Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. september 2024 09:31 Marcus Rashford fagnar öðru marka sinna í 7-0 sigri Manchester United á Barnsley. getty/Ash Donelon Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Marcus Rashford sé kominn á beinu brautina eftir að hafa tekið til hjá sér utan vallar.
Eftir að hafa skorað þrjátíu mörk tímabilið 2022-23 átti Rashford erfitt uppdráttar í fyrra og var ekki valinn í enska landsliðið fyrir Evrópumótið. Framherjinn hefur hins vegar skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum United og Ten Hag að breytingar sem hann hafi gert á lífi sínu séu að bera ávöxt. „Ég held að hann hafi alltaf vitað. Allir vita að þegar lífsstíllinn er ekki í lagi geturðu ekki staðið þig í þessari deild,“ sagði Ten Hag á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Crystal Palace í dag. „Þú nærð ekki árangri ef þú lifir ekki góðum og öguðum lífsstíl utan æfingasvæðisins. Hann þurfti smá hjálp og stuðning. En á endanum þurfti hann að gera þetta sjálfur. Hann hefur komið lífi sínu á réttan kúrs og viðhorf til æfinga og leikja er rétt. Þegar fagmennskan er komin í réttan farveg mun standa sig því hann er afbragðs leikmaður.“ Á síðasta tímabili mætti Rashford of seint á liðsfund, skemmti sér alla nóttina eftir tap fyrir Manchester City og hringdi sig svo inn veikan eftir að hafa djammað í Belfast. Leikur United og Palace hefst klukkan 16:30 í dag.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira