46 stig, X977 eru með 41 stig og Bylgjan er í þriðja sæti með 37 stig. Einn æsispennandi keppnisdagur er eftir og í kvöld verður ljóst hvaða lið ber sigur út býtum. Lokadagur keppninnar fer fram í dag á Akureyri og í Staðarskála. Fyrst taka keppendur þátt í leik þar sem hver útvarpsstöð keppir um að gefa Nespresso kaffivél á sem skemmstum tíma og í Staðarskála verður keppt í leiknum Veistu hver ég er? Liðsmenn X977 fara yfir málin. Liðið er í öðru sæti fyrir lokadaginn og á raunhæfan möguleika á sigra haldi þeir rétt á spilunum. Lið útvarpsstöðvanna þriggja eru skipuð tveimur þátttakendum. Lið Bylgjunnar skipa þær Sigga Lund og Þórdís Valsdóttir, lið FM957 skipa Egill Ploder og Rikki G og fyrir hönd X977 keppa Tommi Steindórs og Ingimar. Hægt er að fylgjast með leiknum á Instagram X977 , FM957 og Bylgjunnar og liðin verða einnig með innkomur í loftinu við hverja þraut.
Leikið um landið Bylgjan FM957 X977 Mest lesið Lærimeistari Charlie Kirk og faðir klappstýru nútímans látinn Lífið Ein veirusýking sneri öllu lífinu á hvolf Lífið Krakkatía vikunnar: Mario, vöfflur og ólöghlýðinn kisi Lífið Landsliðsmaður í ADHD sem lifir á húmornum Lífið Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Lífið Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Lífið Nicholas Brendon er látinn Lífið Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Lífið Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Lífið Fór lögblind í gegnum doktorsnám Lífið Fleiri fréttir Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira