Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Sindri Sverrisson skrifar 23. nóvember 2024 13:22 Max Dowman á æfingu með Arsenal. @fabrizioromano Hinn 14 ára gamli Max Dowman þykir gríðarlega efnilegur fótboltamaður og hann er þegar farinn að mæta á æfingar hjá aðalliði Arsenal.
Downman er enskur, sóknarsinnaður miðjumaður sem þrátt fyrir ungan aldur er í dag leikmaður U18-liðs Arsenal, og hefur raunar verið það síðan í fyrrahaust þegar hann var enn 13 ára. Honum er spáð afar bjartri framtíð og ekki minnkaði eftirvæntingin í október þegar hann varð yngsti markaskorari í sögu Ungmennadeildar UEFA, með því að skora í leik gegn Atalanta. Jack Wilshere, þáverandi þjálfari U18-liðs Arsenal, ræddi um Downman við heimasíðu Arsenal síðasta vor og sagði: „Það fylgir því alltaf óróleiki að tefla fram svona ungum leikmanni, en ef maður er nógu góður þá er maður nógu gamall,“ sagði Wilshere. 🔴⚪️✨ Arsenal’s 14 year old talent Max Dowman, again in training with first team here with Mikel Arteta. pic.twitter.com/xmNLarNybi— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 22, 2024 „Dowman þarf að ná meiri stöðugleika en hann er bara 14 ára og er ekki enn byrjaður með CGSE [nám í Englandi fyrir 14-16 ára]. Við verðum að fá jafnvægi á milli þess að hann leiki sér og njóti eins og aldur hans gefur tilefni til, en að hann fái líka að leggja eins mikið á sig og hægt er,“ sagði Wilshere. Arsenal-menn eru greinilega ekki hræddir við að gefa hinum unga Dowman tækifæri og hefur þessi 14 ára leikmaður eins og fyrr segir fengið að mæta á æfingar hjá Mikel Arteta, með aðalliði félagsins.
Enski boltinn Mest lesið Stjarnan - KR | Barist um bikarinn Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Fleiri fréttir Wolves - Chelsea | Bítur botnliðið frá sér? Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sjá meira