Mannréttindadómstóllinn vísar máli Hussein frá Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. janúar 2024 17:29 Hussein Hussein, ásamt fjölskyldu sinni. Sajjad Hussein, Yasameen Hussein, Maysoon Al Saedi, Zahraa Hussein. Þau eru öll nú í Grikklandi. Vísir/Vilhelm Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lýst kæru íranska hælisleitandans Hussein Hussein og fjölskyldu hans ótæka til efnismeðferðar og vísað henni frá. Einnig hefur dómstóllinn ákveðið að aflétta bráðabirgðastöðvun á flutningi Hussein frá Íslandi til Grikklands.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef dómsmálaráðuneytisins. Þar segir að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi greint ríkislögmanni fyrir hönd íslenska ríkisins frá afléttingu bráðabirgðastöðvunarinnar og niðurfellingu kærunnar. Í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins segir að fjölmiðlar hafi á fyrri stigum haldið almenningi upplýstum um gang þessa dómsmáls og það hlotið töluverða athygli. Því þyki rétt að upplýsa um málalyktir. Íslensk stjórnvöld synjuðu fjölskyldunni upprunalega um alþjóðlega vernd hér á landi á þeim forsendum að þau væru þegar með slíka vernd í Grikklandi. Kæra fjölskyldunnar til Mannréttindadómstóls Evrópu byggði á því að málsmeðferð íslenskra stjórnvalda og brottvísun fjölskyldunnar úr landi hefði falið í sér brot á réttindum þeirra samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu. äÁkvörðun dómstólsins um að taka kæruna ekki til efnismeðferðar er endanleg,“ segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins.
Mannréttindadómstóll Evrópu Flóttamenn Hælisleitendur Mál Hussein Hussein Málefni fatlaðs fólks Mannréttindi Tengdar fréttir Hussein yfirgaf Ísland ásamt fjölskyldu sinni Hælisleitandinn Hussein Hussein, sem er í hjólastól, ákvað á síðustu stundu að yfirgefa Ísland og fór með fjölskyldu sinni til Grikklands í gær. Fjölskylduvinur segir að Hussein hafi ekki getað hugsað sér að dvelja hér án fjölskyldu sinnar, sem vísað var úr landi. Aðstæður séu ömurlegar hjá þeim úti. 3. desember 2023 11:59 Óttast að Hussein verði „einn í íbúðinni, fastur í rúminu“ ÖBÍ réttindasamtök fordæma ómannúðlega ákvörðun íslenska ríkisins um að skilja Hussein Hussein, fatlaðan umsækjanda um alþjóðlega vernd, frá fjölskyldu sinni. Lögfræðingur fjölskyldunnar segir Hussein ekki tryggð nein þjónusta við brottför fjölskyldunnar. 27. nóvember 2023 16:02 Mannréttindadómstóllinn frestar brottflutningi Husseins og fjölskyldu Mannréttindadómstóll Evrópu kvað í dag upp úrskurð þess efnis að ekki mætti vísa Hussein Hussein og fjölskyldu af landi brott fyrr en í fyrsta lagi 21. nóvember næstkomandi. 31. október 2023 18:17 Leitar að hjólastólavænum bíl fyrir brottvísanir Ríkislögreglustjóri bindur vonir við að embættið geti fest kaup á eða leigt bifreið, sem hentar fólki sem notast við hjólastól, á fyrri hluta þessa árs. Slíka bifreið sé nauðsynlegt fyrir embættið að hafa þurfi það að flytja einstaklinga í hjólastól. 31. janúar 2023 10:31 Brottvísun Husseins fer fyrir Landsrétt Dómsmálaráðuneytið áfrýjaði dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð kærunefnda útlendingamála um brottvísun Husseins Husseins, fatlaðs flóttamanns frá Írak, til Landsréttar. Lögmaður Husseins segir miður að dómnum verði áfrýjað enda hafi hann verið í stíl við annan nýlegan dóm. 6. janúar 2023 14:38 Hussein kominn til landsins og fagnaði sigri í héraðsdómi Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að úrskurður kærunefndar útlendingamála sem synjaði Hussein Hussein, hælisleitanda frá Írak, og fjölskyldu hans um endurupptöku á hælisumsókn hafi byggst á ólögmætum rökum. Felldi hann úrskurðinn úr gildi. 12. desember 2022 15:06 Segir réttinda Hussein ekki gætt við handtöku Freyja Haraldsdóttir, réttindagæslumaður fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, segir áhyggjuefni að Hussein Hussein, fötluðum flóttamanni frá Írak, hafi ekki verið gefinn beinn aðgangur að réttindagæslu- og lögmanni eftir handtöku. Lögmaður Husseins undirbýr nú kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna málsins. 3. nóvember 2022 07:18 Handtekin og vísað úr landi án nokkurs fyrirvara þrátt fyrir veikindi Hópur lögreglumanna vaktaði heimili fimm manna fjölskyldu frá Írak sem búsett er hér á landi en til stendur að vísa þeim úr landi. Claudia Wilson, lögmaður fjölskyldunnar lýsir yfir áhyggjum sínum vegna brottvísunarinnar, þá sérstaklega vegna hrakandi heilsu Hussein sem er fatlaður og notar hjólastól. 2. nóvember 2022 20:58 Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Innlent Fleiri fréttir Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Sjá meira
Hussein yfirgaf Ísland ásamt fjölskyldu sinni Hælisleitandinn Hussein Hussein, sem er í hjólastól, ákvað á síðustu stundu að yfirgefa Ísland og fór með fjölskyldu sinni til Grikklands í gær. Fjölskylduvinur segir að Hussein hafi ekki getað hugsað sér að dvelja hér án fjölskyldu sinnar, sem vísað var úr landi. Aðstæður séu ömurlegar hjá þeim úti. 3. desember 2023 11:59
Óttast að Hussein verði „einn í íbúðinni, fastur í rúminu“ ÖBÍ réttindasamtök fordæma ómannúðlega ákvörðun íslenska ríkisins um að skilja Hussein Hussein, fatlaðan umsækjanda um alþjóðlega vernd, frá fjölskyldu sinni. Lögfræðingur fjölskyldunnar segir Hussein ekki tryggð nein þjónusta við brottför fjölskyldunnar. 27. nóvember 2023 16:02
Mannréttindadómstóllinn frestar brottflutningi Husseins og fjölskyldu Mannréttindadómstóll Evrópu kvað í dag upp úrskurð þess efnis að ekki mætti vísa Hussein Hussein og fjölskyldu af landi brott fyrr en í fyrsta lagi 21. nóvember næstkomandi. 31. október 2023 18:17
Leitar að hjólastólavænum bíl fyrir brottvísanir Ríkislögreglustjóri bindur vonir við að embættið geti fest kaup á eða leigt bifreið, sem hentar fólki sem notast við hjólastól, á fyrri hluta þessa árs. Slíka bifreið sé nauðsynlegt fyrir embættið að hafa þurfi það að flytja einstaklinga í hjólastól. 31. janúar 2023 10:31
Brottvísun Husseins fer fyrir Landsrétt Dómsmálaráðuneytið áfrýjaði dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð kærunefnda útlendingamála um brottvísun Husseins Husseins, fatlaðs flóttamanns frá Írak, til Landsréttar. Lögmaður Husseins segir miður að dómnum verði áfrýjað enda hafi hann verið í stíl við annan nýlegan dóm. 6. janúar 2023 14:38
Hussein kominn til landsins og fagnaði sigri í héraðsdómi Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að úrskurður kærunefndar útlendingamála sem synjaði Hussein Hussein, hælisleitanda frá Írak, og fjölskyldu hans um endurupptöku á hælisumsókn hafi byggst á ólögmætum rökum. Felldi hann úrskurðinn úr gildi. 12. desember 2022 15:06
Segir réttinda Hussein ekki gætt við handtöku Freyja Haraldsdóttir, réttindagæslumaður fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, segir áhyggjuefni að Hussein Hussein, fötluðum flóttamanni frá Írak, hafi ekki verið gefinn beinn aðgangur að réttindagæslu- og lögmanni eftir handtöku. Lögmaður Husseins undirbýr nú kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna málsins. 3. nóvember 2022 07:18
Handtekin og vísað úr landi án nokkurs fyrirvara þrátt fyrir veikindi Hópur lögreglumanna vaktaði heimili fimm manna fjölskyldu frá Írak sem búsett er hér á landi en til stendur að vísa þeim úr landi. Claudia Wilson, lögmaður fjölskyldunnar lýsir yfir áhyggjum sínum vegna brottvísunarinnar, þá sérstaklega vegna hrakandi heilsu Hussein sem er fatlaður og notar hjólastól. 2. nóvember 2022 20:58