Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Samúel Karl Ólason skrifar 24. maí 2024 06:44 Beðið eftir bílum með neyðarbirgðir á Gasa. AP/Abdel Kareem Hana Þrátt fyrir umfangsmikinn hernað á Gasaströndinni berjast vígamenn Hamas-samtakanna enn af krafti gegn ísraelska hernum. Þá skjóta Hamas-liðar enn eldflaugum að Ísrael en ráðamenn í Ísrael og í Bandaríkjunum hafa áhyggjur af því að Ísraelar geti ekki náð markmiðum ríkisstjórnar Benjamíns Netanjahú um algeran sigur gegn hryðjuverkasamtökunum.
Þúsundir óbreyttra borgara liggja í valnum eftir að árásir Ísraela hófust á Gasaströndina í október. Þær hófust í kjölfar umfangsmikilla árása Hamas-liða og annarra vígamanna á suðurhluta Ísrael þann 7. október. Rúmlega 1.200 manns féllu í þessum árásum og vígamenn tóku um 250 gísla til Gasastrandarinnar. Fleiri en hundrað eru enn í haldi, eftir því sem best er vitað. Árásir Ísraela á Gasa hafa komið verulega niður á íbúum svæðisins. Mannúðarástandið á Gasaströndinni fer sífellt versnandi og stórir hluta borga og bæja svæðisins eru í rúst. Deilt í Ísrael Í Ísrael hafa andstæðingar Netanjahús líkt ástandinu við Bandaríkin og stríð ríkisins í Víetnam og í Afganistan, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Innrásin hafi orðið að mannskæðum skæruhernaði og hafa áhyggjurnar leitt til deilna í stríðsráði Ísrael. Meðal annars hefur Jóav Gallant, varnarmálaráðherra, krafist þess að Netanjahú leggi fram langtímaáætlun um Gasaströndina og baráttuna gegn Hamas. Gallant og Benny Gantz, sem situr einnig í stríðsráðinu, er fyrrverandi varnarmálaráðherra og pólitískur andstæðingur Netanjahús, óttast kostnaðarsama hersetu á Gasaströndinni en eru einnig ósammála því að yfirgefa svæðið alfarið aftur í höndum Hamas-liða. Sjá einnig: Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Samkvæmt frétt Politico áætla leyniþjónustur Bandaríkjanna að um þrjátíu til 35 prósent af þeim vígamönnum sem tilheyrðu Hamas fyrir 7. október hafi fallið í átökum við Ísraela. Þá óttast ráðamenn í Bandaríkjunum að þúsundir manna hafi gengið til liðs við Hamas á undanförnum mánuðum. AP birti meðfylgjandi myndband af ísraelskum hermönnum í Rafah og Jabaliya á Gasaströndinni í gær. Þar að auki er talið að stór hluti gangakerfis Hamas, sem finna má víðsvegar undir Gasaströndinni, sé enn ósnortinn. Um 65 prósent gangnanna eru talin í heilu lagi. Göngin nota Hamas-liðar til að flytja vopn og birgðir. Göngin eru oft búin ljósavélum, loftræstingu, vatnsleiðslum og birgðum að mat. Leiðtogar Hamas geta notað göngin til að fela sig og myndbönd sem Hamas birtir reglulega hafa sýnt vígamenn nota göngin til að komast aftan að ísraelskum hermönnum og sitja fyrir þeim. Ísraelar hafa þjálfað sérstakar sveitir til að berjast í göngunum en það er gífurlega erfitt. Þau eru oftar en ekki þröng og lág. Einn vel vopnaður vígamaður getur varið göng lengi. Meðal leiða sem Ísraelar hafa prófað á göngin er að reyna að fylla þau af sjó en það hefur ekki virkað nægilega vel, að mati forsvarsmanna hersins. Sjá einnig: Dæla sjó í göng Hamas Meðfylgjandi myndband var birt af Hamas í gær og sagt sýna átök í suðurhluta Rafah á Gasaströndinni. Sambærileg myndbönd eru reglulega birt af Hamas. Myndbandið getur vakið óhug lesenda. Fjórar sviðsmyndir nefndar Í grein AP eru taldar upp fjórar mismunandi sviðsmyndir fyrir framtíðina á Gasa. Ein þeirra er allsherjarsigur Ísraela. Netanjahú hefur heitið því að brjóta Hamas-samtökin á bak aftur og frelsa alla gíslana sem eru enn í haldi vígamanna. Hefur hann heitið því að sá sigur gæti náðst á nokkrum vikum. Það þykir þó ólíklegt og til að tryggja að Hamas-stingi ekki aftur upp kollinum þyrftu Ísraelar að hernema Gasaströndina alfarið. Fjar-hægri bandamenn Netanjahús hafa lagt þetta til og kallað eftir því að Palestínumenn verði fluttir til annarra ríkja sem vilja taka við þeim og Gasaströndin verði endurbyggð fyrir gyðinga. Flestir Ísraelar eru þó á móti þessu. Slíkt hernám yrði gífurlega kostnaðarsamt og gæti ekki borið árangur. Ísraelar höfðu til dæmis hernumið Gasaströndina á árum áður, þegar Hamas-samtökin voru stofnuð, og svipaða sögu er að segja frá suðurhluta Líbanon og stofnun Hezbollah. Önnur sviðsmynd felur í sér takmarkað hernám en að stjórn Gasa yrði færð á hendur Palestínumanna sem tengdust ekki Hamas-samtökunum né Heimastjórn Palestínu á Vesturbakkanum. Þetta er eitthvað sem Netanjahú hefur lagt til og hefur hann gefið til kynna að Arabaríki gætu komið að því að stjórna Gasaströndinni og endurbyggja hana. Engir Palestínumenn hafa þó stigið fram sem vilja vinna með Ísraelum, að hluta til vegna þess að leiðtogar Hamas hafa gefið til kynna að slíkir menn yrðu myrtir. Sérfræðingar segja AP að tilraunir til að efna til samband við slíka aðila hafi endað með ósköpum. Þá hafa leiðtogar Arabaríkja þvertekið fyrir að þessi hugmynd komi til greina. Þeir hafa aftur á móti tekið vel í hugmyndir Bandaríkjamanna sem ætlað er að binda enda á átök fyrir botni Miðjarðarhafs. Þær hugmyndir fela í sér að Heimastjórnin myndi stjórna Gasaströndinni með aðstoð vinveittra nágrannaríkja, eins og Sádi-Arabíu, en ráðamenn þar myndu bæta samskipti sín við Ísrael í skiptum fyrir aukna hernaðaraðstoð og mögulega aðstoð við að koma upp kjarnorkuverum. Þessi áætlun veltur þó á því að ráðamenn í Ísrael taki upp trúverðuga afstöðu með stofnun sjálfstæðs palestínsks ríkis. Netanjahú, Gallan og Gantz hafa allir þvertekið fyrir að slíkt komi til greina. Það myndi eingöngu leiða til þess að Hamas myndi stjórna sjálfstæðu ríki með landamæri að Ísrael. Samkomulag sagt líklegast Síðasta sviðsmyndin sem nefnd er í grein AP þykir einnig sú líklegasta til árangurs að svo stöddu. Hún er í raun runnin undan rifjum leiðtoga Hamas og felur í sér samkomulag um að sleppa öllum gíslum samtakanna í skiptum fyrir að hundruðum Palestínumanna verði sleppt úr haldi í Ísrael. Þar á meðal eru háttsettir Hamas-liðar og aðrir vígamenn en einnig óbreyttir borgarar. Ísraelar þyrftu einnig að hörfa alfarið frá Gasa, samþykkja vopnahlé til langs tíma og heimila og hjálpa við enduruppbyggingu á Gasa. Slíkt samkomulag fæli án efa í sér áframhaldandi yfirráð Hamas á Gasaströndinni og myndi líklega gera leiðtogum samtakanna kleift að byggja getu þeirra upp á nýjan leik. Það myndi þó gefa báðum aðilum möguleika á að lýsa yfir einhverskonar sigri. Mótmælt gegn Netanjahú. Umfangsmikil mótmæli hafa verið haldin í Ísrael þar sem þess hefur verið krafist að hann semji við Hamas.AP/Mahmoud Illean Þá hafa þúsundir manna tekið þátt í umfangsmiklum mótmælum í Ísrael, þar sem þess hefur verið krafist að Netanjahús samþykki samkomulag sem þetta. Mótmælendur hafa haldið því fram að eina ástæðan fyrir því að hann hafi ekki þegar samþykkt sambærilegt samkomulag sé að bandamenn hans myndu fella ríkisstjórnina og mögulega binda enda á pólitískan feril hans. Þá stæði hann óvarin gegn ákærum um spillingu. Samkomulag myndi einnig líklega leiða til þess að íbúar í suðurhluta Líbanon og norðurhluta Ísrael geti snúið aftur til heimila sinna. Það gætu flestir íbúar Gasastrandarinnar þó ekki gert, þar sem meirihluta húsa á svæðinu er í rúst eða þau hafa orðið fyrir verulegum skemmdum.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Hernaður Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Fleiri fréttir Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Sjá meira