Rússar boða til forsetakosninga í mars Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. desember 2023 10:10 Vladimír Pútín, Rússlandsforseti til margra ára, hefur ekki gefið upp hvort hann hyggst bjóða sig fram að nýju. Alexei Nikolsky/AP Efri deild rússneska þingsins samþykkti í dag að boða til forsetakosninga þann 17. mars næstkomandi. Allir 162 þingmennirnir í efri deildinni samþykktu tillöguna.
Reuters hefur eftir Valentinu Matviyenko, forseta þingsins, að með þessu sé kosningabaráttan í landinu hafin. Þá segir hún að íbúar í Donetsk, Luhansk, Zaporizhzhya og Kherson fái að kjósa í fyrsta sinn. Um er að ræða landssvæði sem Rússar hertóku í austurhluta Úkraínu árið 2014 og síðar, í trássi við alþjóðalög. Matviyenko segir alla Rússa deila sameiginlegri ábyrgð þegar kemur að því að velja forseta. Vladimír Pútín hefur verið forseti landsins síðan árið 2012. Þá tók hann við af Dimitry Medvedev, samflokksmanni sínum, sem sjálfur tók við af Pútín árið 2008. Þeir gegndu svo forsætisráðherraembættinu á meðan hinn gegndi forsetaembættinu. Sama kjörtímabil, 2008 til 2012, var kjörtímabil forseta svo lengt um tvö ár, úr fjórum árum í sex. Áður hafði Pútín verið forseti frá árinu 2000 til 2008 en rússnesk lög kváðu á þeim tíma um það að forseti mætti ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil samfleytt. Ríkisstjórn Pútín breytti þeim lögum árið 2020 þannig að nú getur forsetinn boðið sig fram aftur, vilji hann það. Fram kemur í frétt Reuters að Pútín hafi enn ekki tilkynnt opinberlega um framboð.
Rússland Vladimír Pútín Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira