Komst ekki inn á Evrópumótaröðina Smári Jökull Jónsson skrifar 15. nóvember 2023 18:31 Haraldur Franklín Magnús á mótinu sem fór fram í Tarragona á Spáni. Vísir/Getty Haraldur Franklín Magnús náði ekki að tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni í golfi en úrtökumóti fyrir mótaröðina lauk í dag. Haraldur lauk keppni í 76. sæti.
Haraldur komst í gegnum niðurskurðinn á úrtökumótinu en alls voru leiknir sex hringir. Fyrir daginn í dag sat Haraldur ásamt fjórum öðrum kylfingum í 66. sæti úrtökumótsins. Aðeins þeir sem enda í efstu 25 sætunum í úrtökumótinu vinna sér inn þáttökurétt á Evrópumótaröðinni, en séu fleiri en einn kylfingur jafnir í 25. sæti fá þeir allir sæti á mótaröðinni. Það var því á brattann að sækja í dag og ljóst að Haraldur þyrfti að leika sitt allra besta golf til að eiga möguleika á að fara áfram. Það tókst því miður ekki. Haraldur átti sinn versta hring á mótinu hingað til og lék hringinn á sex höggum yfir pari. Hann lauk því mótinu á pari samtals og í 76. sæti í heildina. Aðeins þeir sem léku á fjórtán höggum undir pari eða betur tryggðu sér sæti á mótaröð næsta árs.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira