Ísland fyrir ofan Noreg í fyrsta sinn Sindri Sverrisson skrifar 15. desember 2023 11:31 Íslenska landsliðið vann þrjá leiki í haust en tapaði þremur. Liðið er það 15. besta í heimi samkvæmt styrkleikaröðun FIFA. vísir/Diego Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fellur niður um eitt sæti á heimslista FIFA en nýr listi var birtur í dag. Spánn er á toppi listans í fyrsta sinn.
Ísland var í 14. sæti á listanum sem birtur var 25. ágúst síðastliðinn og hefur aldrei verið eins ofarlega á listanum. Frá því að síðasti listi var birtur hefur Ísland spilað sex leiki í Þjóðadeild UEFA, þar sem liðið vann tvo sigra gegn Wales og svo frækinn útisigur gegn Danmörku fyrir tíu dögum. Liðið tapaði hins vegar tveimur leikjum gegn Þýskalandi og heimaleiknum gegn Danmörku. Danmörk fellur einnig niður um eitt sæti og er í 13. sæti, en Ítalía fór upp um þrjú sæti og komst upp fyrir Ísland í 14. sæti. Norska stórveldið heldur áfram að falla Stelpurnar okkar eru hins vegar komnar upp fyrir Noreg í fyrsta sinn í sögunni. Norska landsliðið á einn heimsmeistaratitil, tvo Evrópumeistaratitla og einn ólympíumeistaratitil í sínu safni en hefur aldrei verið eins neðarlega á heimslistanum, eða í 16. sæti, eftir fall niður um þrjú sæti á milli lista. Spánn komst í efsta sæti listans í fyrsta sinn, Bandaríkin eru í 2. sæti, Frakkland í 3. sæti og England í 4. sæti. Svíar voru áður á toppi listans en féllu niður um fjögur sæti, eftir meðal annars tvö töp gegn Spáni og eitt gegn Sviss í Þjóðadeildinni nú í haust. Noregur og Svíþjóð eru á leið í umspil á milli liða úr A- og B-deild Þjóðadeildarinnar í febrúar, líkt og Ísland sem mætir þá Serbíu í tveimur leikjum. Þessar þrjár Norðurlandaþjóðir enduðu allar í 3. sæti síns riðils í A-deildinni.
Landslið kvenna í fótbolta Þjóðadeild kvenna í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira