Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Jón Þór Stefánsson skrifar 18. september 2024 23:18 Haraldur Ingi Þorleifsson gagnrýnir stjórnvöld harðlega. Vísir/Vilhelm Haraldur Ingi Þorleifsson, frumkvöðull og baráttumaður, lýsir þrautagöngu sinni við það að fá svör um notendastýrða persónulega aðstoð, eða NPA. Biðlistar eftir þjónustunni eru langir, þrátt fyrir að hún sé lögbundinn. Hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega.
Fjallað var um málefni NPA í Kastljósi á Rúv í kvöld, en Haraldur segir þáttinn hafa verið átakanlegan. Rætt var við Indu Hrönn Björnsdóttur, eiginkonu Óskars Kemp sem lenti í bílslysi árið 2018 og hlaut alvarlegan heilaskaða. Læknar telja hann þurfa aðstoð allan sólarhringinn, en nú sex árum síðar fær hann enn ekki fulla NPA-þjónustu. „Saga af manni sem slasaðist fyrir nokkrum árum og fær ekki aðstoð sem hann þarf. Konan hans er sett í þá aðstöðu að hjúkra honum sem er gífurlegt álag á fjölskyldulífið. Ég þekki það sjálfur,“ skrifar Haraldur í færslu á Twitter. Þar lýsir hann því að hann hafi í sumar reynt að fá svör um NPA, en hann bendir á að um sé að ræða lögbundna þjónustu fyrir fólk með fötlun sem sveitarfélög eigi að veita. Erfitt að fá svör Haraldur segir reynslu sína af því að sækja um þjónustuna hjá Reykjavíkurborg ekki hafa verið auðvelda. „Á vef Reykjavíkurborgar er engin umsókn. Þannig að ég hringdi. Fékk samtal við manneskju sem benti mér á að sækja um á netinu. Ég sagði að það væri ekki hægt og hún játaði því á endanum,“ segir Haraldur. „Þá var mér sagt að ég fengi símtal. Það kom aldrei.“ Hann segist hringt á nýjan leik og að hann hafi aftur fengið svör um að sækja um á netinu. Hann hafi endurtekið að það væri ekki hægt og honum hafi aftur verið sagt að það yrði hringt í hann. „Aftur kom ekkert símtal.“ Enginn viti svarið Á endanum hafi honum tekist að ná í manneskju sem vinni í þessum málum hjá Reykjavíkurborg. „Ég spurði hvernig ferlið væri og hvað það tæki langan tíma. Þá kom í ljós að eftir að búið er að fara í gegnum ítrekað og langt umsóknarferli þá fer umsóknin fyrir nefnd á vegum borgarinnar. Ég spyr hvað gerist þegar umsóknin er samþykkt, hvað tekur langan tíma þangað til að þjónustan byrjar. Þá segir sérfræðingur borgarinnar að enginn viti svarið við þeirri spurningu,“ segir Haraldur. Hann hafi haft samband við forstöðukonu velferðarsviðs og spurt hana sömu spurningar, og hún sagt að það væri nefnd á vegum ríkis og sveitarfélaga sem væri að fjalla um þetta. „Ég hef samband við formann nefndarinnar. Þá er mér sagt að nefndin sé alls ekki að fjalla um NPA samninga. Starfsmaður nefndarinnar segir mér svo að það sé best að fara í mál við borgina.“ Aftur sagt að besta lausnin sé að kæra Í kjölfarið bað Haraldur um fund með forstöðukonu velferðarsviðs „Þar er mér sagt að þeirra hendur séu bundnar. Að ákvörðunin að fjármagna ekki samningana sé hjá borgarstjóra og borgarráði.“ Hann hafi fengið að vita að þrjátíu manns væru á biðlista og að vonir stæðu til um að sjö umsóknir yrðu fjármagnaðar á árinu. „Ekki að það sé ákveðið, að það sé vonast til þess. Ég spyr hvað markmiðið sé á næsta ári. Þær segja mér að það verði vonandi sjö,“ segir Haraldur sem áætlar því að biðlistinn sé um fimm ár. Þá bendir hann á að hann hafi aftur fengið þau skilaboð að besta lausnin væri líklega að fara í mál við borgina. „Þetta eru sem sagt borgarstarfsmenn að segja mér að kæra borgina.“ Ráðherra komi af fjöllum Þar á eftir hafi Haraldur rætt við borgarstjóra og formann borgarráðs. Þeir hafi sagt honum að vandamálið væri að ríkið hafi ekki komið með fjármagn til þess að hægt væri að fjármagna þjónustuna. „Ég fer þá á fund með félagsmálaráðherra. Hann kemur af fjöllum. Segir að hann vissi ekki af því að það sé eitthvað vandamál. Ráðherra málaflokksins veit sem sagt ekki að það er fimm ára biðlisti eftir lögbundinni þjónustu. Hann virtist ekki skammast sín fyrir þessa vankunnáttu,“ segir Haraldur. „Hann segir mér líka að það hafi aldrei neinn frá sveitarfélögunum komið því á framfæri að eitthvað vantaði upp á með fjármögnun.“ Aftur segist Haraldur hafa rætt við borgarstjóra og formann borgarráðs og að þeir hafi tekið saman mjög ítarlegan lista yfir athugasemdir sem sveitarfélögin hafi sent á ráðuneytið. „Ég sendi listann á félagsmálaráðherrann. Og ég legg til að það væri kannski sniðugt ef ráðherrann og borgarstjóri myndu hittast og ræða þetta alvarlega mál,“ segir hann. „Það kom ekkert svar frá ráðherranum þrátt fyrir nokkrar ítrekanir. Eftir því sem ég best veit hafa þeir ekki ennþá rætt málið.“ Nálgunin að gera sem minnst Þar á eftir hafi Haraldur hitt fjármálaráðherra og sagt honum frá stöðunni. Hann hafi lagt til að koma þessu í umræður um fjárlög. Ráðherrann hafi tekið vel í það, en síðan hætt að svara fyrirspurnum, og málið hafi ekki farið í fjárlagafrumvarpið. „Flestir sem sækja um þessa þjónustu eru mjög veikir,“ segir Haraldur sem bendir á að þetta fólk hafi ekki sömu möguleika og hann á að hitta ráðamenn til þess að ræða um málið. „Nálgun ráðamanna virðist vera að gera sem minnst. Helst hunsa vandamálið og vona að einhver annar leysi það,“ segir hann. „En það leysist ekki af því að það er ekkert samtal. Af því að þessir einstaklingar eru raddlausir og það er hægt að gera ekki neitt.“ „Verða veikari og veikari af því að aðstoðin kemur ekki“ Haraldur segir stjórnvöld treysta á að fólkið sem þurfi þessa lögbundnu þjónustu kæri ekki. „Þau eru of veik. Þau fáu sem kæra eru sett fram fyrir röð. Hinir eru heima með takmarkaða aðstoð. Oft mikið þjáð. Þeir sem eiga engan að eru sendir á elliheimili, ungt fólk. Sumir deyja. Verða veikari og veikari af því að aðstoðin kemur ekki.“ Þá segir hann aðstandendur fólksins eiga það til að brenna út, og í sumum tilfellum verði þeir sjálfir öryrkjar vegna álagsins. „Þeir þurfa að velja á milli þess að fórna sinni heilsu, og lífi, til að sinna þeim sem þau elska. Þetta er ótrúlegt ástand. Og ábyrgðin er hjá stjórnvöldum.“
Málefni fatlaðs fólks Borgarstjórn Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Fleiri fréttir Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Sjá meira