Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2024 14:15 Chaz Williams og félagar í Njarðvíkurliðinu eru á þriggja leikja sigurgöngu í þessari úrslitakeppni. Vísir/Diego Njarðvíkingar geta stigið stórt skref í átt að úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Val í Ljónagryfjunni í kvöld en þeir væru þá komnir í 2-0 og vantaði því aðeins einn sigur úr næstu þremur leikjum til að vinna einvígið. Njarðvíkingar voru 1-2 undir á móti Þór úr Þorlákshöfn í átta liða úrslitunum en tryggðu sig áfram með því að vinna tvo síðustu leikina. Þeir fylgdu því síðan eftir með sigri í fyrsta leik undanúrslitanna á móti Val. Þrír sigurleikir í röð og síðast unnu Njarðvíkingar fjóra leiki í röð í úrslitakeppni vorið 2014. Þeir geta því í kvöld unnið fjóra leiki í röð í úrslitakeppni í fyrsta sinn í heilan áratug. Vorið 2014 vann Njarðvík alla þrjá leiki sína á móti Haukum í átta liða úrslitum og fylgdi því síðan eftir með útisigri í Grindavík í fyrsta leik undanúrslitanna. Grindavík vann þó einvígið á endanum 3-2. Tveir af þessum þremur leikjum á síðustu dögum hafa Njarðvíkingar unnið á útivelli en í kvöld eru Njarðvíkingar á heimavelli í fyrsta sinn í þessum undanúrslitum. Njarðvíkingar eiga metið yfir flesta sigurleiki í röð í úrslitakeppni en þeir unnu ellefu leiki í röð frá 1985 til 1988. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 18.45. Flestir sigurleikir í röð hjá Njarðvík í úrslitakeppni: 11 sigurleikir í röð 1985-1988 7 sigurleikir í röð 1998-1999 6 sigurleikir í röð 2002-2003 6 sigurleikir í röð 2001 6 sigurleikir í röð 1984-1985 5 sigurleikir í röð 2006-2007 5 sigurleikir í röð 1995 4 sigurleikir í röð 2014 Subway-deild karla UMF Njarðvík Mest lesið Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Fá góðar móttökur í Dallas Sport Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Fótbolti Keflavík sækir liðsstyrk Körfubolti Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Fótbolti Hermann látinn taka pokann sinn Fótbolti Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Enski boltinn Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti Lárus Orri Sigurðsson: ,,Erum ekki í Evrópubaráttu” Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Sjá meira
Njarðvíkingar voru 1-2 undir á móti Þór úr Þorlákshöfn í átta liða úrslitunum en tryggðu sig áfram með því að vinna tvo síðustu leikina. Þeir fylgdu því síðan eftir með sigri í fyrsta leik undanúrslitanna á móti Val. Þrír sigurleikir í röð og síðast unnu Njarðvíkingar fjóra leiki í röð í úrslitakeppni vorið 2014. Þeir geta því í kvöld unnið fjóra leiki í röð í úrslitakeppni í fyrsta sinn í heilan áratug. Vorið 2014 vann Njarðvík alla þrjá leiki sína á móti Haukum í átta liða úrslitum og fylgdi því síðan eftir með útisigri í Grindavík í fyrsta leik undanúrslitanna. Grindavík vann þó einvígið á endanum 3-2. Tveir af þessum þremur leikjum á síðustu dögum hafa Njarðvíkingar unnið á útivelli en í kvöld eru Njarðvíkingar á heimavelli í fyrsta sinn í þessum undanúrslitum. Njarðvíkingar eiga metið yfir flesta sigurleiki í röð í úrslitakeppni en þeir unnu ellefu leiki í röð frá 1985 til 1988. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 18.45. Flestir sigurleikir í röð hjá Njarðvík í úrslitakeppni: 11 sigurleikir í röð 1985-1988 7 sigurleikir í röð 1998-1999 6 sigurleikir í röð 2002-2003 6 sigurleikir í röð 2001 6 sigurleikir í röð 1984-1985 5 sigurleikir í röð 2006-2007 5 sigurleikir í röð 1995 4 sigurleikir í röð 2014
Flestir sigurleikir í röð hjá Njarðvík í úrslitakeppni: 11 sigurleikir í röð 1985-1988 7 sigurleikir í röð 1998-1999 6 sigurleikir í röð 2002-2003 6 sigurleikir í röð 2001 6 sigurleikir í röð 1984-1985 5 sigurleikir í röð 2006-2007 5 sigurleikir í röð 1995 4 sigurleikir í röð 2014
Subway-deild karla UMF Njarðvík Mest lesið Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Fá góðar móttökur í Dallas Sport Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Fótbolti Keflavík sækir liðsstyrk Körfubolti Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Fótbolti Hermann látinn taka pokann sinn Fótbolti Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Enski boltinn Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti Lárus Orri Sigurðsson: ,,Erum ekki í Evrópubaráttu” Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Sjá meira