Gamlar erjur tóku sig upp á Þorrablóti Stjörnunnar Jakob Bjarnar skrifar 30. janúar 2024 15:08 Grunnt er á því góða milli Brynjars og Vilhjálms og tóku þær erjur sig upp á Þorrablóti Stjörnunnar um helgina. vísir/vilhelm Uppistandari á Þorrablóti Stjörnunnar, Helgi Brynjarsson sonur Brynjars Níelssonar, lét Vilhjálm Vilhjálmsson lögmann ekki slá sig út af laginu þegar hann vildi fá orðið. Það er ef marka má Smartland Moggans.
Samkvæmt heimildum Vísis var nokkur ölvun á Þorrablóti Stjörnunnar sem haldið var á föstudagskvöldinu og virtist sem gestir hafi flestir hverjir farið í fyrirpartí áður en þeir mættu vel hressir til leiks í íþróttahús Stjörnunnar í Mýrinni í Garðabæ – TM-höllina svokölluðu. Var þar mikill kliður en á blótið voru mættir margir frammámenn svo sem Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og fór vel á með þeim, ef marka má fréttaflutning Smartlandsins af samkvæminu. „BDSM-lögmaður Íslands“ „Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður býr í Garðabæ og heiðraði blótið með nærveru sinni. Hann er mikill Gucci-aðdáandi og mætti í leðurjakka frá ítalska tískuhúsinu. Vilhjálmur fer aldrei út úr húsi nema var eins og klipptur út úr ítölsku tískublaði og þannig var það líka í gærkvöldi. Tom Ford-gleraugun settu punktinn yfir i-ið,“ segir Smartlandið. Vilhjálmur Vilhjálmsson lögfræðingur var mættur í Gucci-leðurjakka með Tom Ford-gleraugu, sem settu punktinn yfir i-ið, að sögn Mörtu Maríu.vísir/vilhelm Veislustjóri var sjálfur Brynjar Níelsson, lögmaður og nú sérfræðingur fjármálaráðuneytisins, en sonur hans Helgi Brynjarsson skemmti auk GDRN. Hrafnkell Pálmarsson, Maggi Diskó og Guðrún Árný skemmtu einnig og þá lék hljómsveitin Bandmenn fyrir dansi. En gamlar erjur tóku sig upp milli veislustjórans og áðurnefnds Vilhjálms. Í frásögn pistlahöfundar Smartlandsins atvikaðist þetta svona: „Nóttin reyndi að líta í kringum sig og reyna að finna einhverja álitlega. Best leist henni á Villa Vill lögfræðigún en það versnaði því því þegar hann fór að æpa á kollega sinn Helga Brynjarsson (son Brynjars Níelssonar) sem var með uppistand. Ástæðan var ummæli þess fyrrnefnda um Jón Baldvin. Það dó eitthvað innra með Nóttinni þegar Helgi sagði: „Er einhver gæsla hérna? Það er BDSM- lögmaður Íslands að trufla showið mitt Getið þið fjarlægt hann?“ Geta gert betur en fengið Brynjar sem veislustjóra Vilhjálmur telur ekki rétt með farið, þegar þessi skrif eru borin undir hann en segir að sér sé svo sem sama hvað Mogginn skrifi: „Mér finnst bara að Stjarnan og Garðabær geti gert betur en fengið Brynjar Níelsson sem veislustjóra kvöldsins og ég tala nú ekki um þegar sonur hans kemur á eftir honum og hefur lítið fram að færa annað en guma af því að vera sonur pabba síns. Hann mætti líta sér nær áður en hann fer að vega að mannorði annars fólks,“ segir Vilhjálmur sem vill að öðru leyti lítt ræða þetta atvik: „Það er til fullt af frambærilegu fólki í Garðabæ til að sinna þessu, meðal annars margar öflugar konur sem hefðu leyst þetta með miklum sóma. Það hefði farið betur á því.“ Brynjar segir son sinn Helga alltaf hafa getað svarað fyrir sig.Sjálfstæðisflokkurinn Brynjar horfir ekki á þetta sömu augum og Vilhjálmur. Hann segir mikinn klið hafa verið í salnum, erfitt hafi verið að fá hljóð. Þeir feðgar hafi verið fengnir á verði eins, tveir fyrir einn. Helgi, sem er lögmaður og starfsmaður þingsins, hafi ekki verið að skemmta að ráði en hann hafi þó slegið í gegn meðal annars á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins og á Landsfundi sem uppistandari. Því hafi þótt góð hugmynd að fá hann til að troða upp við þetta tækifæri en sumir telja Garðabæinn nánast heimavöll Sjálfstæðisflokksins. Baldwin-bræður og leðurklæddur stjörnulögmaður Brynjar segist ekki hafa heyrt nákvæmlega hvað fram fór en strákurinn hafi verið með eitthvað grín um þá Baldwin-bræður, Alec, Daniel, William, and Stephen … og Jón. Helgi Brynjarsson, lögmaður og grínisti.Lagastoð „Það virðist hafa farið eitthvað í pirrurnar á Villa sem labbar upp að sviðinu og gólar á hann einhverju sem enginn heyrir nema Helgi sonur minn. Hann truflar uppistandið. Helgi kann að svara fyrir sig. Ég heyrði ekki nákvæmlega hvað þeim fór á milli, eitthvað um að hann þyrfti vernd fyrir þessum leðurklædda stjörnulögmanni.“ Vilhjálmur hvarf við svo búið í sæti sitt. Grunnt er á því góða milli þeirra Brynjars og Vilhjálms sem má rekja til staðhæfinga þess síðarnefnda um flokkspólitíska fléttu; að Brynjar hafi gefið eftir sæti sitt á lista flokksins í Reykjavík til Sigríðar Á Andersen á sínum tíma, sem var svo skipuð dómsmálaráðherra, gegn því að hún myndi skipa konu Brynjars sem dómara við Landsrétt. Svo fór að Sigríður þurfti að segja af sér vegna breytinga á skipan dómara en hún skipti fjórum út af lista hæfnisnefndar og fjórum öðrum inn, þeirra á meðal Arnfríði Einarsdóttur, konu Brynjars. Brynjar segir nákvæmlega ekkert hæft í kenningunni. Hún fái bara engan veginn staðist.
Þorrablót Stjarnan Lögmennska Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira