Halla telur langt í að fólk sé búið að ákveða sig Jakob Bjarnar skrifar 22. apríl 2024 17:18 Halla Tómasdóttir biður fólk að bíða eftir þó ekki væri öðru en að það liggi fyrir hverjir verði í framboði. vísir Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var á ferð um Suðurnes þegar Vísir náði í hana. Hún var að ganga inn á kosningafund á Hótel Keflavík. Hún sagði viðtökurnar á Suðurnesjum slíkar að ef væri miðað við þær væri hún með miklu meira fylgi en menn almennt ætla.
Skoðanakannanir að benda til að það stefni í fjögurra fáka keppni í baráttunni um Bessastaði; milli þeirra Baldurs Þórhallssonar, Katrínar Jakobsdóttur, Höllu Hrundar Logadóttur og Jóns Gnarr. En Halla segir alltof snemmt og vill spyrja að leikslokum. Hún segir að þjóðinni sé vel treystandi til að velja sér forseta, það hafi hún sýnt og svo sé einnig nú. En sé litið til skoðanakannana þá virðist eins og þú sért hálfgleymd? „Já, ég held reyndar að við erum alltof snemma í því að skera úr um hverjir blanda sér í baráttuna þegar ekki er einu sinni komið í ljós hverjir verða í framboði,“ sagði Halla. Sjónvarpsumræður breyta miklu Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ísdrottningin sjálf, komst í hús með undirskriftirnar í dag og er þá sú níunda til þess. „Og mér skilst að 2. maí muni kjörnefnd kveða um hver sé löglegur og 3. maí mun svo RÚV vera með kappræður. Ég tel að mikið muni breytast þá,“ sagði Halla. Og þannig var það fyrir átta árum þegar hún var í framboði. Halla bauð sig einnig fram til forseta Íslands árið 2016 og hlaut þá næstflest atkvæði, eða tæp 28 prósent. Guðni Th. Jóhannesson hlaut þá flest atkvæði, eða rúmlega 39 prósent, og var kjörinn forseti. „Já, það var þá þegar hlutirnir breyttust fyrir mig. Ég finn það að þegar ég er að hitta fólk fyrir um land allt og á fundum, yngra fólki og eldri borgurum, á vinnustaðafundum, að meirihlutinn er óákveðinn og vill sjá frambjóðendur í samtali. Ég er þeirrar skoðunar, að það skipti öllu máli að fá að sjá okkur í samtali hvert með öðru.“ Halla segist því anda rólega. Hún sé ekki vön að láta skoðanakannanir ráða för. Heldur fer hún nú um og reynir að skilja hvaða mál brenna á fólki og leyfi því að kynnast mér. „Það gengur enginn að neinu fólki vísu fyrr en það sér okkur saman í setti, ef ég má nota það orðalag.“ Byggjum brýr en ekki skurði Halla hefur ekki tölu á öllum þeim fundum þar sem hún hefur verið að hitta fólk en aðallega hefur hún verið á landsbyggðinni að undanförnu. Hún hefur hitt fyrir mikið af ungu fólki og svo eldra fólki. „Ég trúi á þörfina fyrir kynslóðatal og finn fyrir áhyggjum eldra fólks, sem finnst það afskipt og ekki síður því yngra sem bera lítið traust til þeirra sem fara með völdin í samfélaginu.“ Halla segir að einkum séu það andleg mál sem þar brenni en hún skrifaði einmitt grein á Vísi sem birtist í dag og fjallar um þau mál. „Mér finnst að við ættum að vera duglegri í að byggja brýr en skurði,“ segir Halla og vísar til þess að hún telji samfélagsmiðla eiga sök í máli þegar litið er til sjálfskaða sem ungir hafa viljað vinna sér sjálfum. En þú óttast það ekkert að það sé alltof langt í næsta mann, sé litið til skoðanakannana? „Það eina sem ég óttast er óttinn og ég hef reynt að temja mér það. Ég finn frekar fyrir tilhlökkun, þegar það samtal byrjar. Ég heyri á fólki að það er ekkert endilega þannig að það sé búið að gera upp hug sinn. Fólk bíður eftir þessu og ótímabært að úrskurða um hverjir eru að gera sig gildandi fyrr en við vitum hverjir eru í framboði og þar til við sjáum frambjóðendur í samtali.“
Forseti Íslands Forsetakosningar 2024 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira