Fjölnir naumlega á toppnum og Þróttur nálgast umspil Sindri Sverrisson skrifar 14. ágúst 2024 21:21 Fjölnismenn eru enn á toppi Lengjudeildarinnar en aðeins stigi fyrir ofan ÍBV. Eitt lið kemst beint upp í Bestu deildina. Facebook/@Grafarvogsbúar Fjölnismenn halda enn toppsæti Lengjudeildar karla í fótbolta eftir leiki kvöldsins, nú þegar fimm umferðir eru eftir af deildinni.
Aðeins efsta lið deildarinnar kemst beint upp í Bestu deildina og það stefnir í harða baráttu á milli Fjölnis og ÍBV. Bæði lið gerðu jafntefli í sínum leikjum í kvöld og er Fjölnir því áfram með eins stigs forskot á Eyjamenn, eftir að Eyjamenn köstuðu hreinlega frá sér sigri í Eyjum í kvöld. Fjölnir gerði markalaust jafntefli við Njarðvík á útivelli og er því með 33 stig, stigi meira en ÍBV. Keflavík kemur næst þar á eftir með 28 stig, eftir markalaust jafntefli við Leikni í Breiðholtinu þar sem Omar Sowe klúðraði víti Leiknismanna á 61. mínútu, sem Ásgeir Orri Magnússon varði. Njarðvík og ÍR eru svo í 4. og 5. sæti með 27 stig, þremur stigum á undan Aftureldingu og fjórum á undan Þrótti, í harðri baráttu um sæti í umspilinu en þangað fara liðin í 2.-5. sæti. Þróttarar lönduðu nefnilega 3-1 sigri á Gróttu í Laugardalnum, eftir að hafa verið 1-0 undir í hálfleik eftir mark Kristófers Melsted. Viktor Steinarsson, Kári Kristjánsson og Liam Daði Jeffs skoruðu mörk Þróttara í seinni hálfleiknum. Gróttumenn eru því áfram á botni deildarinnar með 13 stig, fjórum stigum á eftir Leikni sem er í 10. sæti og fyrir ofan fallstrikið. Allar upplýsingar um markaskorara eru af vef Fótbolta.net.
Lengjudeild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira