Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Valur Páll Eiríksson skrifar 24. september 2024 18:56 Davíð Snær Jóhannsson skoraði í kvöld. Aalesund Davíð Snær Jóhannsson var á skotskónum fyrir lið Álasund í norsku B-deildinni er liðið tapaði 4-1 fyrir toppliði Valerenga í kvöld.
Valerenga hefur verið með algjöra yfirburði í B-deildinni norsku í ár og stefnir hraðbyri upp í efstu deild. Álasund hins vegar í fallbaráttu og ljóst að verkefni dagsins yrði ekki einfalt fyrir Davíð og félaga. Það byrjaði heldur ekki vel þar sem Valerenga var komið 2-0 yfir eftir aðeins 17 mínútna leik og þannig stóð í hléi. Davíð Snær minnkaði muninn fyrir Álasund á 62. mínútu en það dugði skammt. Valerenga skoraði tvö mörk til viðbótar og vann 4-1 sigur. Valerenga er með tólf stiga forystu á toppi deildarinnar en Álasund er í 13. sæti með 25 stig, þremur frá fallsæti. Start er í sætinu fyrir neðan Álasund, umspilssæti um fall, stigi á eftir. Í Svíþjóð var Adam Ingi Benediktsson í marki Östersund og hélt hreinu í markalausu jafntefli við Gefle á útivelli. Líkt og Álasund í Noregi er Östersund í fallbaráttu í sænsku B-deildinni. Eftir jafntefli dagsins er liðið með 28 stig í ellefta sæti í 16 liða deild. Það eru þó aðeins sex stig niður á botninn í jafnri deildinni.
Norski boltinn Sænski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Sjá meira