Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. nóvember 2024 13:34 Ruud van Nistelrooy stýrði Manchester United til sigurs í þremur af fjórum leikjum sínum við stjórnvölinn hjá liðinu. getty/Robbie Jay Barratt Ruud van Nistelrooy, sem lét af störfum hjá Manchester United í byrjun vikunnar, hefur sótt um knattspyrnustjórastarfið hjá Coventry City.
Van Nistelrooy var aðstoðarmaður Eriks ten Hag hjá United og stýrði liðinu svo í fjórum leikjum eftir að hann var látinn fara. United vann þrjá af þessum fjórum leikjum og gerði eitt jafntefli. Rúben Amorim ákvað hins vegar að halda Van Nistelrooy ekki hjá United og Hollendingurinn yfirgaf því félagið eftir aðeins nokkra mánuði hjá því. Van Nistelrooy hefur þó áhuga á að vera áfram á Englandi og samkvæmt talkSPORT hefur hann sótt um stjórastarfið hjá B-deildarliði Coventry. Mark Robins var sagt upp sem stjóra Coventry fyrr í mánuðinum eftir sjö ára starf. Liðið er í 17. sæti ensku B-deildarinnar með sextán stig eftir fimmtán leiki. Mikill áhugi er á starfinu hjá Coventry því Frank Lampard ku einnig hafa sótt um það. Fyrir utan leikina fjóra við stjórnvölinn hjá United hefur Van Nistelrooy aðeins verið aðalþjálfari í eitt tímabil. Hann stýrði PSV Eindhoven tímabilið 2022-23 og gerði liðið að bikarmeisturum.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira