„Ég fékk alla vega mat í dag“ Sindri Sverrisson skrifar 23. apríl 2024 13:31 Ásdís Karen Halldórsdóttir, fyrir miðju, fagnar marki í LSK-höllinni en hún er að stíga sín fyrstu skref sem atvinnumaður í fótbolta. LSK Kvinner/Björn Marström „Auðvitað er ekkert gaman að þetta sé í fréttunum en þetta hefur alla vega ekki áhrif á okkur leikmenn eins og er.“ Þetta segir fótboltakonan Ásdís Karen Halldórsdóttir, leikmaður Lilleström í Noregi, eftir slæmar fréttir af fjárhagsstöðu félagsins.
Félagið sem rekur kvennalið Lilleström, og er aðskilið karlaliðinu, tilkynnti í gær að ráðist hefði verið í aðhaldsaðgerðir vegna slæmrar fjárhagsstöðu. Norskir miðlar sögðu félagið hreinlega ramba á barmi gjaldþrots. „Þetta hljómar kannski verr en þetta er. Þetta hefur alla vega engin raunveruleg áhrif á okkur leikmennina. Það fara aðstoðarþjálfarar í 50% vinnu í einhvern tíma en þeir eru nú alveg sjö talsins held ég. Skrifstofufólkið á svo að vinna heiman frá, en það hefur heldur ekki áhrif á okkur eins og er,“ segir Ásdís. Loforð um að staðan hafi engin áhrif á leikmenn Það sem gæti haft áhrif á hana og liðsfélagana eru færri tímar í LSK-fótboltahöllinni, þar sem liðið spilar sína heimaleiki, auk þess sem til skoðunar er að leikmenn fái ekki lengur fríar máltíðir: „Ég fékk alla vega mat í dag,“ segir Ásdís hlæjandi. „Ég veit ekki hvort það verður hætt með mat fyrir okkur en þeir sögðu okkur að það yrði kannski gert á mánudögum og þriðjudögum. Aðra daga sjá styrktaraðilar um matinn fyrir okkur,“ bætir hún við, tiltölulega áhyggjulaus yfir stöðunni. „Það var bara venjuleg æfing í dag. Auðvitað var svolítið skrýtið að hafa fullt af fréttamönnum og svona, en annars var þessi dagur ekkert öðruvísi en aðrir. Það er búið að fullvissa okkur um að allt sé gert til þess að þessi staða hafi engin áhrif á okkur. Vonandi fá þeir bara styrki eins og verið er að leita eftir.“ Þurfa að borga fyrir tíma í höllinni Fyrir Íslendinga gæti það hljómað einkennilega að kvennalið Lilleström skuli ekki vera hluti af sama félagi og karlaliðið. En þetta þýðir til að mynda að kvennaliðið þarf að borga fyrir tíma í LSK-höllinni og þeim tímum mun nú fækka. „Við þurfum kannski að taka einhverjar æfingar utanhúss, á gervigrasvelli, en ég kvarta ekki yfir því núna þegar það er að koma sumar. Þetta eru tvö alveg aðskilin félög. Kvennaliðið þarf meira að segja að borga fyrir hverja einustu æfingu þannig að þó að þetta sé okkar heimavöllur þá kostar hver tími þar. Þetta er bara eins og ef að kvennalið Vals þyrfti að borga fyrir hverja æfingu á Hlíðarenda,“ segir Ásdís. Best í fyrsta leiknum sem atvinnumaður Lilleström endaði í 3. sæti í fyrra og í vetur fékk félagið meðal annars Ásdísi til sín, en þessi 24 ára landsliðskona kom frá Íslandsmeisturum Vals. Það lítur því ekki út fyrir að félagið hafi verið að draga saman seglin eftir síðustu leiktíð: „Nei, nei. Það komu tvær úr finnska landsliðinu á sama tíma og ég til dæmis. Það var frekar bætt í hérna ef eitthvað er,“ segir Ásdís sem skrifaði undir tveggja ára samning við Lilleström. Lilleström hefur unnið tvo af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni og var Ásdís valin maður leiksins í fyrsta leiknum: „Það var mjög gaman. Stór leikur, á móti Brann á heimavelli, og við unnum og ég skoraði. En svo höfum við tapað tveimur leikjum á útivelli, þar sem við höfum verið með boltann 80 prósent tímans og verið mikið betri aðilinn. Það er mjög svekkjandi og vonandi einhverjir byrjunarörðugleikar. Við getum alveg unnið Brann og Vålerenga og verðum að passa að tapa ekki stigum svona gegn minni liðunum,“ segir Ásdís sem næst verður á ferðinni gegn Åsane í hádeginu á laugardag.
Norski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Sjá meira