Dulin mein íslenskt stjórnkerfis Ólafur Ágúst Hraundal skrifar 20. nóvember 2024 08:45 Spilling íslenskrar stjórnsýslu Íslenskt stjórnkerfi hefur lengi verið gagnrýnt fyrir alvarlega spillingu og frændhygli sem hefur markað djúp spor í samfélagið. Nýlegar rannsóknir sýna að Ísland hefur fallið niður á spillingarvísitölu Transparency International, þar sem landið situr nú í 19. sæti, verst allra Norðurlanda. Þetta lýsir best hvað Ísland er mikið spillingarbæli auðvaldsins, hagsmunatengsl og hroki hafa grafið undan trausti almennings á kerfinu. Dæmin eru mörg, og sum þeirra eru stórmál sem hafa skaðað og markað íslenskt samfélag. Spilling og hagsmunaárekstrar Samherjamálið í málinu var Íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Samherji sakað um að greiða mútur til embættismanna í Namibíu til að tryggja sér veiðikvóta. Helgi Seljan sem fór fyrir Kveiks þættinum sem fjallaði um þetta mál þar sem einnig var sýnt fram á skatta undanskot í gegnum skúffufyrirtæki. Einu afleiðingarnar sem urðu af þessum þætti var að Helga Seljan og þeir blaðamenn sem komu að málinu voru slaufaðir, þeim var sturtað niður og hent á haf út. Einkavæðing Íslandsbanka hefur einnig vakið mikla gagnrýni þar sem skortur á gagnsæi í söluferlinu vakti upp spurningar um hvort hagsmunir fárra hafi ráðið för. Þessi skugga sala endaði með að Íslandsbanki var sektaður um 1,2 milljarð króna, sem íslenska þjóðin fékk beint í fangið. Þessi atburður hefur haft áhrif á traust almennings til bankans og leitt til þess að stórir viðskiptavinir hafa sagt upp viðskiptum sínum við hann. Hvalveiði er nýjasta dæmið þegar Gunnar Bergmann Jónsson, sonur Jón Gunnarssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins, var að gera sig breiðan fyrir huldumanni sem fór undir fölsku flaggi sem Austurrískur fjárfestir í von um að landa risa fasteigna díl. Þessi minnimátarkennd eða mikilmennskubrjálæði vekur hjá manni spurningar um persónuleg tengsl og hagsmuni sem virðast ráða miklu í stjórnmálum á Íslandi. Teflón Bjarni um hann er hægt að skrifa heila bók, hvernig dusta á af sér rykið. Innra eftirlit og ábyrgðarleysi innan lögreglunnar Lögreglan sem á að gæta að lögum og reglum samfélagsins hefur sætt gagnrýni fyrir skort á innra eftirliti og frændhygli í starfi. Það hafa komið upp mál þar sem lögreglumenn hafa brotið á samstarfmönnum vegna áreitis í starfi, þeir eru fluttir á milli deilda í án þess að axla ábyrgð. Það er eins og það séu aðrar reglur sem gilda um starfsmenn embættisins en hjá hinum almenna borgara, þeir þurfa ekki að taka afleiðingum gjörða sinna en almenningur þarf að sæta fangelsi eða missa djobbið. Það að lögreglan fari sjálf með rannsókn á sjálfri sér skapar gríðalega mikla hlutdrægni og grefur undan trausti til rannsókna. Það er eins og Lögreglan sé yfir lög hafin þegar það snýr að þeim sjálfum, þar að auki hefur komið í ljós að forvirkar rannsóknarheimildir eru oft notaðar án nægilegs eftirlits, sem vekur áhyggjur um misnotkun valds. Hryðjuverkamálið þar sem tveir einstaklingar voru dæmdir fyrir að breyta skotvopnum og gera þau sjálfvirk, sá lögreglan aldrei ástæðu til að yfirheyra eða rannsaka neitt sérstaklega þann sem tók það að sér að breyta skotvopnunum fyrir þá. Það var vegna þess að þar var á ferðinni faðir frú Sigríðar Bjarkar Ríkislögreglustjóra. Grím ur Grímss on yfirlögregluþjónn, í gegnum hans starfsferil hafa komið upp atvik þar sem hann ásamt öðrum meðstjórnendum Lögreglu hafa verið sakaðir af verjendum sakborninga að mál þeirra séu einungis rannsökuð til sektar en ekki til sýknu. Aurum-málið er skýrt dæmi þar sem farið var á svig við lög, gögnum var leynt sem hefðu getað hreinsað sakborning af sökum, mál sem hélt sakborningi í gíslingu í 16 ár. Nú er Grímur í framboði fyrir Viðreisn og skipar þriðja í sæti í sínu kjördæmi. Það er til umhugsunar hvort einstaklingur sem hefur farið fram með þessum hætti sé hæfur til að taka sæti á Alþingi. Er þetta siðferðið sem við viljum hafa þar og hafa áhrif á framtíð þjóðar? Þetta er spurning sem kjósendur verða að velta alvarlega fyrir sér. Spillinginn á sér víðar rætur Frændhygli er stórt vandamál innan íslenska stjórnkerfisins. Persónulegar vináttu- og fjölskyldutengingar hafa leitt til þess að hæfileikaríkir einstaklingar hafa ekki komist að, þar sem þeir njóta ekki sömu forréttindana. Þetta ábyrgðarleysi “ég man ekki“, hefur grafið undan trausti. Almenningur líður fyrir þann siðferðisbrest sem spillingin hefur alið af sér. Upplifanir almennings að stjórnvöld séu ekki að sinna skyldum sínum af heiðarleika og ábyrgð. Að hagsmunir okkar spilltu elítú hafi forgang fram yfir almenna hagsmuni. Íslenskt samfélag kallar nú eftir umbótum. Það er ljóst að stjórnvöld og lögreglan þarf að taka á spillingu, frændhygli og ábyrgðarleysi með auknu gagnsæi, skýrari reglum og óháðu eftirliti. Með því að bæta eftirlit og ábyrgð innan kerfisins má stuðla að endurheimt trausts og tryggja að almannahagsmunir séu ávallt í forgangi. Að öðrum kosti mun íslenskt samfélag halda áfram líða fyrir þá siðferðisskekkju sem spilling veldur. Höfundur er fangi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar