Eitt barn útskrifað af gjörgæslu Lovísa Arnardóttir skrifar 31. október 2024 11:09 Leikskólinn er lokaður og sóttvarnalæknir mun segja til um það hvenær börnin megi mæta. Vísir/KTD Eitt barn hefur verið útskrifað af gjörgæslu Landspítalans vegna E. coli sýkingarinnar sem greindist á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Ellefu eru inniliggjandi og enn fjögur á gjörgæslu. Greint er frá á vef RÚV. Rannsókn á E.coli smiti á leikskólanum Mánagarði beinist aðallega að mati sem börnin neyttu þann 17. október. Þá fengu börnin hafragraut, spaghettí og melónur í kaffitímanum.
Alls hafa 45 börn smitast af E.coli veirunni frá því í síðustu viku. Í frétt RÚV kemur einnig fram að enn séu 20 börn undir eftirliti lækna á Landspítalanum. Fjölmörg matvælasýni eru nú til rannsóknar en fram kemur í sameiginlegri tilkynningu sóttvarnalæknis, Matvælastofnunar og Heilbrigðiseftirlits að rannsóknirnar séu vandasamar og tímafrekar.Niðurstöður úr rannsókninni verða birtar með fréttatilkynningu á heimasíðum sóttvarnalæknis, Matvælastofnunar og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þegar þær liggja fyrir. Í tilkynningu kemur jafnframt fram að í rannsókninni beinist athyglin að fimmtudeginum 17. október vegna þess að þá hafi öll börnin sem hafi veikst fyrstu dagana verið í leikskólanum. Líklega sé um matarborið smit að ræða vegna þess að veikindi barnanna hófust á svipuðum tíma og dreifðust yfir allar deildir skólans. Af sömu ástæðu er talið ólíklegra að smitið sé upprunalega frá umhverfi eða barna á milli. Það sé þó ekki hægt að útiloka það. Í tilkynningunni er farið ítarlega yfir matseðilinn þann 17. október. Börnin fengu í morgunmat hafragraut og svo hakksósu eða linsubaunarétt og spaghettí í hádegismat. Í kaffitíma fengu þau melónur. Leikskólinn enn lokaður Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fer með rannsókn á vettvangi og hefur tekið fjölmörg matvælasýni til rannsóknar, af matvælum sem var boðið uppá þennan dag. Jafnframt hafa heilbrigðisfulltrúar farið í eftirlit í leikskólann, farið yfir verklag, metið aðstæður og farið fram á úrbætur eftir tilefni. Eftir að hópsýkingin kom upp hefur leikskólinn verið þrifinn hátt og lágt, auk þess sem leikföng og annar búnaður hefur verið sótthreinsaður. Leikskólinn er enn lokaður og verður ákvörðun um opnun tekin af rekstraraðila í samráði við stýrihóp. Sóttvarnalæknir mun gefa út leiðbeiningar varðandi hvenær börnin geta mætt aftur í skólann. Í tilkynningu er einnig farið yfir það hvað E.coli er og hvernig bakterían smitast. „E. coli bakteríur eru hluti af náttúrulegri þarmaflóru manna og dýra og geta borist í vatn, kjöt, grænmeti og önnur matvæli við framleiðslu þeirra. Mismunandi tegundir E. coli eru til. Shigatoxin myndandi E. coli (STEC) bera gen sem mynda eiturefni sem valda veikindunum (meinvirknigen). Stofnar þeirra geta þó verið mis sjúkdómsvaldandi.“ E.coli í íslensku lamba- og nautgripakjöti Þá segir að Matvælastofnun hafi árið 2018 greint frá skimun á tilvist sjúkdómsvaldandi baktería í íslensku kjöti á markaði hérlendis. Þar hafi komið fram að STEC meinvirknigen fundust í tæplega 30% sýna af lambakjöti og 11,5% sýna af nautgripakjöti. Sambærilegar rannsóknir hafa ekki verið gerðar á grænmeti, ávöxtum eða öðrum matvælum hér á landi.
E. coli-sýking á Mánagarði Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðismál Landspítalinn Börn og uppeldi Tengdar fréttir Færri börn undir eftirliti vegna E.coli en enn fimm á gjörgæslu Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir á ekki von á því að niðurstöður úr rannsókn á uppruna E.coli smits á Mánagarði liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi við lok vikunnar eða um helgina. Leikskólinn er enn lokaður. Tíu börn eru undir undir eftirliti á bráðamóttöku Barnaspítalans eins og er samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Auk þess eru tíu börn inniliggjandi, þar af eru fimm á deild og fimm á gjörgæslu. 30. október 2024 11:43 Fimm börn alvarlega veik á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum vegna E.coli sýkingar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þar af fimm þeirra á gjörgæslu. Um 40 börn eru undir eftirlit vegna sýkingarinnar. E. Coli sýking getur leitt til alvarlegar nýrnabilunar og því eru börn sem eru á gjörgæslu í blóðskilun. 29. október 2024 21:17 Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú 42 börn undir eftirlit á Landspítalanum vegna E. Coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru 11 af þeim inniliggjandi og þrjú þeirra á gjörgæslu alvarlega veik. 28. október 2024 10:46 Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
Færri börn undir eftirliti vegna E.coli en enn fimm á gjörgæslu Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir á ekki von á því að niðurstöður úr rannsókn á uppruna E.coli smits á Mánagarði liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi við lok vikunnar eða um helgina. Leikskólinn er enn lokaður. Tíu börn eru undir undir eftirliti á bráðamóttöku Barnaspítalans eins og er samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Auk þess eru tíu börn inniliggjandi, þar af eru fimm á deild og fimm á gjörgæslu. 30. október 2024 11:43
Fimm börn alvarlega veik á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum vegna E.coli sýkingar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þar af fimm þeirra á gjörgæslu. Um 40 börn eru undir eftirlit vegna sýkingarinnar. E. Coli sýking getur leitt til alvarlegar nýrnabilunar og því eru börn sem eru á gjörgæslu í blóðskilun. 29. október 2024 21:17
Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú 42 börn undir eftirlit á Landspítalanum vegna E. Coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru 11 af þeim inniliggjandi og þrjú þeirra á gjörgæslu alvarlega veik. 28. október 2024 10:46