Ummælin óviðeigandi en Helgi Magnús sleppur Árni Sæberg og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 9. september 2024 15:39 Guðrún hefur ákveðið að leysa Helga Magnús ekki frá störfum. Vísir Dómsmálaráðherra telur sérstakar aðstæður réttlæta ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, sem séu þó til þess fallin að grafa undan trúverðugleika ákæruvaldsins. Hann verður því ekki leystur frá störfum. Helgi Magnús fagnar ákvörðun ráðherra og hlakkar til að mæta aftur til vinnu.
Þetta segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins. „Það er afstaða dómsmálaráðherra að ummæli vararíkissaksóknara hafi ekki aðeins verið óviðeigandi og í ósamræmi við stöðu hans sem embættismanns, heldur hafi þau einnig verið til þess fallin að draga úr og grafa undan trúverðugleika embættis ríkissaksóknara og ákæruvaldsins í heild. Í því samhengi skipti máli að ummælin beindust meðal annars að innflytjendum og flóttafólki, tilteknum samtökum og einstaklingi sem starfar sem lögmaður. Þá var um ítrekaða háttsemi að ræða, sem var jafnframt sama eðlis og viðkomandi embættismaður fékk áminningu fyrir tveimur árum áður.“ Sérstakar aðstæður heimili rýmri tjáningu Á hinn bóginn hafi tjáning vararíkissaksóknara verið sett fram við sérstakar aðstæður, það er í umræðu um mann sem hótaði vararíkissaksóknara og fjölskyldu hans ofbeldi og hafði af þeirri ástæðu hlotið dóm. Sú staða hefði áhrif á mat á svigrúmi vararíkissaksóknara til tjáningar í þessu samhengi. „Með vísan til þess og á grundvelli meðalhófs er það niðurstaða dómsmálaráðherra að veita vararíkissaksóknara ekki lausn um stundarsakir.“ Ráðherra hafi átt fund með Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara og annan fund með Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara í dag þar sem hún kynnti þeim þessa niðurstöðu sína. Hafi borið að áminna Helga Magnús Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari óskaði eftir því í lok júlí að Helgi Magnús yrði leystur tímabundið frá störfum vegna tjáningar hans opinberlega á ýmsum málum. Um leið að mál Helga yrðu skoðuð í dómsmálaráðuneytinu. Vísaði hún til áminningar sem hún veitti honum árið 2022. Þá ítrekaði hún á dögunum að henni hafi borið að áminna vararíkissaksóknara vegna ósæmilegrar hegðunar fyrir tveimur árum og senda mál hans til dómsmálaráðuneytisins á þessu ári þegar hann hélt uppteknum hætti. Háttsemi hans hafi verið ósæmileg og ósamræmanleg embætti Ríkissaksóknara og varpað rýrð á embættið. Efast um að Sigríður hafi verið hæf til að áminna hann en ráðuneytið ósammála Helgi Magnús hefur allt frá því að beiðni Sigríðar barst ráðuneytinu haldið því fram að tjáning hans hafi átt rétt á sér og að vafi væri uppi um það hvort Sigríður væri yfir höfuð hæf til þess að áminna hann. Enda væru þau bæði skipuð af ráðherra og því væri það ráðherra að áminna hann. Þessu hafnar ráðuneytið alfarið í tilkynningu sinni. Þar segir að vararíkissaksóknari starfi í umboði ríkissaksóknara og sé honum til aðstoðar. Ríkissaksóknari hafi auk þess sem forstöðumaður embættisins almennan stjórnunarrétt gagnvart starfsmönnum embættisins, þar með talið vararíkissaksóknara. Dómsmálaráðherra sé veitingarvaldshafi en ríkissaksóknari sem forstöðumaður fari með áminningarvaldið. Fagnar niðurstöðunni en óviss með framhaldið Helgi Magnús fagnar niðurstöðu Guðrúnar. Hann hafði nýlokið fundi með ráðherra vegna málsins þegar Vísir náði tali af honum. „Ég fagna þessari niðurstöðu. Þetta er rétt niðurstaða, en þetta hefði mátt taka styttri tíma. Þetta er það sem ég taldi blasa við allan tímann og er bara mjög sáttur við niðurstöðuna. Hún er í samræmi við þá sýn sem ég og lögmaður minn höfðu á þetta mál.“ Aðspurður um næstu skref segir hann hljóta að líða að því að hann snúi aftur til vinnu. „Ætli ég byrji ekki á því að funda með Sigríði, sjá hvernig hún ætlar að bregðast við þessum ósigri sínum,“ segir Helgi Magnús. Undir Sigríði komið að ljúka málinu Blaðamaður bar undir hann hvort hann sæi fyrir sér að geta skilið við þetta mál og haldið áfram samstarfi við Sigríði. „Það á eftir að koma í ljós. Ég held það sé meira undir Sigríði komið. Hún hóf þessa vegferð og þarf að finna leið til að ljúka henni.“ Þetta hafi verið algjörlega tilefnislaust af hendi Sigríðar. „Ég hef ekkert annað gert en að bregðast við þessu erindi hennar síðan það kom fram,“ segir Helgi. Hann hlakkar til að komast aftur til vinnu. „Það er ekki að ástæðulausu sem ég hef enst í þessu starfi í 26 ár. Ég nýt þess,“ segir Helgi Magnús.
Mál Helga Magnúsar Gunnarssonar Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Tengdar fréttir Helgi Magnús situr heima meðan Guðrún leitar sér ráðgjafar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra getur ekki sagt til um hvenær mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara verður afgreitt innan ráðuneytisins. Á meðan situr Helgi Magnús heima. 20. ágúst 2024 12:59 Kannast ekki við fleiri líflátshótanir í garð Helga Magnúsar Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari áréttar að ástæða þess að hún sendi mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara til dómsmálaráðherra sé ekki vegna persónulegs ágreinings. Hún hafi verið úrræðalaus eftir áminningu sem hún veitti honum árið 2022. Henni hafi ekki verið kunnugt um frekari líflátshótanir í garð Helga Magnúsar. 5. september 2024 13:15 Fullviss að Guðrún standi með sér Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, segist fullviss um að dómsmálaráðherra hafni beiðni Sigríðar Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, um að hann verði tímabundið leystur frá störfum. 29. ágúst 2024 06:28 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Helgi Magnús situr heima meðan Guðrún leitar sér ráðgjafar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra getur ekki sagt til um hvenær mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara verður afgreitt innan ráðuneytisins. Á meðan situr Helgi Magnús heima. 20. ágúst 2024 12:59
Kannast ekki við fleiri líflátshótanir í garð Helga Magnúsar Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari áréttar að ástæða þess að hún sendi mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara til dómsmálaráðherra sé ekki vegna persónulegs ágreinings. Hún hafi verið úrræðalaus eftir áminningu sem hún veitti honum árið 2022. Henni hafi ekki verið kunnugt um frekari líflátshótanir í garð Helga Magnúsar. 5. september 2024 13:15
Fullviss að Guðrún standi með sér Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, segist fullviss um að dómsmálaráðherra hafni beiðni Sigríðar Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, um að hann verði tímabundið leystur frá störfum. 29. ágúst 2024 06:28