Ímyndaðu þér nýja alheimsstjórn Gunnar Dan Wiium skrifar 11. janúar 2024 17:01 Ok, ímyndið ykkur að samfélög og ríki jarðarinnar, uppbygging þeirra séu orðin ósjálfbær og óskilvirk í augum örfárra ofurríkra, ofurgreindra, þó líklega samkenndaskertra hagsmunaraðila. Einstaklingar sem telja aðeins í hundruðum mynda hóp og skipuleggja framtíð mannkyns. Þeir funda og greina frá þeim upplýsingum sem hafa öðlast með þeim verkfærum sem þeir búa yfir. Þeir skiptast á upplýsingum og gera líkön, framtíðarspár sem kynntar eru sem raunveruleiki sem þeir vilja meina að bíður okkar án efa. Þeir sjá þyngsl þessara opinberu kerfa allra þessara þjóða og orkuna sem fer til spillis í árekstrum þessara kerfa sem virðast í eðli sínu bara verða hægari, slitnari og plássfrekari eftir því sem á líður. Hópurinn ákveður að þessu verði að breyta og breytingin mun ekki eiga sér stað innan ríkja eða í neinu milliríkjasamstarfi heldur verður breytingin að verða rótæk sem þýðir í raun endanleg útrýming ríkja og stofnun nýs, fæðing alheimsstjórnar, eitt ríki sem trompar allar flækjur og fleytir rjóman, eitt ríki sem með vörnum getur verið laus við allar sýkingar heimsins. Sýkingar sem snúa að frjálsum vilja einstaklingsins, frjálshyggju og eignarhaldi svo eitthvað sé nefnt. Það að einstaklingur geti átt peninga eða eignir felur í sér ákveðið vald og sama gildir með ólík viðhorf og skoðanir. Fyrir þeim er eignarupptaka lykill. Það að einstaklingar geti átt sér skoðanir sem stangast á við hið nýja heimsskipulag felur líka í sér vald einstaklingsins og tala nú ekki um að ef að margir slíkir safnast saman gætu þeir orðnir vísir til byltingar. Þá erum við komin að því, hvernig gæti svona aðgerð litið út eiginlega? Það þarf að gera gjaldeyri að hverfulu og óstöðugu afli sem hægt er að velta og því eru vissum höftum og reglum kollvarpað í nafni kapítalisma og millistéttinn sköpuð fyrir alvöru og skuldsett upp í rjáfur. Þetta gerist ekki á einni nóttu heldur er þetta forritunar-ferli sem tekur áratugi en þegar því er lokið er eins og “þetta” hafi alltaf verið svona og “þetta” því hljóti aðeins að eiga vera svona og alls ekki öðruvísi, félagshyggja og kommúnismi er slæmur og skerðir frelsi okkar, er mantran en samtímis stígum við í takt, hlekkjuð og takmörkuð. Heimurinn minnkar með tilkomu internets og flæði upplýsinga í gegnum frétta og samfélagsmiðla kallar á rétt eignarhald á þeim örfáu miðlum sem virka sem uppspretta allra frétta um allan heim, ríkismiðlar éta það upp sem og frjálsir fjölmiðlar og það sem einu sinni þótti frétta og blaðamennska flokkast nú sem fámennur hópur “rannsóknar blaðamanna”, hálfgerðir bóhemar, óstögugir og korter í burnout. Hópurinn er líka með plan hvað það varðar því hlaðvörp og þættir sem varpa röddum sem mögulega benda á meint samsæri verða fljótlega þaggaðar niður í með nýjum samning sem allar þessar “soon to be” gjaldþrota þjóðir skrifa undir. Samningurinn verður kynntur sem nauðsyn og kynntur af lepp djúpstjórnarinnar sem eitthvað alþjóða eitthvað, heilbrigðisstofnun eða álíka. Það er snilldar plan, leppurinn snýr að heilbrigðismálum og lýðheilsu. Þeir gera þessa stofnun svo nauðsynlega, kærkomna með tilkomu hættulegrar veiru sem er kannski ekkert svo hættuleg, svona eins og mjög skæð flensa og fólk deyr af skæðum flensum, og hefur alltaf gert. Frábært plan, þeir sleppa veirunni og bíða átekta, allt eftir bókinni. Svo skellur hann á, heimsfaraldur kalla þeir það, eitthvað sem aldrei hefur gerst í nútímanum þar sem kerfið á heimsvísu getur tekið utan um þig og borið ábyrgð á þér, hið alþjóðlega heilbrigðiskerfi sér um þetta og gefur öllum litlu þjóðunum ráð og leiðbeiningar og annað skal hunsa. Þeir sem végfengja eða efast um sannleiksgildi upplýsinga þessara einstöku sérfræðinga sem vita allt betur en allir aðrir sérfræðingar eru kallaðir út sem hættulegir samsæris-kenningasmiðir með ranghugmyndir og geðrof. það er ekki reynt að gera ráð fyrir að þeir skilja ekki staðreyndir málsins og fræddir fyrir vikið því þeir eru nú einu sinni líka akademikarar og sérfræðingar. Þeim er ekki boðið á málþingið þar sem gegnsæ umræða fer fram heldur er þeim bolað úr partýinu og sviptir mannorði og svo loks ef þeir ekki draga sig í land og hætta þessari vitleysu verða þeir bara sviptir starfsleyfi. Faraldurinn tröllríður allar þjóðir og með áróðri og réttum fréttaflutningi eru öllu skellt í lás á meðan þessir örfáu, þessir sem eru meira klárari en allir hinir (sem eru líka klárir bara ekki jafn klárir) finna lausn með hjálp nútímavísinda. Og hér duga engin venjuleg nútímavísindi heldur svona framtíðar-nútíma-vísindi hefur með erfða-splæs að gera en til að hræða ekki múginn köllum við það bara vax eða bóluefni því bóluefni eru eitt af stærsta vísindaundri mannsins og hefur bjargað milljónum úr klóm ógeðslegra sjúkdóma, á því leikur í alvöruni engin vafi. Hver sem hinn endanlegi tilgangur þessara efna er veit aðeins þessi fámenni hópur, eða kannski það sem er ennþá ógnvænlegra er að kannski vita þeir ekki hver lokaniðurstaðan er enn það kannski skiptir ekki máli því skammtar í milljörðum voru seldir hálf gjaldþrota ríkjum og án ábyrgðar um nokkurn skapaðan hlut. Lyfjaframleiðsla sem öll er í eigu þessa örfáu ofurríkra, ofurgreindra, þó líklega samkenndaskertra hagsmunaraðila sem mynda hópinn sem ég bað ykkur að ímynda okkur í byrjun græðir milljarða milljarða og engin leið er að saksækja eða leita réttar þegar efnið númer eitt ekki virkar sem smitvörn né þegar þeir sem þáðu “bóluefnið” hrynja niður ýmist dauðir eða í almennt heilsuleysi. Bara gott hliðar-plan sem gerði þá ríku sjúklega miklu ríkari og ríkin fátækari. Eftir standa þau, þessi í hópnum og þessari tilraun er lokið og hún gekk super vel. Upplýsingar eru greindar og gerð eru líkön og samningur út frá nýjum forsendum er settur fram sem snýr að lýðheilsu heimsins. Samningurinn felur í sér að stjórnarskrár-legum réttindum einstaklingsins er tekin úr jöfnunni í nafni almannahagsmuna, “en bara þegar þar á við” Samningurinn felur í sér að í vissum tilfellum, svokölluðum “krísu” tilfellum sem aðeins þessir sem eru klárari en hinir kláru geta skilgreint, geti alþjóða heilbrigðis eitthvað sett reglur hvað varðar þetta og hitt og allt er þeim opið 360 gráður til túlkunar. Við getum talað um veirufaraldur sem kallar á að þau “bóluefni” sem þau ákveða að séu viðeigandi verði ekki ekki lengur valkvæður kostur heldur að allir þegnar þeirra ríkja sem skrifuðu undir verði skyldugir til “bólusetningar” algjörlega á skjön við rétt ritaðan í stjórnarskrá hver lands fyrir sig, samningurinn trompar stjórnarskrá. Sama getur verið upp á teningnum í umhverfismálum sem snýr að skerðingu ferðafrelsis í nafni einhvers konar carbon-kvóta sem linkað er við social credit hvers og eins. Samningurinn gæti einnig falið í sér skilgreiningu og viðeigandi úrræði hvað varðar hatursorðræðu. Þar komum við að hlaðvörpum og sjálfstætt starfandi einstaklinga sem “sigla” á móti straumnum og greina frá fréttum eða deila upplýsingum sem stangast á við hvað “sérfræðingar sérfræðingana” segja. Þetta er þegar hafið á samfélagsmiðlum og má sjá ef “álhatturinn” deilir efni sem stangast á við gefnar forsendur, þá er settur fyrirvari á upplýsingarnar og þess vegna viðkomandi settur í bann ef hann ekki hagar sér eftir að hafa fengið viðvörun. Þetta er í raun bara forritun og hún felur í sér að finna skilgreindar villur sem ógna upprunarlegum tilgangi og markmiðið þess forrits sem um ræðir. Forritið er svo uppfært reglulega til að mæta nýjum kröfum sem og að vírusvarnir eru til staðar til að halda forritinu eins skilvirku og léttu og mögulegt er. Þetta eru atvinnumenn og vita upp á hár hvað þeir eru að gera, ímyndum okkur það. Ég er ekki að biðja ykkur um neitt annað en að ímynda ykkur að það sem svo margir hafa skrifað um í sögum sínum sé að raungerast fyrir framan nefið á okkur. Ég er ekki að biðja ykkur neitt annað en að ímynda ykkur nema í eitt augnablik að við höfum verið plötuð upp úr skónum í nafni lýðheilsu og samfélagslegrar ábyrgðar og að vélin sé nánast tilbúin og aðeins sé beðið eftir rétta tækifærinu til að snúa lyklinum og þá er allt orðið of seint í þeim skilning að ekkert verður sem fyrr. Þá munum við þurfa að aðlagast nýjum veruleika þar sem frelsi til tjáningar, túlkunar, ferðalaga og sköpunar er ekki lengur í boði. Frelsi til að búa yfir mismunandi skoðunum og ólíkum viðhorfum verður ekki lengur í boði. List verður ekki lengur í boði. Hefðbundin og eðlislæg fjölskyldugildi sprengd í tætlur því eina fjölskyldan þín er sú sem skaffar þér það eina sem þú þarft og hvað þú þarft er fyrirfram ákveðið af fjölskyldu þinni, alheims-stjórninni. Hvað ef þú munt ekkert eiga en þú munt verða hamingjusamur? Höfundur starfar sem búðarkall og þáttarstjórnandi Þvottahússins og Hampkastsins og umboðsmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Dan Wiium Mest lesið Hamfarir Hildar – seinni hluti Haraldur Freyr Gíslason Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir Skoðun Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Menntamálin sem við forðumst að ræða Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Verkakonuskattur leikskólakerfisins Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar loforð duga ekki: Leikskólakerfið í Kópavogsbæ Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Um kennaranám Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Reynsla Íslands á erindi við umheiminn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar Skoðun Frelsi felst í fleiri valkostum Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Viljum við að fatlað fólk mennti sig? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Bið, endalaus bið Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kársnesið okkar á betra skilið Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að missa pláss í eigin landi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fleiri talmeinafræðinga og biðlistana burt Tinna Steindórsdóttir skrifar Skoðun Verkakonuskattur leikskólakerfisins Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Læsiskennsla á unglingastigi Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rannveig Oddsdóttir,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Félagslegt húsnæði og ójöfnuður á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Á hvaða ferðalagi er Sjálfstæðisflokkurinn? Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Eru börnin okkar örugg á götum bæjarins? Björn Sighvatsson skrifar Skoðun Menning gerir bæi að spennandi stöðum til að búa á Sunnefa Elfarsdóttir skrifar Sjá meira
Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar
Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Læsiskennsla á unglingastigi Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rannveig Oddsdóttir,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun