Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 27. apríl 2024 11:10 Eiríkur segir augljóst hverjir keppa um embættið. Það séu þau fjögur til vinstri, Halla Hrund, Baldur, Katrín og Jón Gnarr. Vísir/Vilhelm og Arnar Prófessor í stjórnmálafræði segir ekkert enn fast í hendi um það hver taki forystu í forsetakapphlaupinu. Halla Hrund mælist nú með mest fylgi en það geti breyst á næstu vikum. Hann segir stefna í mjög spennandi kosningar. Það sé ágalli á kerfi að forseti geti verið kjörinn með lágu hlutfalli atkvæða. „
Þetta sýnir það gríðarlega mikla ris sem hún hefur notið undanfarið. Hún er á ofboðslegu flugi og hefur breytt þessari keppni allri saman. Þetta er enn ein staðfestingin sem við höfum séð í öðrum könnunum,“ segir Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði, um niðurstöður könnunar Maskínu á fylgi forsetaframbjóðenda. Nýjustu niðurstöður, sem birtar voru í gær, sýndu að Halla Hrund Logadóttir var þar hástökkvari og mældist með mest fylgi allra. Eiríkur segir að kjósendur eigi enn eftir að sjá Höllu Hrund reyna sig í umræðunni og það sé eftir í kosningabaráttunni. Spurður um stöðu Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, segir Eiríkur hann hana ekki endilega hafa náð þeim hæðum í skoðanakönnunum sem fólk taldi hana munu ná. Því sé baráttan eins og stendur á milli hennar og Höllu Hrundar. Baldur Þórhallsson, prófessor, er svo ekki langt á eftir. „Fólk er að máta þær saman. Munurinn er auðvitað sá að Katrín er rosalega vel þekkt og Íslendingar vita það nokkurn veginn hvort þeir geti hugsað sér að kjósa hana eða ekki. En fólkið í landinu er enn að kynnast Höllu. Þannig ég myndi gera ráð fyrir að fylgi hennar sé ekki alveg fast í hendi. Þekkingin á henni er ekki eins víðtæk í þjóðfélaginu,“ segir Eiríkur. Það séu spennandi kosningar fram undan og það sé ekkert sem segi til um að svona ris, upp á 16 prósentustig, haldi. Það sýni þó og sanni að Halla Hrund sé komin til leiks til jafns við þau sem fremst standa. Augljóst hverjir keppa Hann segir augljóst hverjir keppa um embættið, það séu aðeins þau efstu. Katrín, Baldur, Halla Hrund og Jón Gnarr. Það eigi eftir að koma í ljós hvernig atkvæðin falla á milli þeirra. „Þetta er engan veginn útkljáð.“ Öll helstu minni sem þekkt eru í kosningabaráttu hafi þegar komið fram: lopapeysan, sveitasælan og lömbin. „Þjóðin er að máta það enn í huganum hvern hún sér helst fyrir sér á Bessastöðum. Þetta er oft það, hvernig hugmyndin um embættið og staðinn fer saman við áruna í kringum frambjóðandann. Forsögu hans og hætti. Þetta er mat sem er yfirstandandi. Íslensk þjóð hefur verið svolítið ólíkindatól,“ segir hann og að í fyrri kosningum hafi ekki verið hægt að segja það með vissu fyrir fram hver myndi fara með sigur. „Smám saman fer einhver straumur af stað og þá fer hann annað hvort með mönnum eða gegn þeim. Þetta er einhverjar mest spennandi forsetakosningar frá því að Vigdís var kjörin 1980. Það er enginn sem hefur stungið af eins og hefur yfirleitt gerst áður,“ segir Eiríkur og það sé enn alveg opið hver taki forystu. Það sé að miklu leyti vegna þessa riss Höllu Hrundar í könnunum í gær. Verulegur ágalli í stjórnarskrá Mjög líklegt er að sá eða sú sem verður kjörin nú verði ekki með meirihluta, vegna fjölda frambjóðenda. Eiríkur það verulegan ágalla á stjórnarskrá Íslands að ekki sé tryggt að forseti hafi meirihlutastuðning að baki sér. Sama hvort það sé kosið í tveimur umferðum eða með röðuðu vali. „Að þessu hafi ekki verið breytt og fært í betri lýðræðislega umgjörð er auðvitað verulega slæmt. Við sitjum einfaldlega uppi með það að forseti getur verið kosinn með lágu hlutfalli atkvæða.“
Forsetakosningar 2024 Forseti Íslands Skoðanakannanir Mest lesið „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Innlent Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Fleiri fréttir Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Sjá meira