Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar 16. ágúst 2026 13:30 Í þjóðarétti gildir sú regla að ríki hafi einkarétt til nýtingar á náttúruauðlindum í lögsögu sinni, sbr. meginregla 2 Ríó-yfirlýsingarinnar frá 1992 og meginregla 21 Stokkhólmsyfirlýsingarinnar frá 1972 svo fáein dæmi séu tekin. Réttur til hagnýtingar er samofinn rétti ríkja til að fara með eigin málefni sjálf án afskipta annarra ríkja og er hluti af sjálfsákvörðunarrétti ríkja sem birtist í frelsi þeirra til að ákveða hvort auðlindir skuli vera nýttar og á hvaða hátt það skuli gert. Fyrir meira en 20 árum skrifaði ég þessa málsgrein í lokaritgerð minni um fullveldisrétt ríkja til að hagnýta náttúruauðlindir. Blessunarlega hafa þessi grundvallaratriði þjóðaréttar ekkert breyst síðan orðin voru hripuð niður í loftlausu herbergi í Lögbergi. Það sem hefur heldur ekki breyst er tilhneiging stjórnmálamanna sem eru mótfallnir dýpra alþjóðasamstarfi til þess að skauta fram hjá þessum atriðum og dreifa ranghugmyndum um að EES-samstarfið eða möguleg aðild að Evrópusambandinu feli í sér ógn við forræði Íslendinga yfir eigin auðlindum. Hugmyndin um fullveldisrétt til hagnýtingar auðlinda hefur mótast í alþjóðarétti um áratugaskeið. Í ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna nr. 626 (VII) frá 1952 var réttur ríkja til að nýta náttúruauðlindir sínar í þágu eigin framfara og efnahagsþróunar áréttaður. Enn skýrar birtist þessi afstaða í ályktun nr. 1803 (XVII) frá 1962 um varanleg yfirráð yfir náttúruauðlindum, þar sem réttur þjóða og ríkja til að ráðstafa náttúruauðlindum sínum í þágu þjóðarhags var í forgrunni. Í umræðum um EES-samninginn sem og hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu er stundum látið í veðri vaka slíkt samstarf feli í sér afsal fullveldis yfir náttúruauðlindum. Því er jafnvel haldið fram að með því sé öðrum ríkjum eða alþjóðlegum stofnunum fengið vald til að ákveða hvort við nýtum orkuauðlindir okkar og jafnvel hvort íslensk raforka verði flutt um sæstreng til Evrópu. Er það svo? Ekki þarf að kafa djúpt í réttarreglur Evrópusambandsins til að svara spurningunni. Í 2. mgr. 194. gr. Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins, SSESB, segir að ráðstafanir ESB á sviði orkumála skuli ekki hafa áhrif á rétt aðildarríkis til að ákveða skilyrði fyrir nýtingu orkuauðlinda sinna, val þess milli mismunandi orkugjafa og almenna uppbyggingu orkuframboðs þess. Ákvæðið er ekki fyrirvaralaust, en það setur valdheimildum sambandsins skýr mörk á þessu sviði. Dómstóll Evrópusambandsins hefur staðfest þetta svigrúm aðildarríkjanna. Í máli C-594/18 P, sem laut að stuðningi Breta við Hinkley Point C-kjarnorkuverið, áréttaði dómstóllinn að aðildarríki væri frjálst að ákveða samsetningu eigin orkugjafa og að 194. gr. útilokaði ekki að ríki veldi kjarnorku sem hluta þeirrar samsetningar. Þetta skiptir máli. Sameiginleg evrópsk orkulöggjöf þýðir ekki að ESB taki yfir grundvallarákvörðun aðildarríkis um að nýta auðlindir og víki þannig fullveldisrétti þess til hliðar um slíka hagnýtingu. Hitt er svo annað mál að aðild að EES-samningnum, eða eftir atvikum ESB, felur í sér sameiginlegar leikreglur, sem ríkjum ber að virða. Þar má nefna reglur um bann við mismunun, fjórfrelsið, samkeppni og ríkisaðstoð, auk umfangsmikillar löggjafar um virkni orkumarkaðarins, orkuöryggi, orkunýtni, endurnýjanlega orkugjafa og umhverfis- og loftslagsmál. Ísland hefur nú þegar undirgengist drjúgan hluta þessara reglna í gegnum EES-samninginn og það án þess að gefa eftir yfirráðarétt yfir orkuauðlindum eða undirgangast kvöð um lagningu sæstrengs. Fullveldisrétturinn takmarkast ekki við nýtingu auðlinda eða verndun þeirra. Rétturinn nær einnig til þess að við ákveðum sjálf hvernig raforkan er nýtt í þágu lands og þjóðar. Evrópskt regluverk afnemur ekki rétt íslenska ríkisins til að ákveða sjálft hvort íslenska raforkukerfið sé beintengt öðrum ríkjum með sæstreng. Í SSESB er ekki að finna neina heimild fyrir ESB til að leggja sæstreng í óþökk aðildarríkis til annarra aðildarríkja eða skipa aðildarríki að leggja slíkan streng til að tengjast innri raforkumarkaði ESB. Auk þess er ekkert í dómaframkvæmd ESB sem gefur til kynna að aðildarríkjum geti með einhverjum hætti verið skylt að leggja raforkustreng til annarra aðildarríkja til að tengjast innri orkumarkaði ESB. Þvert á móti hefur dómaframkvæmd gert ríkar kröfur til Framkvæmdastjórnar ESB um að virða mörk þess valdframsals sem henni hefur verið veitt sem gefur sterka vísbendingu um að ákvörðun um þessi mál liggi alfarið hjá aðildarríkjum. Við erum því í dag, á grundvelli EES-samningsins, virkir þátttakendur í sameiginlegu evrópsku regluverki á sviði orkumála. Við höfum undirgengist leikreglur um meðal annars jafnræði, samkeppni, gagnsæi og úthlutun takmarkaðra gæða. Ekkert af því afnemur hins vegar fullveldisrétt Íslands yfir auðlindum og ekkert af því felur í sér sjálfkrafa skyldu til að leggja sæstreng að ósk annarra ríkja. Það er einmitt kjarni fullveldisins: að við getum tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi og skuldbundið okkur til að fylgja sameiginlegum reglum án þess að afsala okkur grundvallarákvörðunum um nýtingu eigin auðlinda. Fullveldisréttur Íslendinga til auðlindanýtingar verður ekki sogaður burt með sæstreng, og þá gildir einu hvort við séum aðili að EES-samningnum eða Evrópusambandinu. Höfundur er sérfræðingur í umhverfis- og auðlindarétti og aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Skoðun Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun