„Við ætlum okkur alla leið“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 9. apríl 2024 07:31 Ísak Snær á Kópavogsvelli í gær. vísir/einar Breiðablik fékk mikinn liðsstyrk um nýliðna helgi er Ísak Snær Þorvaldsson snéri aftur í lið Blika. Hann var besti leikmaður efstu deildar er hann spilaði síðast á Íslandi.
Hinn 22 ára gamli Ísak Snær kemur á láni frá norska félaginu Rosenborg en þangað var hann einmitt seldur frá Blikum eftir að hafa farið mikinn með Blikum sumarið 2022. „Það var ákvörðun hjá mér og Rosenborg að koma mér á ról aftur. Fá smá „restart“ og koma mér í stand eftir kviðslitsaðgerð,” sagði Ísak Snær við íþróttadeild í gær en hann spilaði síðast í janúar. Biðin utan vallar hefur því verið löng. „Þetta er búið að vera basl frá síðustu leiktíð. Þessi endurkoma hefur verið í umræðunni í mánuð. Þetta kláraðist samt ekki fyrr en á föstudag og því var ég fljótur að pakka og fljúga heim. Það er gott að koma heim í Kópavoginn.“ Klippa: Gott að koma heim í Kópavog Eftir erfiða mánuði í meiðslum í Noregi segir Ísak það vera gott að koma heim og vera aftur með Blikafjölskyldunni sinni. Hann mun ekki spila með Blikum gegn FH í kvöld en mun reima á sig skóna mjög fljótlega. „Ég er mjög spenntur fyrir sumrinu og deildin hefur líklega aldrei verið sterkari. Það er eins og koma heim til fjölskyldunnar að koma aftur í Blika. Þetta er góður hópur,“ segir leikmaðurinn ánægður. „Planið er að taka nokkrar mínútur um næstu helgi. Svo bara vinnum við út frá því. Komast hægt og rólega aftur á fullt. Þetta Blikalið ætlar sér alla leið. Það kemur ekkert annað til greina. Við vitum hvað við getum og það er bara alla leið.“
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Dagskráin í dag: Verður markamet efstu deildar karla bætt? Sport „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ Sjá meira