Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Jón Ísak Ragnarsson skrifar 29. september 2024 16:57 Herbert Kickl tók við sem formaður Frelsisflokksins árið 2021. AP Kosið var til þings í Austurríki í dag og benda fyrstu útgönguspár til þess að Frelsisflokkurinn verði stærstur flokka með 29,1 prósent atkvæða.
Frelsisflokkurinn (FPÖ) er þjóðernissinnaður hægri flokkur sem talar fyrir harðri innflytjendastefnu og hefur uppi efasemdir um áframhaldandi stuðning við Úkraínu gegn Rússum. Innflytjendamál, Úkraína, og verðbólgan voru fyrirferðamikil atriði í kosningabaráttunni. Danke Österreich! 💙🇦🇹 pic.twitter.com/LsTC32t4TD— FPÖ (@FPOE_TV) September 29, 2024 Fyrstu útgönguspár gefa til kynna að flokkurinn fái 29,1 prósent atkvæða, og verði stærsti flokkurinn á þingi. Næststærstur er ÖVP, hefðbundnari íhaldsflokkur í líkingu við kristilega demókrata, með 26,3 prósent atkvæða. Karl Nehammer, formaður næststærsta flokksins ÖVP, hefur sagt að ómögulegt væri að taka þátt í ríkisstjórn með Frelsisflokknum. Það væri „ómögulegt að vera í ríkisstjórn með fólki sem er hrifið af samsæriskenningum.“ Það er því ekki ljóst hvort góður árangur Frelsisflokksins geti skilað þeim í ríkisstjórn. Þriðji stærsti flokkurinn samkvæmt spánni eru Sósíaldemókratar með 21 prósent, svo frjálslyndi flokkurinn NEOS með 9 prósent atkvæða og loks Græningjar með 8,3 prósent atkvæða. Kommúnistaflokkur Austurríkis fær 2,4 prósent atkvæða, og Bjórflokkurinn 2 prósent. Dreifing atkvæða samkvæmt fyrstu útgönguspá.Skjáskot/Austurríska ríkissjónvarpið
Austurríki Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira